Fréttablaðið - 10.06.2009, Qupperneq 24
10. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● landið mitt reykjanes
Gamla þurrabúðin í Stekkjarkoti í
Innri-Njarðvík opnar eftir vetrar-
lokun í næstu viku, miðvikudaginn
17. júní og verður ókeypis inn í allt
sumar að sögn Sigrúnar Ástu Jóns-
dóttur, forstöðumanns Byggða-
safns Reykjanesbæjar.
„Hægt er að koma við í Stekkj-
arkoti og skoða hvernig gamla
þurrabúðin leit út,“ segir Sigrún
Ásta. „Stekkjarkot er gamall torf-
bær sem var endurgerður í tilefni
50 ára afmælis Njarðvíkurkaup-
staðar árið 1992. Undir endurgerð-
inni er hin eiginlega rúst,“ útskýrir
Sigrún Ásta og bætir við að þurra-
búðir hafi verið algengar á þess-
um slóðum fram á tuttugustu öld.
„Þær komu og fóru eftir því hvern-
ig áraði til sjávar og sveita.“
Sigrún Ásta segir að Stekkjar-
kot standi á góðu útivistarsvæði.
„Fólk kemur hingað þótt safnið sé
ekki opið því þetta er opið svæði.
Stekkjarkot er á stað þar sem gott
er að ganga um.“
Gamla þurrabúðin í Stekkjar-
koti verður opin miðvikudaga til
sunnudaga frá 13 til 17 í sumar.
- mmf
Stekkjarkot er endurgerð þurrabúð sem stendur á góðu útivistarsvæði.
MYND/SIGRÚN ÁSTA JÓNSDÓTTIR
Opnun Stekkjarkots eftir viku
Poppminjasafnið í Reykjanesbæ sem ætlunin var að opna á
Ljósanótt verður ekki opnað fyrr en í fyrsta lagi að ári. „Málið
er í biðstöðu. Hugmyndin var sú að safnið fengi inni í Hljóma-
höllinni sem er verið að byggja fyrir tónlistarskólann Stapann
og Poppminjasafnið en
fresta þurfti framkvæmd-
um aðeins vegna efna-
hagsástandsins,“ segir
Sigrún Ásta Jónsdóttir,
forstöðumaður Byggða-
safns Reykjanesbæj-
ar sem vonar þó að fram-
kvæmdum ljúki á næsta
ári.
Poppminjasafnið á upp-
haf sitt að rekja til sýn-
ingarinnar Bítlabærinn
Keflavík sem haldin var á
veitingastaðnum Glóðinni
1997. Stofninn að safn-
kosti Poppminjasafnsins
er þaðan kominn. Byggða-
safn Reykjanesbæjar tók
síðan að sér að geyma
munina og hefur sett upp
tvær sýningar í Duushús-
um.
Munirnir eru nú í geymslu byggðasafnsins en fólki er þó
frjálst að bæta við safnkostinn ef það á einhverja skemmtilega
muni úr poppsögunni. „Við leitum eftir hlutum sem tengjast
tónlistarfólkinu, hljóðfærum, sviðsfatnaði eða veggspjöldum,“
segir Sigrún og bætir við að safnið muni ekki einskorða sig við
poppsögu Reykjanessins heldur landsins alls. -sg
Poppminjasafnið í
geymslu næsta árið
Hljómsveitin Trúbrot spilar stóran þátt í
poppsögu Íslands. MYND/BJÖRN G. BJÖRNSSON
Í Reykjanesbæ er verið að
opna um þessar mundir safn
sem byggt hefur verið utan um
hið víðfræga skip Íslending.
Nærri áratugur er síðan skipið
sigldi til Ameríku.
„Ég var fljótur að reka augun í
skipið þegar ég flutti á Suðurnes-
in fyrir nokkrum árum. Ég fór
því fljótlega í það að leggja bæj-
arstjórann í einelti með að fá að
leggja verkefninu lið. Ég hugsa að
ég hafi nú kannski orðið svo að ein-
hverju gagni,“ segir Einar Bárðar-
son, verkefnisstjóri sýningarinn-
ar Víkingaheims, sem sett hefur
verið upp í Reykjanesbæ. Skipið Ís-
lendingur, sem Gunnar Marel Egg-
ertsson smíðaði og sigldi til Am-
eríku árið 2000, er flaggskip sýn-
ingarinnar en einnig munu gestir
kynnast siglingum og rányrkju
víkinganna um allan heim sem og
„eftirlífi“ víkinganna með skipum
sínum.
„Siglingum víkinganna um
Norður-Atlantshafið eru gerð góð
skil og svo er hægt að ganga um
borð í skipið og horfa út á Faxa-
flóa og þannig aðeins hægt að setja
sig í spor víkinganna.“ Skoða má
ofan í skipið af efri hæðinni og
virða svo fyrir sér allt undirlagið
á neðri hæðinni en að auki er farið
í gegnum ferðasögu garpanna til
Norður-Ameríku, með viðkomu á
Íslandi meðal annars, á efri hæð-
inni. Tveir litlir salir á neðri hæð-
inni eru svo lagðir undir ránin
miklu og hvernig fer fyrir skipinu
eftir dauða víkinganna.
Húsið, sem er mikið listaverk,
um eitt þúsund fermetrar, teikn-
aði Guðmundur Jónsson arkitekt,
og Elisabeth Waard hefur haft yf-
irumsjón með að setja sýninguna
upp. „Efnahagsþrengingarnar
þyngdu róðurinn í að koma safn-
inu upp en við erum mjög þakklát
fyrir hvað við erum komin langt og
ég er sannfærður um að á næstum
tveimur árum verði þetta að einum
fjölsóttasta ferðamannastað lands-
ins enda er þessi sýning ótrúlega
skemmtileg,“ segir Einar. Sýning-
in er opin alla daga frá klukkan
ellefu til sex á daginn. - jma
Hægt að ganga um
borð í Íslending
Einar Bárðarson, verkefnisstjóri Víkinga-
heims, hefur fulla trú á að Íslendingur
muni slá í gegn.
Hægt verður að kynnast siglingum,
ránum og eftirlífi víkinga og skips í
Víkingaheimi í Reykjanesbæ.
Í húsinu, sem er um eitt þúsund fermetr-
ar, er að finna alls kyns fróðleik.
Ýmsir skemmtilegir gripir eru til sýnis.
viltu hætta? Þarftu aðstoð?
Dagskrá á mánudögum:
Kl. 10.00 - 16.00 Viðtöl hjá ráðgjafa
Kl. 16.30 - 17.30 Stuðningshópar
Kl. 18.00 - 18.45 Foreldrafræðsla
Kl. 19.00 - 20.00 Hópastarf
Tímapantanir: 421 6700
Erlingur Jónsson: 864-5452, 7725463
Getið kynnt ykkur starfsemi Lundar.
Lundur@mitt.is
www.lundur.net