Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 59
N ÁT T Ú R U F RÆ ÐINGURINN
53
hefur komið í skrifum vísindamanna og sé slitrur af þeim að finna
um endilöng gljúfrin. Rétt er þó að taka fram, að ég er aðeins
venjulegur náttúruskoðari.
1 þessu greinarkorni ætla ég að rekja helztu hraunstubbana og
geta mér til um upptökin. Mun ég byrja neðan frá, eins og ég rakti
hraunin npphaflega. Enn fremur mun ég minnast ögn á flóðum-
merkin og liina miklu jarðvegseyðingu í gljúfradalnum.
Hraunstubbar í norðurhluta Jökulsárgljúfra
Norðan undir Áshöfða, sem er skógarhæð við mynni Jökulsár-
gljúfra vestanmegin, er í brekkurótunum mjór bergkragi, sem er
greinilega hraun frá nútíma. Kraginn er mjög mjór og figgur í
boga með brekkunni frá gljúfurkjaftinum og vestur undir Ástjörn,
rúman kílómetra. Er hann víða þakinn bunkum af möl og stórgrýti,
auk foksands. Merki nútímahrauns eru m. a. frauðkenndir smá-
hnjúskar á yfirborðinu, rennslisgárar og skaddaður kleprastútur, en
flest eitthvað máð. Bergkraginn myndar lága hamra út að eyrunum,
lögin eru tvö, samtals 5—8 m jrykk.
Þetta basalt sker sig nokkuð frá öðru basalti hér um slóðir, er
dökkblágrátt, fínkornótt og dílalaust, nema einstaka smátt ólivín-
korn. Spildan er hæst austur við gljúfrakjaftinn og hallar norðvest-
ur. Hraunið hefur bersýnilega runnið fram úr gijúfrunum og
breiðst eitthvað út á sandinn, en jró stntt. Eftir stendur vesturjaðar
eyddrar hrauntungu. Til gamans hef ég svipast um eftir framhaldi
þessa dökka hraunflóðs frammi á heiðunum, en það finnst hvergi á
prenti, að hraun hafi runnið niður Jökulsárgljúfur.
Helst er hraunslitrurnar að finna í gljúfrabrúnunum, en alls
staðar þaktar jarðvegi eða j)á þykkum framburði og ber lítt á þeim.
Sums staðar er líka þykkur framburður undir hrauninu, eins og
t. d. sunnarlega í Landsbjörgum. Bersýnilegt er, að hraunflóðin
hafa flætt niður daf Jökufsár, eins og hann var í þann tíð, miklu
grynnri en nú, og víðast hvar fyllt hann eða hálffyllt norðan For-
vaðakjafts.
Næstnyrsta spilda af hrauninu er skannnt sunnan við gljúfra-
mynnið, norðvestan við túnin á Vestaralandi. Hraunlagið er einfalt
í gljúfrabrúninni, botninn um 50 m yfir núverandi árborði, 6—8
m Jrykkt. í brekkuhalla norðast virðast lögin 2—3.