Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 05.06.2009, Qupperneq 4
4 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR Stærri skref verða ekki tekin í lækkun stýrivaxta meðan ekki liggur fyrir áætlun um tilhögun ríkisfjármála. Þetta kom fram á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabanka Íslands í gær. Kynnt var eins pró- sentustigs lækkun stýrivaxta, sem nú standa í tólf prósentum. Við síðustu vaxtaákvörðun í maíbyrjun voru vextir lækkaðir um 2,5 prósentustig og boðað að lækkun yrði vegleg næst. Í milli- tíðinni hefur komið fram að sendi- nefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) var mótfallin vaxtalækkun nú, þar sem hún gæti ógnað stöðug- leika krónu. Forsvarsmenn Seðlabankans taka þó fyrir að AGS hafi ráðið nokkru um ákvörðunina, heldur þróun efnahagsmála, þótt peninga- stefnunefndin sé um margt sam- mála mati sjóðsins. Þannig hafi verið slakað verulega á peninga- legu aðhaldi með verulegri lækkun vaxta eftir síðustu ákvörðun um stýrivexti. Þar með hafi verið náð árangri sem stefnt hafi verið að. Um leið snúa ákvarðanir peninga- stefnunefndar í vaxtamálum að því að styðja við krónuna, að því er fram kom í máli Arnórs Sighvats- sonar aðstoðarseðlabankastjóra og Sveins Haralds Øygard seðla- bankastjóra. Þá áréttuðu seðlabankastjórarn- ir að til stæði að aflétta gjaldeyr- ishöftum að hluta síðar á þessu ári og ákvarðanir í vaxtamálum þyrfti að miða við það. Aukinheldur sagði Arnór að með stærri skrefum í vaxtalækkunum yrði til meiri hvati til þess að fara í kring um gjald- eyrishöftin. „Við erum að reyna að byggja upp traust, en mjög lítið fer fyrir því í dag. Stærstu vanda- málin því tengd er að á alþjóðleg- um mörkuðum ríkir ekki traust á að ríkissjóður fái staðið við skuld- bindingar sínar. En það mun hins vegar koma í ljós síðar á árinu að ríkissjóður getur það,“ segir hann, þótt ekki liggi það ljóst fyrir nú meðan ósamið er um ákveðin atriði. „Þegar liggja fyrir áætl- anir í ríkisfjármálum þá dregur úr þessari óvissu og þá minnkar það vaxtabil sem við þurfum, en á þessari stundu liggur ekki fyrir hvert það vaxtabil verður.“ Í yfirferð sinni um helstu hag- stærðir lýsti Þórarinn G. Péturs- son, aðalhagfræðingur Seðlabank- ans, raunar vonbrigðum með að utanríkisviðskipti hefðu ekki stutt við gengið með sama hætti og von- ast hefði verið til. Þannig væri gengi krónunnar núna um tveim- ur prósentum veikara en eftir síðustu stýri- vaxtaákvörðun og átta prósent- um veikara en bankinn hefði gert ráð fyrir í síðustu spá. Ástæður óhagstæðrar þróunar utanríkisviðskipta segir hann svo skrifast á alþjóðlegu fjár- málakreppuna. Þórarinn segir þó mikilvægt að hafa í huga að magn útflutnings hafi haldist í horfinu. „Efnahagskreppan birt- ist okkur fyrst og fremst í lækk- un á afurðaverði sem gefur okkur von um að utanríkisviðskipti geti batnað um leið og markaðir ná sér á strik.“ Þórarinn segir ekki ástæðu til að hafa ýkja miklar áhyggjur af heldur hægari hjöðnun verð- bólgunnar. „Þótt hún hafi verið í hærri kantinum þá breytir það ekki stóru myndinni,“ segir hann og kveður spá um að verð- bólga verði komin að 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans á fyrri hluta næsta árs. Verðbólga nú sé gengisdrifin og þá hafi maka- skiptasamningar á fasteigna- markaði áhrif til hækkunar sem tæpast séu marktæk. Um leið áréttar Þórarinn að aukning verðbólgu vegna skattahækk- ana, sem komið gæti til á næst- unni, kalli ekki á bein peninga- stefnuviðbrögð. olikr@frettabladid.is STÝRIVAXTALÆKKUN SEÐLABANKANS ostur.is  Ríkið þarf að eyða óvissu Stærri skref í lækkun stýrivaxta verða ekki tekin fyrr en fyrir liggja ákvarðanir um aðhaldsaðgerðir í ríkis- fjármálum á árinu og stefna til miðlungslangs tíma. Náðst hefur árangur við lækkun bankavaxta. Afnám gjaldeyrishafta síðar á árinu kallar á meiri varfærni í ákvörðunum Seðlabankans. ÞÓRARINN G. PÉTURSSON Viðvarandi gjaldeyrishöft eru ekki valkostur að mati stjórnenda Seðlabankans. Arnór Sighvatsson aðstoðar- seðlabankastjóri bendir á að bæði minnki virkni slíkra hafta með tímanum og auk þess sem höft til lengri tíma skaði uppbyggingu, því erfiðara verði að afla fjár til arðbærra framkvæmda. Þar við bætist að höftin séu brot á ákvæðum margvíslegra alþjóðasamninga sem landið hafi undirgengist, svo sem vegna Evr- ópska efnahagssvæðisins. Þórarinn G. Pétursson, aðalhag- fræðingur bankans, bætir við að í umhverfi gjaldeyrishafta þyrfti líka að byggja upp efnahagslífið á innlendum sparnaði einvörðungu. „Og það myndi þýða að uppbygg- ingin hér yrði enn hægari en ella,“ segir hann. - óká Álit stjórnenda Seðlabankans: Viðvarandi höft ekki valkostur Í SEÐLABANKANUM Seðlabankastjórar og aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands kynntu í gær stýrivaxtaákvörðun og rökstuddu hana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BANKASTJÓRAR Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kynntu yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON INNLÁNSVAXTASTIGIÐ KEMUR Á ÓVART Það virtist koma sérfræðingum á fjár- málamarkaði á óvart að Seðlabanki Íslands skyldi halda innlánsvöxtum sínum óbreyttum í 9,5 prósentustig- um, þótt stýrivextir væru lækkaðir um eitt prósentustig. Greining Íslands- banka bendir á að innlánsvaxtastig Seðlabankans skipti máli vegna þess hve mikið sé hér af lausu fé í umferð. Bendir bankinn á að með ákvörðun sinni í gær breyti peningastefnunefnd Seðlabankans vöxtum sem litlu skipti um vaxtastigið í hagkerfinu, en haldi þeim vöxtum óbreyttum sem hvað mestu máli skipti. Með þessu hlíti nefndin tilmælum AGS. Spurningar eru sagðar vakna um sjálfstæði peningastefnunefndarinnar vegna þessa. „Svo virðist að minnsta kosti að peningastefnunefnd bankans hafi keypt rök AGS fyrir óbreyttum vöxtum en þau rök snúa aðallega að mikilvægi þess að raska ekki stöðugleika krónunnar við núver- andi aðstæður í hagkerfinu,“ segir í skrifum Íslandsbanka. Hagfræðideild Landsbankans segir í vefriti sínu að vaxtaákvörðunin í gær þýði í reynd að vaxtakostnaður lánastofnana haldist óbreyttur, sem undirstriki að peningastefnunefndin telji ekki skilyrði til slökunar í kerfinu. Þverpólitísk vonbrigði yfir lítilli stýrivaxtalækkun komu fram á Alþingi í gær. Þingmenn allra flokka – utan Borgarahreyfingar- innar – lýstu sárum vonbrigðum með að vextirnir hefðu aðeins lækkað í tólf prósent. Stjórnarandstæðingar stóðu klárir á ástæðunni: ríkisstjórnin hefði ekki tekið á ríkisfjármálun- um. Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðis- flokki, sagði að auk þess að hafa ekki kynnt raunhæfa áætlun í ríkis- fjármálum hefðu ríkisstjórninni verið mislagðar hendur í að koma saman bankakerfinu. Tryggvi Þór Herbertsson kallaði hátt vaxtastig aðgerðaleysiskostnað og Pétur Blöndal sagði ákvörðunina hafa valdið sér hryggð. Gunnar Bragi Sveinsson, Fram- sóknarflokki, sagði ákvörðunina áfall og að ríkisstjórnin væri að bregðast. Birkir J. Jónsson sagði ástandið óviðunandi og Höskuld- ur Þórhallsson sagði lægri vexti koma öllum til góða. Björgvin G. Sigurðsson, Sam- fylkingunni, sagði ófært að lækka vexti á kostnað gengisstöðugleik- ans og þar sem gengið hefði ekki styrkst væri varfærnisleg vaxta- lækkun skiljanleg. Árni Þór Sigurðsson, VG, lýsti vonbrigðum með litla lækkun en taldi málflutning stjórnar- andstæðinga ómaklegan. Við værum að súpa seyðið af efnahags- hruninu, hruni frjálshyggjunnar og slæmri efnahagsráðgjöf fyrri ríkis stjórnar. - bþs Þingmenn lýsa vonbrigðum en meta ástæðurnar með misjöfnum hætti: Björgvin G. skilur vaxtaákvörðunina FRÁ ALÞINGI Vonbrigðum og hryggð var lýst á þingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 26° 13° 21° 15° 13° 13° 17° 21° 14° 14° 22° 19° 16° 30° 15° 20° 25° 14° Á MORGUN Hæg breytileg átt. SUNNUDAGUR Hæg breytileg átt. 6 7 6 15 16 11 9 10 8 8 MEIRI LÍKUR Á ÚRKOMU Ekkert lát er á hæg- viðrinu á landinu og verður svo fram í næstu viku. Dagurinn í dag er að því leyti frábrugðinn frá þeim síðustu að úrkomu- líkur eru meiri. Hins vegar sýnist mér að á Austurlandi verði lengst af bjartviðri og þurrt. Annars staðar má búast við lítilsháttar vætu en ég legg áherslu á að hún verður ekki mikil. 12 11 9 12 13 13 14 9 10 10 8 5 3 3 5 3 3 6 5 3 6 3 12 13 Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur Mikil vonbrigði með vexti Ákvörðun Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti ekki meira en raun ber vitni veldur miklum vonbrigðum og gengur þvert á markmið viðræðna um stöðugleikasáttmála, er haft eftir Kristni Erni Jóhannessyni, formanni VR, á heimasíðu félagsins í gær. Ákvörðunin auki á óvissu í yfirstand- andi kjaraviðræðum. STRÝRIVAXTAÁKVÖRÐUN % GENGIÐ 04.06.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 211,2067 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,54 123,12 200,55 201,53 173,48 174,46 23,289 23,425 19,430 19,544 16,020 16,114 1,2695 1,2769 189,96 191,10 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.