Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 57
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
131
Jón Jónsson:
Hraun í nágrenni Reykjavíkur
II. Hólmshraunin fimm
Inngangur.
Þegar farið er sem leið liggur frá Reykjavík austur yfir Hellis-
heiði, eða austur yfir Fjall, eins og oft er komist að orði, blasir við
manni á hægri höncl grámosagróinn hraunfláki, sem nær frá Jaðri
austur að Selfjalli og hverfur til suðurs milli efstu brúna.
Nyrzt, eða nánar tiltekið milli Selfjalls og Heiðmerkur, gengur
þessi hraunbreiða undir nafninu Hólmshraun.
Við athugun kemur í ljós, að um a. m. k. fimm mismunandi og
misgamla hraunstrauma er að ræða, sem auðveldlega rná greina að
norðantil á svæðinu.
Er sunnar dregur verður það illgerlegt eða ómögulegt með öllu,
enda koma þar fyrir enn fleiri hraun, sem hlaðizt hafa hvert yfir
annað. Þau eru öll komin úr Þríhnúkum og svæðum milli þeirra og
Hákolls í sunnanverðum Bláfjöllum.
Eldstöðvar á þessu svæði eru a. m. k. átta vel sýnilegar. Ekki er ólík-
legt að einhverjar séu nú huldar yngri liraunum, og engan veginn er
útilokað að neðst í þessum hraunlagastafla séu hraun frá Heiðinni há,
sem runnið hafi til norðurs vestan Bláfjalla.
Ég hef valið að halda því nafni, sem notað er á kortinu (1:50000),
en gefa síðan hverju hrauni númer eftir aldursröð á meðan ekki er
hægt að tengja hvert og eitt þeirra við ákveðna eldstöð sem hlotið
hefur nafn.
Hólmshraun I.
Hólmshraun I er elzt þessara hrauna.
Það kemur fram austan við Gvendarbrunna og hefur þar runnið
út á og nærri þvert yfir Leitahraun (Jónsson 1971, bls. 52), og er
því a. m. k. eitthvað yngra. Rekja má það til austurs báðum megin
Suðurár um 1,5 km austur frá Gvendarbrunnum, en nyrzta tunga