Fréttablaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN 10. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4
Ú T T E K T
Mikilvægast að hlúa að
litlu fyrirtækjunum
„Það er mikilvægt fyrir okkur
að halda fyrirtækjum gangandi
ef rekstrargrundvöllur er fyrir
hendi,“ segir Eiríkur Hilmarsson,
framkvæmdastjóri Vísindagarða
Háskóla Íslands, fyrrverandi að-
stoðarhagstofustjóri og einn eig-
enda Kaffitárs.
Eiríkur hélt erindi um upp-
byggingu Kaffitárs á málþingi
Viðskiptaráðs en það var í fyrsta
sinn í nítján ára sögu fyrirtækis-
ins sem hann gerir slíkt. Það kom
til af því einu að eiginkona hans
Aðalheiður Héðinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kaffitárs, var á
heimleið frá Gvatemala og gat
það ekki.
Eiríkur skrifaði nýverið grein
um mikilvægi þess að halda lífi
í fyrirtækjum í þeim tilgangi
einum að vernda störf. Í grein-
inni, sem hann skrifaði í félagi
við Gylfa Dalmann, segir að þótt
stór hluti starfa sé lagður niður á
hverju ári komi ný í þeirra stað
án inngripa stjórnvalda eða sér-
stakra aðgerða. Á miklum upp-
gangstímum og í harkalegri nið-
ursveiflu, líkt og nú, verði óvenju-
mikil endurnýjun á vinnumarkaði.
Hins vegar taki mun lengri tíma
að skapa ný störf með stofnun fyr-
irtækja en að halda fyrirtækjum
á lífi og skapa störf innan þeirra.
Í mikilli niðursveiflu þegar gjald-
þrot fjölda fyrirtækja blasir við
skipti máli að halda lífvænlegum
fyrirtækjum gangandi til að koma
í veg fyrir enn meira atvinnu-
leysi og enn dýpri niðursveiflu
sem getur endað í langvarandi
kreppu.
Eiríkur segir að ekki megi
ruglað saman sérhagsmunum
eigenda fyrirtækjanna, sem hafi
tapað áhættufénu sem þeir lögðu
til rekstursins, og hagsmunum
starfsmanna – jafnvel almenn-
ings.
„Almennt séð í atvinnulífinu er
rekstrarreikningur fyrirtækja í
góðu lagi. Þótt eigendurnir hafi
glatað öllu sínu geta fyrirtækin
lifað áfram undir nýjum eigend-
um. Þannig refsar markaðurinn
þeim sem taka of mikla áhættu.
Áhættan felst hins vegar í því að
búa til ný störf frá grunni,“ segir
hann og bendir á að þeir Gylfi
áætli að á bilinu átján til 27 þús-
und störf verði til í meðalári. Jafn
mörg glatast á sama tíma. Endur-
nýjunin sé því mikil.
Áhættan í slíkri endurnýjun er
hins vegar sú að laun í nýjum fyr-
irtækjum eru iðulega lægri en í
fyrirtækjum sem enn eru á lífi og
því ekki eins verðmæt. Svo kunni
að fara að frumkvöðlar, stofnend-
ur fyrirtækjanna, verði að taka á
sig kjaraskerðingu, jafnvel vinna
launalaust í einhvern tíma til að
koma „barni“ sínu yfir erfiðasta
hjallann.
„Ef maður rekur fyrirtæki
þar sem hægt er að einbeita sér
að kjarnarekstrinum þá vegnar
manni betur en ef maður starfar
í þannig umhverfi að stöðugt þarf
að glíma við erfiðan ytri ramma,
svo sem kvöðina að sýna fram á
að stjórn fyrirtækisins er með
hreint sakavottorð“ segir Eirík-
ur sem í erindi sínu á föstudag
fjallaði um allar þær hindranir og
freistingar sem þau Aðalheiður
stóðu frammi fyrir á fyrstu árum
rekstrarins – og gera enn.
Hagsmunir starfsfólks teknir fram yfir hagsmuni eigenda
Annar stofnenda Kaffitárs segir fyrirtækjum vegna betur þegar stjórnendur geta einbeitt sér að rekstrinum í stað ytri skilyrða.
„Þegar erfiðleikar líkir þeim sem nú
steðja að í íslensku efnahagslífi blasa við,
þá eykst hvatinn til að stofna ný, lítil fyr-
irtæki. Það er líklegt að slíkum fyrirtækj-
um muni fjölga mjög á næstunni,“ segir
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs.
Viðskiptaráð gaf í síðustu viku út skýrslu
um lítil og meðalstór fyrirtæki og blés til
málþings í tilefni af því þar sem málið var
rætt í þaula.
Hafdís Jónsdóttir, formaður Kvenna í at-
vinnurekstri og einn eigenda líkamsrækt-
arkeðjunnar World Class, stýrði málþing-
inu. Auk Finns og Eiríks, sem rætt er við
hér að neðan, voru á meðal fundargesta
þau Bogi Örn Emilsson, framkvæmda-
stjóri Skjals, og Christina Sommers, for-
maður Samtaka lítilla og meðalstórra fyr-
irtækja í Evrópu (e. European Small Bus-
iness Alliance), sem sem eru ein stærstu
og öflugustu samtök smærri fyrirtækja
álfunnar.
Sommers kynnti þá vitundarvakningu
sem verið hefur á meginlandi Evrópu upp
á síðkastið um mikilvægi lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja. Viðkvæðið þar síðustu
misseri hefur verið að skoða hvaða áhrif
löggjöf og ný reglusetning hefur á lítil á
meðalstór fyrirtæki. Reynt sé eftir megni
að vernda fyrirtækin og reglum því breytt
þeim til handa.
TÍMAMÓTAVERK
Skýrsla Viðskiptaráðs er tímamótaverk en
önnur eins könnun hefur aldrei verið gerð
hér á landi. Finnur bendir á að vinnuhóp-
ur Viðskiptaráðs hafi byrjað að skoða um-
fang fyrirtækjanna í íslensku efnahagslífi
á vordögum í fyrra. Í hópnum voru full-
trúar fyrirtækjanna.
Verkefnið fór hins vegar á ís þegar
efnahagslífið fór svo að segja á hliðina í
fyrrahaust. „En þetta er yfirborðið, fyrstu
skrefin,“ segir Finnur. „Tilgangurinn var
að skoða umfang reksturs smárra fyrir-
tækja, hlutverk þeirra til að búa fólki at-
vinnu og framlag þeirra til efnahagslífsins
almennt,“ segir hann og bendir á að kafað
verði dýpra í málið á næstunni þar sem
fleiri þættir í rekstrarumhverfi lítilla og
meðalstórra fyrirtækja verði skoðaðir.
„Rekstrarumhverfi fyrirtækja hér í
víðu samhengi er ekki nógu gott, eigin-
lega afleitt,“ segir Finnur og bætir við að
vextir hafi lengi verið of háir og mikill
tími stjórnenda fyrirtækja farið í varn-
arstöður gegn sveiflum í efnahagslíf-
inu. Smærri fyrirtæki hafa síður tök á
því en þau stærri. Kostirnir hafi á móti
verið þeir að skattar á fyrirtæki hafi verið
lágir. Blikur séu hins vegar á lofti nú um
stundir.
Í skýrslu Viðskiptaráðs kemur fram að
99 prósent fyrirtækja landsins eru lítil og
meðalstór og starfsmannafjöldi þeirra er
allt frá einum upp í 249 menn. Fyrirtæk-
in eru 25 til 27 þúsund talsins, samkvæmt
útreikningum Viðskiptaráðs, sem byggir
á gögnum frá Hagstofunni, Eurostat, hag-
stofu Evrópusambandsins og fleiri aðilum.
Langflestir, eða á bilinu 22 til 23 þúsund
manns, vinna hjá örfyrirtækjum. Það eru
fyrirtæki með allt að tíu starfsmenn.
RÆÐUMENN ÁSAMT GESTUM MÁLÞINGSINS Skýrsla Viðskiptaráðs er tímamótaverk en önnur eins könnun hefur aldrei verið gerð hér á landi. Finnur Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir að næstu skref verði að skoða betur og nánar rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. MARKAÐURINN/VILHELM
Um helmingur vinnandi
fólks á Íslandi starfar hjá
litlum og meðalstórum fyr-
irtækjum. Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson sat málþing
Viðskiptaráðs en þar voru
menn sammála um að þessi
fyrirtæki skiptu gríðarlegu
máli fyrir heimilin í landinu
og verði að styðja þau og
styrkja til að keyra upp úr
niðursveiflunni.
Starfsmannafjöldi* Fyrirtæki
1 Örfyrirtæki
2-9
10-19 Lítil fyrirtæki
20-49
50-99 Meðalstór fyrirtæki
100-249
Fleiri en 249 Stórfyrirtæki
* Samkvæmt flokkun Hagstofunnar
** Samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu
Evrópusambandsins
S K I L G R E I N I N G F Y R I R T Æ K J A
EIRÍKUR HILMARSSON Í meðalári verða
til átján til 27 þúsund störf og jafn mörg
glatast, segir einn eigenda Kaffitárs og fyrr-
verandi aðstoðarhagstofustjóri. Hann segir
mikilvægt að vernda störf í niðursveiflu.
MARKAÐURINN/RÓSA