Fréttablaðið - 05.06.2009, Side 42
30 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Dregið var í 32 liða úrslit VISA-bikarkeppni
karla í gær. Í hattinum voru þau 20 lið sem
komust í gegnum fyrstu tvær umferðirnar
og í þann hóp bættust Pepsi-deildarliðin
tólf. Í fyrsta sinn í sögu bikarkeppninnar
komst utandeildarlið áfram í 32 liða úrslitin
en það er liðið Carl. Það fékk ærið verkefni
í næstu umferð því það dróst gegn Íslands-
meisturum FH.
Carl er skipað mörgum gömlum kemp-
um úr íslensku knattspyrnulífi. Þjálfari
liðsins, forseti og vítaskytta er Sigurður
Ágústsson og meðal leikmanna má nefna
Finn Kolbeinsson, Kristin Tómasson,
Gunnar Pétursson, Sverri Sverrisson, Rút
Snorrason, Þorstein Sveinlaugsson, Þorvald
Makan og Tómas Inga Tómasson. Þá er
Eyjólfur Sverrisson sérstakur tæknilegur
ráðgjafi þjálfara.
„Ég myndi segja að þetta gæti
hugsanlega orðið erfitt verkefni,“ sagði
Tómas Ingi í léttum dúr. „Ég tel að FH
sé nefnilega með ágætt lið.“
Hann neitaði því ekki að þetta væri
draumadráttur. „Við vildum annað
hvort fá FH eða KR. Við fengum svo
besta liðið á Íslandi í dag, það er
ekki flókið.“
Hann segir að liðsmenn Carl
fari óhræddir í leikinn. „Við förum
í leikinn til að vinna hann. Við
höfum verið í sambandi í gegn-
um tölvupóst þar sem við náum
ekki að æfa oft saman en við
ætlum að æfa minnst tvisvar
fyrir þennan leik. Þá munum
við leggja áherslu á vítaspyrn-
urnar. Stefnan er að halda
þeim í núllinu og klára þá í vítakeppn-
inni. Fótbolti er jú einföld íþrótt.“
Hann segir þó að varnarleikur sé ekki
sterkasta hlið Carl. „Við kunnum ekki
að spila í vörn. Við sækjum yfirleitt
á minnst sjö leikmönnum.“
Carl fékk heimavallarréttinn en
vill færa leikinn í Kaplakrika og
spila hann á þjóðhátíðardaginn,
17. júní. „Allur peningurinn sem
kemur til okkar í þessum leik fer
til Umhyggju, félags langveikra
barna,“ sagði Tómas Ingi og hvatti
því alla til að koma á leikinn og
leggja um leið góðu málefni lið.
Sjálfur spilaði Tómas síðast
„alvöru“ leik fyrir sjö árum. „Mig
minnir að ég hafi verið alveg þræl-
góður.“
DREGIÐ Í 32 LIÐA ÚRSLIT VISA-BIKARKEPPNI KARLA Í GÆR: UTANDEILDARLIÐIÐ CARL MÆTIR FH
Halda þeim í núllinu og taka þá í vítakeppninni
32 LIÐA ÚRSLITIN
Í VISA-bikarkeppni karla
Keflavík - Einherji Carl - FH
Grindavík - ÍA Grótta - KR
Hvöt - Breiðablik Selfoss - Höttur
Þór - Víkingur Ó. Fylkir - Stjarnan
Valur - Álftanes KA - Afturelding
Víðir - Þróttur R. ÍBV - Víkingur R.
Fram - Njarðvík Reynir S. - KV
Fjölnir - HK Haukar - Fjarðabyggð
Leikirnir fara fram 17. og 18. júní
> Atli orðaður við Hibernian
Atli Eðvaldsson var nokkuð óvænt orðaður við þjálfara-
stöðuna hjá skoska úrvalsdeildarfélaginu Hibernian.
Hann staðfesti í samtali við skoska blaðið
Daily Record að hann hefði vissulega
áhuga á starfinu. Atli útskrifaðist á dög-
unum með UEFA-Pro þjálfaragráðu sem
gerir honum kleift að þjálfa hvar sem
er í heiminum. Atli er þó ekki einn
um hituna því aðrir stjórar hafa
verið orðaðir við stöðuna. Atli
hefur þjálfað mörg félög hér á
landi sem og íslenska landsliðið.
HANDBOLTI Lokaspretturinn til
Austurríkis fer fram í þessum
mánuði en þá leika strákarnir
okkar fjóra leiki. Liðið er í efsta
sæti síns riðils en í ljósi ótrúlegra
affalla í hópnum er ljóst að það
verður við ramman reip að draga
og ekki sjálfgefið að liðið nái þeim
stigafjölda sem þarf til að komast
á EM.
„Aðstæðurnar fyrir þessa leiki
eru afar sérstakar og ég held að
aldrei áður í sögunni hafi lands-
liðið lent í eins miklum áföllum og
núna. Það hefur tekið sinn tíma að
púsla saman þessum hópi sem þó
gæti tekið breytingum. Ef menn
eru ekki tilbúnir þá þarf að skipta
þeim út,“ segir Guðmundur við
Fréttablaðið.
Hann er án fjölda lykilmanna og
svo eru í hópnum menn sem eru
annaðhvort meiddir eða nýstignir
upp úr meiðslum og algjört spurn-
ingarmerki hversu mikið þeir
geta beitt sér. Það vekur sérstaka
athygli að sjá þá Snorra Stein
Guðjónsson og Aron Pálmarsson í
hópnum. Snorri er enn í endurhæf-
ingu og átti ekki að vera tilbúinn
fyrr en í lok sumars og Aron fór í
aðgerð fyrir skömmu.
„Það kemur mér líka á óvart að
sjá Snorra í hópnum. Endurhæf-
ingin hefur gengið vel en auðvit-
að er ákveðin óvissa í kringum
hann. Samt eru vísbendingar um
að hann sé að jafna sig. Við sjáum
hvernig honum gengur á æfingum
en hann er þar á sínum hraða. Það
er svipuð staða á Aroni því þeir
eru báðir að stíga sín fyrstu skref
þessa vikuna,“ segir Guðmundur.
Alexander Petersson er einnig
í hópnum nýkominn til baka eftir
átta mánaða fjarveru. Annar harð-
jaxl, Guðjón Valur Sigurðsson, er
einnig með þó svo hann sé meidd-
ur og eigi að fara í aðgerð sem
fyrst.
„Guðjón ber sig vel og það er
mikil pressa á að koma honum í
aðgerð sem fyrst. Hann á að spila
þrjá fyrstu leikina af þessum fjór-
um,“ sagði Guðmundur.
Heiðmar Felixson er kominn í
hópinn á ný en hann var þar síð-
ast á HM í Portúgal árið 2003 en
þá var Guðmundur einmitt einnig
þjálfari landsliðsins.
„Heiðar hefur verið að glíma við
að það eru aðrir frábærir menn
sem spila í hans stöðu. Hann hefur
verið að spila vel í Þýskalandi og
ég tel að hann geti hjálpað okkur á
báðum endum vallarins.“
Ólafur Stefánsson ákvað að gefa
ekki kost á sér þrátt fyrir vand-
ræðin.
„Ég hef talað í þrígang við Ólaf.
Hann ætlar að standa við það
að taka frí í eitt ár en ég vonast
til þess að hann endurskoði sína
ákvörðun eftir þann tíma. Ég virði
samt ákvörðun hans og tel að allir
eigi að gera það. Ólafur hefur
gefið íslenskum handbolta ótrú-
lega mikið.“ henry@frettabladid.is
Aldrei lent í álíka áföllum
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi í gær 21 manns hóp fyrir
lokasprettinn í undankeppni EM. Hópurinn getur enn tekið breytingum enda
margir leikmenn í hópnum tæpir vegna meiðsla eða nýbyrjaðir að æfa á ný.
MIKIÐ UNDIR Guðmundur Guðmundsson á erfitt og krefjandi verkefni fyrir höndum
á næstu vikum. Sæti á EM í Austurríki er í húfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMLANDSLIÐSHÓPURINN
Markverðir:
Björgvin P. Gústavsson Schaffhausen
Hreiðar L. Guðmundsson Emsdetten
Aðrir leikmenn:
Vignir Svavarsson Lemgo
Andri Stefan Fyllingen
Guðjón Valur Sigurðsson RN Löwen
Snorri Steinn Guðjónsson GOG
Heiðmar Felixson Burgdorf
Alexander Petersson Flensburg
Sverre Jakobsson HK
Róbert Gunnarsson Gummersbach
Ingimundur Ingimundarson Minden
Þórir Ólafsson Lubbecke
Árni Þór Sigtryggsson Akureyri
Ragnar Óskarsson Dunkerque
Aron Pálmarsson Kiel
Rúnar Kárason Fuchse Berlin
Stefán Baldvin Stefánsson Fram
Kári Kristjánsson Amicitia Zürich
Sigurbergur Sveinsson Haukar
Fannar Friðgeirsson Valur
Freyr Brynjarsson Haukar
Leikirnir sem Ísland á eftir:
10. júní Belgía-Ísland
14. júní Ísland-Noregur
17. júní Ísland-Makedónía
21. júní Eistland-Ísland
NUDD
Verð frá
1690.-
Selásbraut 98
110 Árbæ S:577 3737
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
atvinnukylfingur úr GKG, byrj-
aði vel á Opna velska mótinu í
golfi í gær þegar hann lék fyrsta
hringinn á tveimur höggum undir
pari Celtic Manor-vallarins.
Birgir Leifur lauk fyrsta
keppnisdeginum í 19.-36. sæti
en meðal keppenda í mótinu eru
kylfingar á borð við Colin Mont-
gomerie og Paul Lawrie. - óþ
Birgir Leifur Hafþórsson:
Byrjaði vel á
Opna velska
BIRGIR LEIFUR Fann sig vel á Opna
velska mótinu í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ísland og Holland mæt-
ast í undankeppni HM 2010 á
Laugardalsvelli á morgun. Sigur
tryggir hollenska liðinu sæti í
sjálfri úrslitakeppninni í Suður-
Afríku á næsta ári.
Holland er með fullt hús
stiga eftir fimm leiki en Mark
van Bommel, fyrirliði Bayern
München, á von á erfiðum leik
á morgun og varar menn við að
vanmeta Íslendinga.
„Ég man að Ísland gerði jafn-
tefli við Spán heima fyrir tveimur
árum,“ sagði van Bommel í sam-
tali við hollenska fjölmiðla í gær.
„Þetta verður alls ekki auðveld-
ur leikur fyrir okkur en við vilj-
um endilega tryggja okkur sæti
á HM eins fljótt og mögulegt er,“
segir van Bommel. - esá
Hollendingar og HM 2010:
Farseðillinn
klár með sigri
EKKERT VANMAT Mark van Bommel í
baráttunni við Emil Hallfreðsson.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES