Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 53
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURIN N
127
lítil flatneskja, vaxin mosategundum og krækilyngi, stinnastör
(Carex bigelowii), músareyra, geldingahnappi (Armeria maritima),
grasvíði, túnvingli, blávingli, fjallapunti (Deschampsia alpina),
móasefi (Juncus trifidus), bjúgstör (Carex maritima), beitieski
(Equisetum variegatum), kornsúru, brjóstagrasi (Thalictrum al-
pinum) og vetrarblómi (Saxifraga oppositifolia). Þessir fjallamóar
smáhækka og ná um 700 m hæð við rætur Kristínartinda, en öllu
hærra upp nær samfelldur gróður ekki í Skaftafelli. Af þessum
brúnum er stórkostlega fögur útsýn yfir Morsárdal, Bæjarstaðar-
skóg, Morsárjökul, Kjós, sem er afdalur norðvestur úr Morsárdal,
til fjallanna í jaðri Vatnajökuls, Miðfellstinds, Þumals og fjallanna
Jsar fyrir vestan, langt inn á Vatnajökul.
Frá brúnunum vestan undir Kristínartindum má ganga upp í
skriðurunnar hlíðar tindanna; erfitt mun Jdó að ganga á Jrá sjálfa það-
an, en Jrað er auðvelt, ef lagt er upp nokkru austar. Aftur á móti er
tilvalið að ganga Jraðan niður í Morsárdal og kemur maður J)á
niður á móts við jökulurðirnar framan við Morsárjökul. Sú leið
er að vísu nokkuð brött og liggur efst um lausar skriður en síðan
nm grónar brekkur og ætti að vera öllum sæmilega fótvissum og
gönguvönum mönnum fær, einkum ef farnar eru fjárgöturnar í
skriðunum. Þarna og áfram upp eftir skriðum Kristínartinda vaxa
allmargar tegundir blómplantna: Ljónslappi, skriðnablóm (Arabis
alpina), geldingahnappur, músareyra, fjalla-fræhyrna (Cerastium
arcticum), fjallapuntur, fjallasveifgras (Poa alpina), lotsveifgras (Poa
laxa), blásveifgras (Poa glauca), þúfusteinbrjótur, mosasteinbrjót-
ur (Saxifraga hypnoides), vetrarblóm, lækjasteinbrjótur (Saxifraga
rivularis), laukasteinbrjótur (Saxifraga cernua), lambagras (Silene
acaulis), fjallhæra (Luzula arcuata), axhæra, ólafssúra (Oxyria di-
gyna), jöklasóley (Ranunculus glacialis), fjallasmári (Sibbaldia pro-
cumbens), kornsúra, fjalladepla (Veronica alpina), túnvingull, blá-
vingull, stinnastör, sótstör (Carex atrata), grasvíðir og ýmsar fleiri
algengar fjallaplöntur, auk margra rnosa og fléttutegunda, en af
mosnm er langmest af gamburmosa (Racomitrium canescens) og
grámosa. Neðar í hlíðinni bætast svo fleiri tegundir við, Jrar á meðal
gullsteinbrjótur. Neðst í hlíðinni eru algrónar gras- og lyngbrekkur.
Jökulurðirnar í Morsárdal og áraurarnir á botni hans eru líka
að gróa upp, því Morsárjökull hefur hopað undanfarna áratugi eins
og aðrir íslenzkir skriðjöklar. Morsá flæmist heldur ekki eins fram
og aftur um aurana þarna eins og Skeiðará um Skeiðarársand, enda