Fréttablaðið - 29.05.2009, Síða 38

Fréttablaðið - 29.05.2009, Síða 38
 29. MAÍ 2009 FÖSTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● garðurinn Til að mæta aukinni eftirspurn gerði Reykjavíkurborg nýverið samning við Garðyrkju- félag Íslands um grenndargarða við Stekkjarbakka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Áhugi á matjurtarækt hefur stóraukist að und- anförnu en Reykjavíkurborg leigir út þó nokk- urn fjölda matjurtagarða. Til að mæta aukinni eftirspurn gerði hún auk þess samning við Garðyrkjufélag Íslands um grenndargarða til mat- jurtaræktar við Stekkjarbakka. Borgin lét Garðyrkjufélaginu í té 2.500 fermetra svæði auk þess sem hún tryggir aðgengi að vatnslögn til vökvunarlands. Búast má við um það bil 50 til 80 görðum á svæðinu en Garðyrkjufélagið mun annast útleigu garð- landa. „Ég veit að margir Reykvíkingar eru spenntir að koma áhugamáli sínu um mat- jurtarækt í framkvæmd, þessi samningur ætti að styðja vel við þann áhuga,“ sagði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður um- hverfis- og samgönguráðs, þegar samningur- inn var undirritaður. Þá leigir borgin út tvö hundruð garða í Skammadal auk þess sem 50-80 matjurtagarðar eru í lausum görðum í Skólagörð- um Reykjavíkur víða um bæinn. Þó nokkrir biðlistar hafa myndast en nánari upplýsingar er að finna á www.umhverfissvid.is. - ve Mikill áhugi á matjurtarækt Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor kennir námskeið um íslenskar plöntur í Skaftafelli í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Skaftafell er sá staður á land- inu þar sem gróður lifnar einna fyrst. Þar er fjölskrúðug flóra enda hefur svæðið verið friðað fyrir beit í aldarfjórðung,“ segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir, líffræð- ingur og prófessor við Háskóla Ís- lands. Hún verður leiðbeinandi á námskeiði hjá Endurmenntun HÍ sem nefnist Íslenskar plöntur og plöntuskoðun. Námskeiðið verð- ur haldið í Þjóðgarðinum í Skafta- felli dagana 19. til 21. júní. „Námskeiðinu er ætlað að hjálpa áhugasömum að njóta nátt- úrunnar og þekkja plöntur,“ segir Þóra Ellen en um 500 háplöntu- tegundir er að finna hér á landi og segir Þóra að það vaxi fólki oft í augum að byrja. „Það er auðvelt að bæta við þekkingu sína sjálf- ur þegar maður er kominn með grunninn en fólki finnst svolít- ið bratt að stíga fyrstu skrefin,“ segir hún en á námskeiðinu verð- ur farið í gegnum hvernig hægt er að greina tegundir, hvaða aðferðir eru notaðar og hvernig megi nota handbækur. „Síðan fræði ég fólk um vistfræði plantnanna, lífs- feril og æxlun,“ segir Þóra Ellen og segir að lokum: „Það eykur mjög ánægju þess sem er gang- andi í íslenskri náttúru að þekkja plönturnar í henni.“ Nánari upplýsingar um náms- tilhögun á www.endurmenntun.is. - sg Námskeið í greiningu íslenskra plantna Skoðaðu gardplontur.is og nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda. VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR. „Íslensk blóm eru harðgerð, kröftug og fersk.“ Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður. Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu. Nú hafa þeir opnað vefinn gardplontur.is Þar má finna margvíslegan fróðleik. ÍS L E N S K A S IA .I S S G B 4 62 96 0 5/ 09 Fólk gerir ýmislegt til að fegra garðinn sinn. Guðrún Þórs- dóttir, skólastjóri Vinnuskólans í Reykjavík, og eiginmaður hennar fóru þá leið að útbúa litla fiskitjörn á lóð sinni. „Þessi tjörn er örugglega búin að vera hérna í garðinum í ein fimmt- án ár. Á þeim tíma hefur hún veitt okkur hjónunum ómælda gleði,“ segir Guðrún. Spurð út í tilurð tjarnarinnar segist hún vera mikið gefin fyrir vatn og manninum sínum þyki af- skaplega gaman að hafa fiska. Þau hafi því orðið sammála um að búa til tjörn í miðjum garðinum, þar sem gullfiskar viðhafast á sumrin en eru fluttir í innibúr þegar vet- urinn nálgast. „Þeim leiðist auðvit- að heil ósköp inni,“ segir Guðrún. „Vilja helst vera úti þar sem þeir geta leikið sér og fengið nóg af lirfum að éta. Þetta er náttúrlega góð matarkista, sem sést bara af því hve mikið þeir stækka yfir sum- arið.“ A ð h e n n a r sögn líta þó fleiri á tjörnina sem matarkistu, meðal ann- ars hundar, kettir og svo mávar sem veigra sér ekki við hremma fiskana um leið og færi gefst. „Þeirra vegna þurftum við að breyta tjörninni, meðal ann- ars með því að skipta um dúk og dýpka hana svo þeir ættu sér eitt- hvert skjól.“ Þ ó t t e k k i hafi alltaf geng- ið átakalaust fyrir sig að viðhalda lífinu í tjörninni, segir Guðrún ánægjuna ofar öðru. „Til að mynda fyllist garður- inn stundum af krökk- unum úr nágrenn- inu sem fá að koma hingað með vini sín til að skoða hana og fiskana. Aðdráttaraflið er mikið bæði fyrir menn og dýr. Hún hefur gert heilmikið fyrir okkur.“ - rve Veitir okkur ómælda gleði Guðrún segir sjálfsagt mál að taka á móti gestum sem vilja skoða fiskana, en þeir búi sannarlega vel. Meðal annars gangi út í tjörnina vatnsslanga í trjádrumbi sem haldi vatninu ávallt fersku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.