Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 12
10. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
AUSTURRÍKI Elisabeth Fritzl, sem
haldið var fanginni af föður sínum
í 24 ár, hefði getað fundist mun
fyrr ef austurrískum yfirvöldum
hefði ekki yfirsést fjöldi vísbend-
inga. Þetta eru niðurstöður blaða-
konunnar Stefanie Marsh, sem
hefur rannsakað málið og skrifað
um það bók.
Elisabeth hvarf á ágústdegi árið
1984. Þegar móðir hennar og syst-
ur komu heim um miðjan dag var
hún horfin. Josef faðir hennar
hafði verið heima og tilkynnti lög-
reglu um hvarf-
ið. Hann sagði
dóttur sína lík-
lega hafa geng-
ið í sértrúar-
söfnuð, en veitti
engar sannanir
fyrir því. Nán-
ast engir slíkir
söfnuðir fyrir-
finnast í Austur-
ríki en lögregla
trúði þó sögu Josefs. Þá höfðu
félagsráðgjafar vitneskju um að
Elisabeth hefði strokið að heiman
tveimur árum áður en hún hvarf.
Þegar hún kom til baka var hins
vegar aldrei rætt við hana um
ástæður þess.
Mánuði eftir að Elisabeth var
lokuð inni neyddi Josef hana til
að skrifa bréf sem hann svo sendi
til sjálfs sín og sýndi lögreglunni.
Bréfið var aldrei rannsakað, frekar
en hin bréfin sem hún sendi næstu
árin, þrátt fyrir að eitt þeirra hafi
verið póstlagt í nágrenni við bæinn
sem fjölskyldan bjó í.
Níu árum eftir að Elisabeth
hvarf var barn hennar skilið eftir
fyrir utan hús foreldra hennar
ásamt bréfi. Þó ákvað lögreglan
að leita hennar ekki. Rúmu ári
síðar birtist annað barn og Rose-
marie, móðir Elisabeth, fann það.
Hún sagði félagsráðgjöfum þá
frá því að stuttu síðar hefði sím-
inn á heimilinu hringt. Elisabeth
var í símanum og baðst afsökunar
á að hafa skilið barnið eftir. Rose-
marie heyrði að um upptöku var
að ræða og skellti á. Þegar síminn
svo hringdi aftur spiluðust skila-
boðin á ný. Að auki sagði Rose-
marie frá því að þau hjónin hefðu
nýlega skipt um símanúmer, en
enginn vissi enn um nýja númer-
ið. Enn sáu yfirvöld ekki ástæðu
til rannsóknar. Eftir því sem tím-
inn leið eyddi Josef sífellt meiri
tíma í kjallaranum. Nágrannar
sáu hann fara með matvörur, raf-
tæki og húsgögn niður í kjallar-
ann. Að auki var það vel þekkt í
hverfinu að hann hefði verið sak-
felldur fyrir nauðgun.
Það var ekki fyrr en á síðasta
ári, þegar elsta dóttir Elisabeth
og Josefs varð lífshættulega veik
og flutt á spítala, að þar vöknuðu
grunsemdir lækna um að ekki
væri allt með felldu. Ef það hefði
ekki gerst væri allt eins líklegt að
málið væri ekki enn komið upp á
yfirborðið.
thorunn@frettabladid.is
Yfirvöld hundsuðu
fjölda vísbendinga
Hægt hefði verið að finna Elisabeth Fritzl, sem var haldið fanginni í Austurríki
í 24 ár, mun fyrr. Yfirvöld gerðu síendurtekin mistök og yfirsást fjöldi vísbend-
inga á löngu tímabili. Þetta eru niðurstöður nýrrar bókar um málið.
FRITZL-HÚSIÐ Hús fjölskyldunnar í Amstetten, þar sem Josef Fritzl hélt dóttur sinni
fanginni í 24 ár og átti með henni sjö börn. NORDICPHOTOS/AFP
ORKUMÁL „Ég lít á það sem gríð-
arlega viðurkenningu að Lands-
virkjun og háskólasamfélag-
ið viðurkenni ágæti þessarar
aðferðafræði,“ segir Axel Pétur
Axelsson hjá Íslenska orkufélag-
inu. Keilir, miðstöð vísinda, fræða
og atvinnulífs og Íslenska orkufé-
lagið hafa undirritað þróunar- og
rannsóknarsamning vegna bún-
aðar og aðferðafræði til vinddæl-
ingar. Landsvirkjun hefur lýst yfir
velvilja til verkefnisins og áfram-
haldandi samstarfs.
Markmiðið með vinddælingu er
að hækka lágmarks vatnshæð uppi-
stöðulóna fallvatnsvirkjana og auka
heildarnýtingu. Með vinddælingu
mun verða einnig mögulegt að búa
til ný uppistöðulón og opnast með
því fleiri virkjunarmöguleikar.
Axel hóf að velta þessum málum
markvisst fyrir sér árið 2007. „Ég
rannsakaði lónin hjá Landsvirkjun
og komst að því að vorin eru mjög
krítískur tími, þegar lónin lækka
og þeir geta ekki tryggt orku nema
á lægri mörkum. Á sama tíma er
vindurinn hvað mestur, og ég hafði
því samband og spurði hvort þeir
hefðu áhuga á að hækka þetta lág-
mark með vinddælum. Í ljós kom að
Landsvirkjun hafði kannað hvort
hægt væri að nota rafmagn til að
dæla, en kveiktu strax á hugmynd-
inni um vinddælur og sögðust rann-
saka hana betur,“ segir Axel.
Aðferðafræðin verður þróuð
nánar í kjölfar rannsóknarsamn-
ingsins við Keili. - kg
Íslenska orkufélagið og Keilir undirrita þróunar- og rannsóknarsamning:
Rannsaka vinddælingu
VINDDÆLING Markmiðið er að hækka
lágmarks vatnshæð uppistöðulóna
fallvatnsvirkjana. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
MENNING Auglýsingaherferðir
ÁTVR (Vínbúðarinnar) kostuðu
rúmlega 20 milljónir á árinu 2008.
Í ár er gert ráð fyrir 14-15 millj-
ónum í auglýsingaherferðir. Áætl-
að er að Bíddu-herferðin, þar sem
drengur er beðinn um að bíða með
að kaupa áfengi þar til hann verð-
ur tvítugur, kosti um 10 milljónir.
„Hún er tiltöluleg einföld í fram-
leiðslu en birtingarnar eru dýrar.
Við erum hógvær í þessum her-
ferðum. Höfum verið í herferðum
með Umferðarstofu og þá erum við
að nýta auglýsingarnar í 2-3 ár,“
segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri ÁTVR.
Í heildarstefnu fyrirtækisins
kemur meðal annars fram að fyr-
irtækið hafi hagkvæmni að leiðar-
ljósi. Einnig að fyrirtækið stuðli að
ábyrgri neyslu.
„Það skýtur mjög skökku við
að ÁTVR eyði peningum í auglýs-
ingar,“ segir Birgir Ármannsson
alþingismaður. Ástæðuna segir
hann að fyrirtæki sem eigi að
gegna forvarn-
arhlutverki sé
einnig að huga
að viðskipta-
sjónarmiðum í
hinum daglega
rekstri.
„ÁTVR hefur
þá sérstöðu á
markaði að vera
einokunarversl-
un og þarf ekki
að stunda neina
auglýsingastarfsemi að neinu
marki nema kannski ef breyting-
ar eru að verða á afgreiðslutíma.
Varðandi forvarnarstarfsemi er ég
þeirrar skoðunar að hún eigi frek-
ar að heyra undir Lýðheilsustöð en
einokunarverslunina,“ segir Birg-
ir. - vsp
Auglýsingakostnaður ÁTVR nam um 20 milljónum á árinu 2008:
Bíddu kostar um 10 milljónir
BIRGIR
ÁRMANNSSON
BÍDDU Auglýsingin kostar um 10 millj-
ónir. Framleiðslan er ódýr en dýrastur er
birtingarkostnaður.
JOSEF FRITZL
Námsbraut á meistarastigi
Námsbrautir á grunnstigi
Vegna bilunar í vefvistunarkerfi
dagana 2. til 5. júní komust
umsóknir því miður ekki til skila.
Allir sem sóttu um nám hjá okkur þessa
daga eru því vinsamlegast beðnir að hafa
samband í síma 525 4444.