Fréttablaðið - 10.06.2009, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 10.06.2009, Qupperneq 42
Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur flytur í Háskólanum í dag fyrirlestur með yfirskrift- inni „Hvað gerðist eiginlega í bankahruninu?“ Hann fjallar um eigin rannsóknir í nýútkominni bók sinni, Hrunið. Bókin er holl lesning og nauðsynleg hverjum sem þarf að glöggva sig á rás atburða, því ótrúlega hratt vill fenna yfir atganginn. Velt er við steinum bæði í fjármálum og hjá stjórnvöldum. Til dæmis veltir Guðni upp þeirri spurningu hvort stolt ráðamanna hér hafi ráðið því að ekki var leitað aðstoð- ar alþjóðasamfélagsins fyrr en í algjört óefni var komið og hvort ekki hefði verið réttast að leita strax ásjár hjá Alþjóða gjald eyris- sjóðnum eftir hrun bank anna „í stað þess að hika d ö g u m saman“. 7,3 1,0 37milljarða króna afgangur var á vöruskiptum við útlönd í maí samkvæmt nýlega birtum bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra var vöruskiptajöfn- uður neikvæður um tvo og hálfan milljarð króna. prósenta stýrivöxtum er viðhaldið í evrulöndum samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Evrópu fyrir helgi. Stýrivextir bankans hafa aldrei verið lægri. bankar hafa farið á hausinn í Bandaríkjunum það sem af er ári, en Lincolnwood-smábank- anum var lokað um helgina. Í fyrra fóru 25 á hausinn og þrír árið áður. SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, átti góðan sprett á hugmynda- fundi fyrirtækisins í síðustu viku. Forstjórinn sagði meðal annars að hefðbundinn lærdómur yrði að ganga í endur nýjun lífdaga eigi hann að standast væntingar þeirra sem horfi til framtíðar. Að öðrum kosti sé hætt við að skapandi einstaklingar flosni úr námi og leiti fyrir sér annars staðar. Þetta átti raunar ótrúlega vel við tvo þátttakendur fundarins, Guðjón Má Guðjónsson, löngum kenndan við Oz, og Bandaríkjamanninn Jeff Taylor. Taylor lauk háskóla- námi í nokkrum sprettum sem stóðu fram að fertugu. Guðjón komst hins vegar ekki lengra en í Versló. Hann á enn eftir að útskrifast, 37 ára gamall. „Það var svo mikið að gera hjá Oz á þessum tíma að síðasta prófið sem ég tók var ökuprófið,“ sagði frumkvöðullinn. Ökupróf Í heimspressunni hefur Lettland nú tekið við þeim vafasama heiðri af Íslandi að vera talið mest plagaða land heims af efnahagsþrengingum vegna fjármálakreppunnar. „Við héldum að Ísland yrði harð- ast úti í kreppunni, en núna tel ég að Lettland hafi vinn- inginn. Hrunið er mikið og verður enn meira hjá Lettum,“ hefur danska viðskiptablaðið Børsen eftir Jesper Rangvid, prófessor við Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar (Copenhagen Business School, eða CBS). Meðal annars er horft til 28,7 prósenta samdráttar á fyrsta fjórðungi ársins í Lettlandi, meðan sam- dráttur hér var „bara“ 3,9 pró- sent, miðað við sama tíma árið áður. Líkt og Íslendingar eru Lettar í stökustu vandræðum með gjaldmiðilinn sinn og eykur það á allan vanda. Sviðsljósi stolið Hvað gerðist?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.