Fréttablaðið - 29.05.2009, Síða 28
4 föstudagur 29. maí
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n Stjörnumerki:
Naut í Venus.
Besti tími dagsins:
Morgunstund ef ég er útsofin, annars síðla
kvölds.
Geisladiskurinn í spilaranum:
Akkúrat núna er það Mariee Sioux.
Uppáhaldsverslunin:
Kron Kron án efa!
Uppáhaldsmaturinn:
Indverskur, mexíkóskur
og víetnamskur.
Líkamsræktin:
Baðhúsið ef ég er á
landinu.
Mesta dekrið:
Ég elska að láta fæða
mig á góðri tónlist og
góðum mat!
Ég lít mest upp til:
Vivienne Westwood er
ótrúlegur karakter, hún hefur haldið sínum stíl í
gegnum öll þessi ár, alltaf sami töffarinn og vílar
það ekki fyrir sér að ná sér í gaur sem er 25
árum yngri á sextugsaldri! Algjör virðing!
Áhrifavaldurinn?
Það fer eftir hvað við erum að tala
um, myndlist, hönnun eða bara lífið
almennt? Ég get ekki beint sagt að ein-
hver ein manneskja eða atburður hafi
haft einhver afgerandi áhrif, heldur
meira samansafn af hlutum sem koma
til manns í gegnum lífið.
Draumafríið?
Ætli það sé ekki bara að keyra
hringinn með krílunum.
Hverju myndirðu sleppa ef þú
yrðir að spara?
Allavega ekki
dökku súkkulaði
og púrtvíni!
Harpa Einarsdóttir,
fatahönnuður og teikn-
ari, var stödd í Atlanta
þegar bankahrunið
varð á Íslandi. Þar fékk
hún atvinnutilboð hjá
tölvuleikjafyrirtækinu
CCP sem hún gat ekki
hafnað, seldi búslóðina
stuttu síðar og flutti út.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Stefán Karlsson
É
g ætlaði alltaf að verða
listamaður. Áður en ég
komst á táningsaldur-
inn ætlaði ég reynd-
ar að verða ballerína,
en það var ekki kenndur ballett í
Borgarnesi,“ segir Harpa sem ólst
upp þar og á Akranesi þar til hún
flutti í bæinn sextán ára gömul
ásamt móður sinni. „Ég tók ekki
nema eina önn í MH, ég er eirðar-
laus að eðlisfari og ákvað að taka
mér frí frá skólanum til að flakka
aðeins um heiminn. Eftir að hafa
farið víða og dvalið í London í eitt
ár kom ég aftur heim og ætlaði að
halda áfram námi, 22 ára, en þá
varð ég þunguð af syni mínum. Ég
og kærasti minn hættum saman
þegar hann var átta mánaða, en á
þeim tíma var ég í fornámi í mynd-
list í FB. Ég flutti til mömmu með
hundinn og strákinn pínulítinn
og mánuði síðar kom í ljós að ég
var komin tvo mánuði á leið með
dóttur okkar sem var eðlilega pínu
sjokk. Elsku mamma hefur alltaf
veitt mér mikinn stuðning í gegn-
um árin og við staðið vel saman.
Þegar þarna er komið var íbúða-
verð að hækka mikið og ákváð-
um við því að rífa okkur upp og
flytja til Akureyrar. Þar áttum við
dásamlegt ár og ég held að ég hafi
aldrei verið eins mikil húsmóðir
og þetta ár, bakaði brauð á hverj-
um degi og gerði rabarbarasultu,“
segir Harpa og brosir. „En það leið
ekki á löngu þar til eirðarleysið
gerði vart við sig að nýju, ég flutti
því aftur í bæinn og sótti fljótlega
um í Listaháskólanum þar sem ég
útskrifaðist síðan úr fatahönnun
árið 2005.“
HARÐUR BRANSI
„Eftir útskrift byrjaði ég svo að
vinna í búningadeild Þjóðleik-
hússins þar sem ég kynntist
Selmu Ragnarsdóttur klæðskera
og við fórum að vinna saman að
Starkiller-hönnunarlínunni. Ég
hef sniðagerðina ekki mikið í mér,
en get teiknað nákvæmlega upp
hvað mig langar að gera, þannig
gátum við sameinað krafta okkar.
Við vorum með litla búð og vinnu-
stofu á Laugavegi en ég var samt
alltaf í fullri vinnu með þessu.
Það var auðvitað alltaf draumur-
inn að fara í alvöru framleiðslu
því maður græðir aldrei á svona
dúlleríi. Ég hef samt ekki gefist
upp og langar einhvern tíma að
taka upp þráðinn og stofna nýja
línu,“ útskýrir Harpa sem sá um
búningahönnun meðal annars
fyrir Mýrina og Duggholufólkið.
„Ég hef alltaf verið með annan
fótinn í „production-bransan-
um“ og í framtíðinni get ég alveg
séð mig fyrir mér að vinna sem
búningahönnuður eða „concept“
listamaður í kvikmyndum.“
ERFIÐ ÁKVÖRÐUN
Harpa hóf störf hjá tölvuleikja-
fyrirtækinu CCP á Íslandi fyrir
rúmum tveimur árum. Þar hefur
hún hannað búninga fyrir hinn
vinsæla tölvuleik EVE online, en í
haust fékk hún atvinnutilboð hjá
útibúi fyrirtækisins í Atlanta sem
hún gat ekki hafnað.
„Ég var búin að segja upp hjá
CCP og var á leiðinni til Boston þar
sem ég var búin að ráða mig hjá
fyrirtækinu Harmonix sem fram-
leiðir meðal annars Rockband-
tölvuleikina. Kunningi minn, sem
hannaði alla áprentunina fyrir
Starkiller-línuna, vinnur þar og
okkur langaði að vera nær hvort
öðru til að geta föndrað meira
saman og skapað augnakon-
fekt í tísku og listum. Elskurn-
ar mínar í CCP voru hins vegar
ekki alveg á því að sleppa mér
og buðu mér stöðu við að hafa
yfirumsjón með klæða- og kar-
aktersköpun í nýja netleiknum
sem þeir eru að framleiða. Ég man
að þegar þeir buðu mér út til að
kanna aðstæður fékk ég símtal frá
Krumma (Oddi Hrafni Björgvins-
syni söngvara) sem sagði: „Nú
er þetta búið, bankarnir eru allir
farnir á hausinn,“ en þá var ég á
fimm stjörnu hóteli með kokkteil
í hönd þannig að þetta hljómaði
Í EKTA SUÐURRÍKJASTEMNINGU
Töff „Fyrsti alvöru kær-
astinn minn, hann Jón
Páll, gerði þetta,“ segir
Harpa, spurð um tattúin
á handleggjunum.
Ég man að þegar
símtal frá Krumm
allir farnir á hau
kokkteil í hönd þ
Laxveiði
Silungsveiði
Skotveiði
www.strengir.is