Fréttablaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 32
10. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● landið mitt reykjanes
Pro Quip
Ný sending af regngöllum og
vindjökkum, kvenna og karla.
Vindjakkar kr. 9.700
Regnjakkar frá kr. 16.500
Regnbuxur frá kr. 12.900
Ármúla 40 · 2.hæð · Sími 553 9800
Veljum
Ísland
„Húseigandinn gleymdi að skilja
eftir nafnspjald en líkur eru til að
fundinn sé bær Herjólfs Bárðar-
sonar sem nam land á milli Vogs
og Reykjaness.“ Þetta segir Sig-
rún Ásta Jónsdóttir, safnstjóri
Byggðasafns Reykjanesbæjar,
um mannvistarleifar frá fyrstu
dögum landnáms sem voru grafn-
ar upp í Höfnum nú í sumar. Þar
fengu tólf nemendur úr fornleifa-
deild HÍ tækifæri til að fást við
víkingaaldarminjar undir stjórn
Bjarna F. Einarssonar fornleifa-
fræðings.
Nokkar prufuholur voru grafn-
ar á þessum stað árið 2002 því
merki sáust um útlínur skála.
„Dyrin sást greinilega og við upp-
gröftinn fannst dyrahella og svo-
kallað dyralóð í gættinni. Einnig
hluti af kvarnasteini og tvær perl-
ur,“ lýsir Sigrún.
Rústirnar eru í alfaraleið við
veginn og þótt búið sé að tyrfa
yfir uppgröftinn er auðvelt að átta
sig á aðstæðum að sögn Sigrúnar.
„Dyrnar eru óhreyfðar þannig að
hægt er að ganga á sömu hellum
og landnámsmenn.“ - gun
Skálarústin í Höfnum. Kirkjuvogskirkja í baksýn. MYND/SIGRÚN ÁSTA JÓNSDÓTTIR
Landnámsskáli kominn í ljós
Garðbúar tileinka sumarhátíð
sína sólsetri sem er engu líkt.
Sólseturshátíðin í Garði verður
haldin fimmta sumarið í röð dag-
ana 26. til 29. júní. Hátíðarhöldin
fara fram á Garðskaga en þar er
sólsetrið engu líkt.
„Sumarsólstöður verða þarna
nýafstaðnar og sólsetrið mun að
vonum gylla hafið á meðan Garð-
búar og gestir syngja og gleðjast
við varðeld,“ segir Stefán F. Ein-
arsson, umsjónarmaður Sólset-
urshátíðarinnar. Hann segir til-
gang hátíðarinnar fyrst og fremst
að gleðjast og hafa gaman en auk
þess vilji Garðbúar kynna bæjar-
félagið og þá menningarstarfsemi
sem fer þar fram.
„Þessi hátíð er stór og mikil í
hugum Garðbúa. Hingað komu
hátt í átján hundruð manns í fyrra
og spái ég því að þeim fari fjölg-
andi. Hérna á skaganum er góð
aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna
og húsbíla auk þess sem snyrting,
rennandi vatn og rafmagn er til
staðar,“ segir Stefán. Hann segir
Garðskagavita koma til með að
gegna stóru hlutverki í hátíðinni
enda táknrænn fyrir staðinn. „Þar
verða ýmsar uppákomur auk þess
sem vitinn verður klæddur í há-
tíðarbúning.“
Dagskráin hefst á föstudag
en nær hámarki á laugardag. Þá
verður til að mynda boðið upp á
menningartengda sögugöngu um
bæinn og fjöruferð fyrir börn en
upp úr hádegi hefst hátíðardag-
skrá sem stendur fram á kvöld og
lýkur með tónleikum, brennu og
brennusöng. - ve
Sumarhátíð þar sem
sólin er í brennidepli
Garðbúar og gestir hátíðarinnar fylgjast með sólsetrinu á meðan þeir ylja sér við brennu og söng. MYND/STEFÁN F. EINARSSON
Garðskagaviti gegnir stóru hlutverki í hátíðinni enda táknrænn fyrir staðinn.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið