Fréttablaðið - 29.05.2009, Side 8

Fréttablaðið - 29.05.2009, Side 8
8 29. maí 2009 FÖSTUDAGUR 1. Hversu margar milljónir borgaði Kópavogsbær fyrirtæki bæjarstjórans frá 1997 til 2001? 2. Í hvaða gosdrykk hafa Þjóð- verjar fundið kókaín? 3. Hvaða þingmaður VG krefst þess að staðið verði við stjórnar- sáttmálann og auglýst eftir bankastjórum? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 Lóritín® – Kröftugt ofnæmislyf Notkun: Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. Skömmtun: Fullorðnir og börn (>12 ára): 1 tafla á dag. Börn 2-12 ára (<30 kg): ½ tafla (5 mg) á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Töfluna má taka hvenær sem er, án tillits til matmálstíma. Hefja ætti meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi með minni skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal varúðar ef Lóritín er gefið sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi. Lyfið inniheldur laktósa. Langvarandi notkun getur leitt til aukinnar hættu á tannskemmdum vegna munnþurrks. Notkun Lóritíns á meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki ráðlögð nema í samráði við lækni. Í einstaka tilfellum finnur fólk fyrir syfju sem getur haft áhrif á hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist almennt vel en algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur, taugaveiklun og þreyta. Algengustu aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi, höfuðverkur, aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Desember 2005.  Njóttu sumarsins Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Ferðabox Pacific 100139 x 90 x 39 cm370 L43.900.- Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Hjólafestingar EFNAHAGSMÁL Um helgina rennur út frestur sem stjórnendur Gener- al Motors – sem lengi var stærsti bílaframleiðandi heims – hafa til að semja við lánardrottna sína til að afstýra gjaldþroti. Þær viðræð- ur sem átt hafa sér stað um málið þessa vikuna hafa bara snúist um aðferðafræðina við að keyra „gamla GM“ í gegnum gjaldþrot svo að sem fyrst verði hægt að fela endurreistu fyrirtæki án sligandi skuldaklafa að halda „straumlínu- löguðum“ rekstri áfram. Samkvæmt því sem frést hafði í gær um gang viðræðnanna er hópur stærstu lánardrottna GM, sem eiga um fimmtung ótryggðra heildarskulda samsteypunnar, nú jákvæðari fyrir áformum stjórn- valda um að keyra GM í gegnum hraðgjaldþrot, gegn því að lánar- drottnarnir fái stærri hlut í hinu endurreista fyrirtæki en þeim hafði áður verið boðið. Samkvæmt því tilboði sem þeim var gert fyrr í vikunni áttu þeir að fá tíu prósent hlutafjár í nýja fyrir- tækinu gegn því að afskrifa kröfur sínar. Því tilboði var hafnað. Sam- kvæmt nýja tilboðinu er áætlunin sú að ríkið eigi 72,5 prósent hluta- fjár í endurreistu GM, eftirlauna- sjóður starfsmanna 17,5 prósent og aðrir kröfuhafar 10 prósent. Þeim síðastnefndu mun jafnframt standa til boða að kaupa 15 prósent hlutafjár til viðbótar (af ríkinu) á niðursettu verði. Áformin gera ráð fyrir að í hinu endurreista GM verði aðeins arð- bærustu einingar fyrirtækisins en þær sem standa síst undir sér verða skildar eftir í því gamla. Þær eignir verði í gegnum gjald- þrotaferlið nýttar til að greiða almennum kröfuhöfum. Þetta er hliðstætt ferli og ákveðið var fyrir Chrysler fyrir mánuði. AP-fréttastofan hafði eftir heim- ildarmanni sem komið hefur að viðræðunum í Detroit að til standi að loka fjórtán verksmiðjum, en með þeim tapast um 21.000 störf. Enn er óljóst hvað verður um Evrópudeild GM, en uppistaða hennar eru Opel-verksmiðjurn- ar í Þýskalandi. Nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á að taka rekstur- inn yfir, en þau áform eru öll háð því að stjórnvöld í Þýskalandi (og öðrum löndum Evrópu þar sem GM er með umsvif) gangist í ábyrgð- ir fyrir fjármögnun yfirtökunnar, gegn því að heita því að skera ekki niður fleiri störf en ýtrasta nauð- syn krefur. Viðræður fóru fram milli máls- aðila í Berlín í fyrradag. Fundur- inn teygðist fram á nótt en endaði án niðurstöðu, að sögn vegna þess að það var ekki fyrr en á honum stóð að upp úr dúrnum kom að Opel þarf á 300 milljónum evra meira til að geta staðið við skamm- tímaskuldbindingar sínar en hing- að til var talið. Í dag, föstudag, á að ræða möguleikana á lausn á sér- boðuðum bráðafundi ráðherra frá þeim Evrópusambandslöndum þar sem mörg GM-störf eru í húfi. audunn@frettabladid.is Bandaríski bílarisinn GM endar í ríkiseigu Samkvæmt því sem lekið hefur út um drög að samkomulagi milli bandaríska fjár- málaráðuneytisins og helstu lánardrottna bílarisans GM stefnir í að ríkið eignist yfir 70 prósent í endurreistu fyrirtæki eftir hraðgjaldþrot. Óljóst um örlög Opel. Í FANG RÍKISINS Heimsendastemning ríkir í hinum stoltu höfuðstöðvum GM í Detroit. FRÉTTABLAÐIÐ/AP REYKJAVÍK Til íhugunar er að loka hluta Laugavegs fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum í sumar. Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylk- ingar í umhverfis- og samgöngu- ráði, lagði fram tillögu þess efnis á fundi ráðsins á þriðjudag. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for- maður ráðsins, segir málið í skoð- un á milli funda. Rætt hafi verið við kaupmenn við götuna og þeir séu jákvæðir. Öll útfærsla sé þó eftir, hvar verði lokað og hvenær, og það þurfi að útfæra með kaup- mönnum. Dofri vísar til reynslunnar af Pósthússtræti, en því hefur verið lokað á góðviðrisdögum. Dofri leggur jafnframt til að komið sé upp „góðviðrisstrætó“ sem gangi eftir Hverfisgötu. Þannig væri komið til móts við þá sem eru gangandi. Gunnar Guðjónsson, eigandi Gleraugnamiðstöðvarinn- ar við Laugaveg, undrast að ekki hafi verið haft meira samráð við kaupmenn áður en tillagan var lögð fram í ráðinu. „Við erum ekki endilega á móti þessu, en það er fáránlegt að leggja þetta fram án þess að ræða við hagsmunaaðila í götunni.“ Gunnar segir það geta verið vandkvæðum bundið að vita ekki hvenær götunni verði lokað. Hann minnir á að kaupmenn hafi lokað götunni í tengslum við langa laug- ardaga og jafnvel boðið upp á skemmtiatriði. - kóp Borgaryfirvöld skoða breytingar í miðbænum í samvinnu við kaupmenn: Laugavegi lokað í góðu veðri VILL SAMRÁÐ Gunnar segist ekki frábitinn því að Laugavegi sé lokað á góðviðrisdögum, en undrast lítið samráð við kaupmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM RANNSÓKNIR Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur hlotið 200 þúsund evra rannsóknarstyrk – eða sem nemur um 35 milljónum króna – úr 7. rammaáætlun Evr- ópusambandsins. Styrkinn hlýtur stofnunin vegna þátttöku sinnar í verkefninu EU4SEAS, sem alls hlaut vilyrði fyrir 1,2 milljóna evra styrk. EU4SEAS er fjölþjóðlegt rann- sóknarverkefni, þar sem skoðuð verða áhrif ESB á milliríkjasam- starf umhverfis fjögur innhöf Evrópu – Eystrasalt, Kaspíahaf, Miðjarðarhaf og Svartahaf. Verk- efnið mun standa yfir yfir næstu þrjú árin. - shá Alþjóðastofnun fær styrk: Munu rannsaka innhöf Evrópu EFNAHAGSMÁL Þeir tíu mánuðir sem rannsóknar- nefnd Alþingis fékk til að ljúka rannsókn á aðdrag- anda og orsökum falls íslensku bankanna eru hálfn- aðir. Formaður nefndarinnar segir vinnuna minna á tíu mánaða spretthlaup. Ekkert bendir til annars en að niðurstöður nefnd- arinnar verði tilbúnar í byrjun nóvember eins og lagt var upp með, og engar óvæntar tafir hafa orðið á starfinu að sögn Páls Hreinssonar, formanns rannsóknarnefndarinnar. „Það hefur gengið mjög vel að safna gögnum, allir hafa verið mjög hjálplegir við að greiða götu okkar að þeim upplýsingum sem við höfum þurft,“ segir Páll. Ekkert fæst gefið upp um það sem upp hefur komið í starfi nefndarinnar hingað til. Í rannsóknar- skýrslu sem gefin verður út í haust verður ýtar- leg lýsing á atburðarásinni hjá stjórnvöldum og bönkunum í aðdraganda hrunsins. Þar verða einnig hagfræðilegar ályktanir um orsakir fyrir bankahruninu. Alls starfa ríflega tuttugu manns að rannsókn- inni, og verður þeim heldur fjölgað í sumar, segir Páll. Þá munu erlendir sérfræðingar einnig koma til landsins í þrjá mánuði til að fara yfir niðurstöð- urnar. Ekki stendur til að gera hlé á störfum nefndar- innar í sumar, segir Páll. „Mönnum verður boðið að taka sumarfrí um jólin, eins og það er nú gaman. Þetta er bara tíu mánaða spretthlaup.“ - bj Tími rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsakar aðdraganda hrunsins hálfnaður: Rannsóknin tíu mánaða spretthlaup RANNSÓKNARNEFND Erlendir sérfræðingar munu fara yfir niðurstöður rannsóknar á bankahruninu í sumar, segir Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis (fyrir miðju). FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.