Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 28
● tíska&fegurð
Þó enn sé ekki orðið mjög hlýtt í
veðri og margir jakkaklæddir var
léttur, litríkur og mynstraður fatn-
aður engu síður áberandi og annar
hver maður með sólgleraugu á
Laugaveginum þegar blaðamaður
skoðaði götutískuna á dögunum.
Konur á öllum aldri klæddust
helst kvenlegum fatnaði; kjólar,
pils, síðir bolir og leggings í öllum
hugsanlegum litum voru meðal
þess sem þær skörtuðu. Margar
með sjöl, stórar töskur og í stutt-
um stígvélum.
Þá benti flest til þess að karl-
peningurinn klæðist áfram þröng-
um fatnaði, jafnvel þrengri en
áður, og taka margar stúlkur því
eflaust fagnandi. Margir klædd-
ust skyrtum, annaðhvort víðum
eða þröngum og voru köflóttar
þeirra algengastar. Hagsýni virð-
ist svo almennt ráða ríkjum í fata-
vali kynjanna, þar sem notuðum
fötum er blandað saman við ný.
- hds
K lippingarnar eiga rætur að rekja bæði til 19. aldar herralínu og rokktísku 20. aldarinnar. Á vissan
hátt minna þær líka á dömuklippingarnar sem voru
vinsælar í fyrra. Þannig að við erum eiginlega komin í
hring,“ útskýrir Ragnheiður Hreinsdóttir, kölluð Ragga,
á Eplinu, hárstofu í Borgartúni, spurð út í strauma og
stefnur í herraklippingum í sumar.
Að hennar sögn er grunnklippingin fólgin í síðum
toppi og snöggum hliðum og hnakka, þar sem topp-
urinn er ýmist greiddur til hliðar, stíft upp, aftur eða
látinn falla fram á við, allt eftir smekk hvers og eins.
„Áferð hársins leikur stórt hlutverk, þar sem nota
má vax, gel eða önnur hármótunarefni og er svolítið
í takt við hárstíl Rómakeisarans Júlíusars Cesar. Þegar
hárið síkkar minnir klippingin á pompadour-hárstílinn
sem þeir Marlon Brando, James Dean og Elvis Presley
gerðu vinsælan á 6. áratugnum. Síðast var klippingin
vinsæl á 8. áratugnum þegar Vivienne Westwood og
Malcolm McLaren sköpuðu heilan iðnað undir merkj-
um hennar,“ segir hún. - rve
Pompadour-hárstíllinn ræður ríkjum í sumar að sögn
Ragnheiðar. Hér til hægri má sjá hvernig hægt er að greiða
toppinn á ýmsa vegu. MYND/ÚR EINKASAFNI
Fyrirmyndir í Róm til forna
„Ég versla mest í Smash, en
fer svo í Sævar Karl ef ég
er að kaupa eitthvað fínt,“
segir Andri Már Engilberts-
son, hér með tíkina Louise.
Guðrún Þor-
steinsdóttir:
„Mér finnst
gott að vera
í einhverju
þægilegu.““
Aron Bergmann Magnússon segist versla
mikið í Kolaportinu.
Götutíska í Reykjavík
● Sumarið er svo sannarlega gengið í garð ef marka má fataval þeirra sem urðu á vegi
blaðamanns þegar hann grennslaðist fyrir um götutískuna í miðbæ Reykjavíkur.
● Forsíðumynd: Anton Brink tók mynd á Laugavegi
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.
is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar:
Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
tíska&fegurð
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
Í ÆTT VIÐ ELVIS
Herraklippingar í sumar
taka mið af pompadour-hár-
stílnum þar sem rokkgoð
og Rómakeisarar eru helstu
fyrirmyndir. BLS. 2
HÖFUÐSTÖÐVAR Í
NEW YORK Breska Bur-
berry-tískuveldið hefur
opnað höfuðstöðvar
sínar í New York-
borg. BLS. 3
TÍSKA
GÖTUNNAR
Nokkrir Íslendingar teknir tali og myndaðir
á förnum vegi í amstri dagsins. BLS. 2
H ildur Björk Yeoman, fatahönnuður, er orðin þekkt fyrir nótagarnstöskur sínar, í laginu eins
og púðluhundur, en töskur hennar fást þó einnig
með hefðbundnara sniði. Hildur Björk mun með
haustinu setja á markað nýja töskulínu. „Í nýju
línunni verða fleiri dýr en púðluhundurinn á boð-
stólnum, til dæmis svanir og uglur,“ segir hún.
Hildur segir að nýja línan verði einnig búin til
úr nótagarni. „Ég hef ofsalega gaman af gömlu
handverki. Þegar ég hanna er ég oft innblásin af
gamalli tækni en reyni að færa hana í nýjan bún-
ing. Mér finnst gaman að nota nótagarnið. Það
er efni sem fólk er vant að tengja sjávarútvegi,
slori, slagviðri og hörku en ég færi það í nýtt
samhengi púðluhundsins sem í mínum huga
stendur fyrir eitthvað fágað og dramatískt,“ út-
skýrir Hildur og bætir við að nótagarnið sé
upplagt efni því það sé þeim eiginleikum
gætt að vera formfast og endingargott.
Hægt er að nálgast töskur Hildar í
versluninni Kronkron. - mmf
Gamalt í nýjan búning
Jódís Káradóttir segist vera hrifin af kjól-
um enda séu þeir svo sumarlegir.
10. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2