Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 123 1. mynd. Svartburkni (Asplenium trichomanes). brekkunum áðurnefndu; garðabrúðan vex annars eingöngu villt um sunnanvert landið en eggtvíblaðkan á nokkrum stöðum í öllum landshlutum. Gróðurfarið í Skaftafelli er, eins og gefur að skilja, allfjölbreytt. Þegar ekið er heim að Skaftafelli að austan, liggur leiðin um gróður- litla áraura og jökulurðir fyrst eftir að komið er vestur yfir Skafta- fellsá, en framundan blasa við fagurlega skógivaxnar brekkurnar niður tindan bæjunum, og þar sem vegurinn liggur að hliðinu eru mörkin ótrúlega skörp milli sands og skógar. Þarna rnætast andstæðurnar: Annars vegar svartur sandurinn, aurar Skeiðarár, auðnin, en hins vegar fagurgrænn skógurinn, lífið sjálft. Margur ferðamaðurinn hefur einmitt lrér fallið í stafi af undrun, en þeir senr hafa séð hana Skeiðará velta sér þarna í sínum versta ham meðfram brekkurótunum, þeir furða sig síður á því, að það geti reynzt erfitt að festa rætur á eyrum hennar. Nu er reyndar búið að lilaða fyrir Skeiðará þarna, og vonandi halda þeir varnargarðar aftur af þeirri gömlu og beina henni suður sandinn eins og til er ætlazt, og munu þá ýmsar tegundir plantna fljótlega nema land á sandinum. Þar sem nokkur ár hafa liðið á milli, að Skeiðará flæddi yfir, hafa reyndar alltaf einhverjar plöntur náð fótfestu annað

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.