Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 31

Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 5landið mitt reykjanes ● fréttablaðið ● „Þeim fjölgar stöðugt sem heim- sækja Reykjanesbæ um helgar. Sérstaklega er orðið vinsælt meðal borgarbúa að fara í fjölskyldurúnt um bæinn, einkum gamla hlut- ann,“ bendir Dagný Gísladóttir, kynningarstjóri Reykjanesbæj- ar, á og nefnir í því samhengi við- komustaðina Vatnaveröld og fjall Skessunnar. „Vatnaveröld er yfirbyggður vatnsleikjagarður frá árinu 2006, ætlaður yngstu kynslóðinni. Þar eru rennibrautir og önnur tæki sem eru með mjúku undirlagi. Þar er líka 50 metra innilaug og 25 metra útilaug, gufa og fleira,“ segir hún og bætir við að al- gengt sé að fjölskyldufólk heim- sæki Skessuna í fjallinu eftir sund sprett. „Fyrirmyndin er per- sónan úr bókum Herdísar Egils- dóttur um Siggu og Skessuna, sem eignaðist samastað í helli skammt frá Duushúsunum, á síðustu Ljós- anótt. Þar situr hún á ruggustól í eldhúsinu og dormar. Opið er í hellinn alla daga.“ - rve Saltfisksetrið í Grindavík stend- ur fyrir margvíslegri menningar- starfsemi. Mikið er um að vera í setrinu í sumar, allt frá listsýning- um til gönguferða. 17. júní-hátíðarhöld Grinda- víkurbæjar fara að mestu fram við Saltfisksetrið, setrið stend- ur fyrir Jónsmessugöngu á Þor- björn 21. júní. Hinn 27. júní opnar Sólveig Dagmar Þórisdóttir sýn- ingu í listsýningasal setursins og Nína Gautadóttir opnar sýningu 18. júlí. Um verslunarmannahelgina, 31. júlí til 3. ágúst verður haldin gönguhátíðin AF STAÐ á Reykja- nesið. Boðið verður upp á fjórar 3 til 6 tíma gönguferðir með leiðsögn frá föstudegi til mánudags ásamt viðburðum í Saltfisksetrinu og Flagghúsinu. AF STAÐ á Reykja- nesið verður einnig á döfinni 9., 16, 23. og 30. ágúst. Boðið verður upp á fjórar þjóðleiðagöngur með leið- sögn á vestanverðum Reykjanes- skaganum. Nánar á www.saltfisk- setur.is. - sg Lífið er saltfiskur Saltfisksetrið í Grindavík. Reykjanesbær hefur undanfar- in ár boðið upp á listaskóla fyrir sjö til tólf ára börn þar sem þau læra mynd- og leiklist. Sólveig Guðmundsdóttir leikkona hefur haft umsjón með leiklistarhlutan- um síðastliðin fimm ár og segir gaman að fylgjast með börnunum taka framförum. „Ég legg mikla áherslu á spuna og yfirleitt semja börnin eigið leik- rit. Vinnan byggist að miklu leyti á þeirra hugmyndum og litast oft af því sem er að gerast í samfélaginu hverju sinni,“ segir Sólveig. Leiklistarkennslan fer fram í Frumleikhúsinu en aðstöð- unni deila börnin með leiklistar- hóp unglingavinnunnar sem Sól- veig segir gefast vel. Myndlistar- kennslan er í Svarta pakkhúsinu en börnunum er skipt upp í hópa sem síðan skiptast á að fara í leik- og myndlist. „Oft höfum við haft það þannig að börnin vinni leikmynd, leikmuni og búninga í myndlist- inni til að nota í leiksýningunni sem við setjum upp að hverju nám- skeiði loknu.“ Námskeiðin í sumar verða tvö. Hið fyrra hefst miðvikudaginn 10. júní en hið síðara 1. júlí. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Menn- ingarsviði Reykjanesbæjar. - ve Litlir listamenn Sólveig Guðmundsdóttir segir gaman að fylgjast með börnunum taka framför- um á námskeiðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Fjölsóttur fjölskyldustaður Yngstu kynslóðinni þykir gaman að heimsækja Skessuna í fjallinu.                               !"#$#%& '()*+$!,-.%#&""/&      0  1   !""   #!""   $ $ 3&&   #3& 4  

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.