Fréttablaðið - 29.05.2009, Page 39
FÖSTUDAGUR 29. maí 2009
Nú er unnið að afmælisriti um Lágafellskirkju, sem
átti 120 ára afmæli fyrr á þessu ári. Af þeim sökum
er sóst eftir gömlum myndum af utan- og innan-
verðri kirkjunni, ekki síst frá árinu 1956 þegar hún
var stækkuð.
Vafalaust hafa slíkar myndir, ef til eru, verið
teknar við athafnir í kirkjunni, svo sem skírn,
fermingu, brúðkaup eða jarðarför, og gætu því
leynst í myndasöfnum viðkomandi fjölskyldna.
Það væri umsjármönnum hins fyrirhugaða
afmælis rits mikill akkur ef myndir af þessu tagi
fyndust og leyfð yrðu afnot af þeim í þessu sam-
hengi.
Vinsamlega hafið samband við: Birgi D. Sveins-
son í síma 566 6174 eða með því að senda póst á net-
fangið birgird@ismennt.is. Nú, eða með því að hafa
samband við Sigurð Hreiðar í síma 566 6272 eða
senda póst á netfangið auto@simnet.is.
Silfurmerki Stangaveiðifélags
Reykjavíkur voru afhent á sjötíu
ára afmælishátíð félagsins fyrir
skömmu. Hefð er fyrir því að fyrr-
verandi stjórnarmönnum SVFR sé
veitt silfurmerki fyrir vel unnin
störf og að þessu sinni voru Art-
hur Bogason og Loftur Atli Eiríks-
son heiðraðir. Að auki var Sigurði
Guðjónssyni, forstjóra Veiðimála-
stofnunar, veitt silfurmerki sem
þakklætisvottur fyrir gæfuríkt
samstarf stofnunarinnar og SVFR
í gegnum tíðina.
Þeir Loftur Atli og Arthur eru
fyrrverandi stjórnarmenn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur; Arthur
lét af störfum árið 2003 en Loftur
gegndi stjórnarmennsku til ársins
2007.
Sigurður Guðjónsson hefur átt
langt og gæfuríkt samstarf við
stangaveiðimenn og Stangaveiði-
félag Reykjavíkur í starfi sínu hjá
Veiðimálastofnun.
Frétt af www.svfr.is
Þremur veitt silfurmerki SVFR
VEL UNNIN STÖRF Guðmundur Stefán Maríasson, formaður SVFR, Sigurður Guðjóns-
son, Loftur Atli Eiríksson og Arthur Bogason. MYND/ÞORSTEINN ÓLAFS
Útsölustaðir.:
Hagkaup, útsölustaðir um land allt., Lyfja, útsölustaðir um land allt , Fjarðarkaup, Versl.. Einars Ólafssonar, Akranesi,
Blómsturvellir, Hellissandi, Kaupfélg V-Húnvetninga, Hvammstanga. Skagfi rðingabúð, Heimahornið, Stykkishólmi, Palóma,
Grindavík. Efnalaug Vopnafjarðar.
NÝTT
Sloggi fyrir herrana
2 stk í pk
kr. 2990
Benidorm
- Allt innifalið*
sumarferdir.is
...eru betri en aðrar
Hotel Flamingo
ALLT INNIFALIÐ*
Verð frá:93.326kr.
Brottför 20 júní í viku í íbúð með 1
svefnherbergi fyrir 2 fullorðna og 2 börn.
* Morgunverður, hádegisverður og
kvöldverður með innlendum drykkjum.
Snarl milli mála, kökur og kaffi og ís fyrir
alla. Barnadagskrá er bæði um daginn og
á kvöldin.
Í TILEFNI AFMÆLISINS Leitað er að myndum af kirkjunni fyrir
afmælisrit sem verður gefið út um hana á árinu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Leita að myndum úr Lágafellskirkju