Fréttablaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 29. maí 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 25 Velta: 16 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
260 +0,02% 705 +0,07%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR 23,53%
MAREL FOOD SYST. 0,16%
MESTA LÆKKUN
FØROYA BANKI 0,83%
ÖSSUR 0,48%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,40 +0,00% ... Atlantic
Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 550,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,26 +23,53% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,00 -0,83% ... Icelandair Group
4,50 +0,00% ... Marel Food Systems 61,40 +0,16% ... Össur 103,00
-0,48%
Gengi hlutabréfa Bakkavarar rauk
upp um 23,5 prósent í ellefu við-
skiptum upp á rétt rúmar fjórar
milljónir króna í Kauphöllinni í
gær. Gengið fór undir eina krónu á
hlut í fyrradag og hafði aldrei verið
lægra.
Viðræður standa enn yfir við
eigendur skuldabréfa félagsins
um framlengingu á lánum félags-
ins. Þrjár vikur eru síðan Bakka-
vör lenti í vanskilum með greiðslu
skuldabréfanna. Þar hefur lítið
þokast, sem gæti skýrt hækkun-
ina í gær, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins.
IFS Greining sagði í umfjöllun
sinni í kjölfar uppgjörs Bakkavarar
í síðustu viku samninga um skulda-
bréfin stóra málið hjá félaginu þessa
dagana. Fjárfesting í hlutabréfun-
um væri því mjög áhættusöm uns
niðurstaða fengist í málinu. - jab
Bakkavararbréf
rjúka upp
FRÁ BAKKAVARARFUNDI Viðræður vegna
skuldabréfaflokks sem kominn er í vanskil
standa yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Væntingar íbúa í evrulöndunum
sextán um efnahagsbata hafa aukist
frá í apríl og hafa þær nú ekki verið
meiri í rúmt hálft ár. Þetta eru nið-
urstöður könnunar framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins sem
kynt var í gær.
Væntingavísitalan stóð í 69,3 stig-
um í mánuðinum samanborið við
67,2 stig í apríl. Bloomberg-frétta-
stofan segir niðurstöðuna sýna að
neytendur séu bjartsýnir á að aukin
útgjöld hins opinbera og lágir stýri-
vextir muni koma efnahagslífinu af
stað á ný.
Bloomberg bætir við að þrátt
fyrir þetta hafi atvinnuleysi á evru-
svæðinu ekki verið meira í þrjú ár.
Neytendur haldi fast um pyngjuna
og velta í smásöluverslun hafi dreg-
ist hratt saman í mánuðinum.
Reiknað er með að þróunin skili
sér í 0,2 prósenta verðbólgu, lægstu
verðbólgutölum sem sést hafi á
evrusvæðinu. Eurostat, hagstofa
Evrópusambandsins, birtir verð-
bólgumælingu í dag. - jab
Væntingar auk-
ast á evrusvæði
„Erfiðleikar gefa ekki afslátt á reglum,“
segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, sem í gær áminnti Eglu,
Existu, Landic Property, Nýsi og Stoðir
opinberlega og sektaði öll nema eitt um
1,5 milljónir króna þar sem þau hafa ekki
birt ársreikninga sína innan tímamarka
fyrir lok apríl. Egla er sektuð um eina
milljón króna.
Fjármálaeftirlitið mun skoða hvort
fyrirtækin hafi brotið lög, að sögn Þórð-
ar, sem áréttar mikilvægi þess að fyrir-
tæki birti ársreikninga sína.
Félögin beittu öll fyrir sig undanþágu-
ákvæði til að hliðra sér hjá birtingu árs-
reikninga. Þau eru öll ýmist í gjald-
þrotameðferð, greiðslustöðvun eða í
endurskipulagningu og eiga í stífum við-
ræðum við lánardrottna. Þá eru þau öll
með skráð skuldabréf í Kauphöllinni.
Kauphöllin hefur nú áminnt tólf fyrir-
tæki opinberlega og lagt fjársektir á ell-
efu upp á samtals sautján milljónir króna
frá áramótum. Allt síðasta ár voru þrjú
fyrirtæki áminnt vegna brota á reglum
Kauphallarinnar og jafn mörg sektuð
vegna þeirra.
Kauphöllin segir vegna áminningar-
innar í gær að upplýsingar sem þess-
ar falli ekki niður þótt fyrirtækið eigi í
greiðsluerfiðleikum.
Þetta er önnur áminning Landic Prop-
erty á árinu. Þá var Exista sektuð um
fjórar milljónir króna í desember í fyrra
vegna brota á reglum Kauphallarinnar.
Það er jafnfram næsthæsta sekt sem
lögð hefur verið á fyrirtæki vegna brota
sem þessa. Hæsta sektin, 4,5 milljón-
ir, var lögð á Búnaðarbankann í janúar
2003. - jab
Kauphallarbrotum fjölgar stórlega
KENNARANÁM
VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI
Umsóknarfrestur til 5. júní
Engin skólagjöld, innritunar-
gjald kr. 45 þúsund fyrir skólaárið
Nánari upplýsingar á www.unak.is eða í síma 460 8000
Dagslinsur
Kr: 2.490.-
Hamrahlíð 17 - Húsi Blindrafélagsins
105 Rvk. S: 552 2002
ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON Forstjóri Kauphallarinn-
ar segir mikilvægt að fyrirtæki birti ársreikninga.
Greiðsluerfiðleikar gefi engan afslátt á reglum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA