Fréttablaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 29. maí 2009 25
Meg White, trommari rokkdúetts-
ins The White Stripes, hefur
gengið í hjónaband með unnusta
sínum Jackson Smith. Hann er
sonur söngkonunnar Patti Smith
og gítarleikarans sáluga Fred
„Sonic“ Smith úr rokksveitinni
MC5.
Athöfnin fór fram í Nashville
á heimili Jacks White, hins með-
lims The White Stripes og fyrr-
verandi eiginmanns Meg. Þau
voru gift í fjögur ár en skildu
árið 2000. Jack Lawrence, bassa-
leikari The Raconteurs og The
Dead Weather, sem eru hliðar-
verkefni Jack White, gifti sig
einnig við sama tækifæri. The
White Stripes hefur verið í fríi
undanfarin tvö ár en hyggur á
tónleikahald á næstunni.
Meg White í
hjónaband
MEG WHITE Trommari rokkdúettsins The
White Stripes hefur gengið í hjónaband.
Munir úr eigu hinna látnu ofur-
stjarna Elvis Presley og Marilyn
Monroe verða boðnir upp í Las
Vegas í lok júní. Á meðal þeirra
eru kvittanir fyrir áfengiskaup-
um frá Monroe og pillubox úr
eigu Presley.
Einnig verður til sölu slopp-
ur, sem sagður er síðasta flíkin
sem Monroe klæddist áður en
hún dó. Hefur hann verið verð-
lagður á sex þúsund dollara, eða
um 750 þúsund krónur. Einnig
verða til sölu tveir múrsteinar
úr húsi Monroe í Kaliforníu og
nokkrar ljósmyndir af leikkon-
unni goðsagnar kenndu.
Selja slopp
og pillubox
MARILYN MONROE Munir úr eigu leik-
konunnar verða boðnir upp í Las Vegas
í lok júní.
Michael Lohan, faðir leikkonunnar Lindsay Lohan, er
ekkert sérstaklega orðvar maður enda er hann grun-
aður um að hafa hótað unnustu sinni lífláti. Lohan
fer heldur ekkert í kringum hlutina þegar kemur að
dóttur hans, því nú hefur Michael lýst því yfir að ef
Lohan snúi aftur í faðm fyrrverandi kærustu sinnar,
Samönthu Ronson, hverfi stjarna hennar eins og dögg
fyrir sólu. Michael lýsti jafnframt yfir ánægju sinni
með þá ákvörðun dóttur sinnar að halda sig fjarri
plötusnúðnum. Þetta kemur fram í New York Post.
„Lindsay býðst nú annað tækifæri til að glæða
feril sinn lífi. En ef hún snýr aftur til Samönthu er sá
möguleiki fyrir bí,“ sagði Michael við fjölmiðlamenn,
skömmu eftir að hann yfirgaf dómsal í New York til
að hlýða á ákærur er varða líflátshótunina.
Michael virðist hafa svör á reiðum höndum því
hann var ekki lengi að útskýra hvers eðlis það mál
væri, allt væri þetta byggt á misskilningi sem of
flókið mál væri að fara út í. „Ég er alveg sannfærður
um að málið verður látið niður falla,“ sagði Michael
kampakátur.
Lohan á heima fjarri Ronson
NÝTT UPPHAF Lindsay Lohan reynir nú að koma ferli sínum
af stað og pabbinn telur lykilinn að því liggja í fjarveru frá
Samönthu Ronson.
Kiefer Sutherland ræddi við
bresku útgáfuna af Elle um sam-
band sitt og Juliu Roberts. Eins og
frægt er orðið stakk Julia leikar-
ann af, nánast uppi við altarið, og
skildi hann eftir í sárum. Hún gaf
þá skýringu að Kiefer hefði bæði
verið ungur og heimskur en nú
hefur stjarnan úr sjónvarpsþátt-
unum 24 svarað fyrir sig.
Í viðtalinu við Elle segir Kief-
er nefnilega að eftir að fjarað hafi
undan ástarlífi þeirra hafi sam-
bandið í raun og veru dáið. Hann
viðurkennir þó að hann hafi fund-
ið fyrir mikilli hrifningu en hún
hafi fljótlega horfið. „Ég vildi reka
hestabúgarð í Montana en hún var
vinsælasta leikkona heims. Við
höfðum ólíkan skilning á því hvað
við vildum. En við vorum líka
miklu meiri vinir en elskendur,“
sagði Kiefer.
Lostalítið líf
ENGIN ÁSTRÍÐA Ástæðan fyrir sam-
bandsslitum Kiefer Sutherland og Juliu
Roberts var sú að ástríðuna vantaði.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
KLÆÐIR ÞIG VEL!