Fréttablaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 37
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Garðyrkju- og blómaframleið-
endur fara ýmsar leiðir til að
bæta þjónustu við viðskipta-
vini sína. Merkingar og nýjar
leitarvélar eru liður í því, segir
formaður Félags garðplöntu-
framleiðenda.
„Íslensk garðyrkja auðkennir
framleiðslu sína með fánarönd-
inni,“ segir Vernharð Gunnars-
son, formaður Félags garðplöntu-
framleiðenda og eigandi Gróðrar-
stöðvarinanr Storðar við Dalveg í
Kópavogi, beðinn um að lýsa því
hvernig best sé að þekkja íslenskar
plöntur.
„Fyrir nokkru var gert átak
meðal íslenskra garðyrkjubænda
svo þeir merktu sína vöru,“ segir
hann og vísar til þess að öll afskor-
in blóm og pottaplöntur eigi að
vera vel merkt. „Viðskiptavinurinn
á ekki að vera í vafa um hvaðan
varan kemur.“
Spurður hvort mikið sé um inn-
fluttar plöntur og blóm á mark-
aðnum þetta misserið segir hann:
„Innflutningur hefur vissulega
minnkað í ár en það er alltaf eitt-
hvað flutt inn, og þá aðallega plönt-
ur sem ekki er unnt að rækta hér
á landi.“
Vernharður bendir á að Félag
garðyrkjubænda hafi jafnframt
nýverið opnað vefsíðuna www.
gardplontur.is til að bæta þjón-
ustuna, en þar má lesa sér til um
ýmsan fróðleik, eins og hversu
mikinn vind planta á að þola eða í
hvernig litum potti tiltekin blóma-
tegund er fáanleg svo eitthvað sé
nefnt. Leitarvélin ætti að koma
sér vel fyrir þá sem vilja ganga úr
skugga um hvort sú blómategund
eða garðplanta sem þeir ætla að
fá sér í garðinn eða á pallinn henti
skilyrðum þar.
Að sögn Vernharðs hefur Félag
garðplöntuframleiðenda einnig
verið að vinna að stóru verkefni
sem kallast Yndisgróður. „Það
gengur út á að skilgreina allar
garðplöntur sem til eru á landinu
og finna út hvort hægt sé að bæta
úrvalið.“
Verkefnið er komið í umsjá
Landbúnaðarháskóla Íslands enda
hugsað sem langtímaverkefni.
„Þetta er gert í þágu viðskiptavin-
arins til að hann fái bestu plöntur
sem hægt er að rækta við íslensk-
ar aðstæður,“ segir hann. „Þegar
ræktaðar eru plöntur og blóm verð-
ur maður að gæta þess vel að ekk-
ert fari úrskeiðis. Enda næst ekki
öðruvísi góður árangur.“ - vg
Merktar með fánarönd
Sumarblóm eru mikið keypt í ker og potta og eru hengiblóm sérstaklega vinsæl, að
sögn Vernharðs Gunnarssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA