Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.06.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 18.06.2009, Qupperneq 2
2 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR EFNAHAGSMÁL Átta prósenta hátekjuskattur, sem byrjað verð- ur að innheimta um mánaðamótin, leggst á allar launatekjur umfram 700 þúsund krónur, samkvæmt frumvarpi sem lagt verður fyrir þingið á næstu dögum. Skatturinn verður innheimtur mánaðarlega en endurskoðaður í lok árs og þá reiknaður af meðal- mánaðartekjum, eða heildartekjum umfram 4,2 milljónir á þessum sex mánuðum. Hafi tekjur fólks verið breytilegar eftir mánuðum, og það farið undir 700 þúsunda markið einhverja mánuði, á það þannig rétt á endurgreiðslu á næsta ári enda hafi það verið ofrukkað um hátekjuskatt. Þetta segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og fyrrverandi ríkisskattstjóri og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Ekki er miðað við meðaltekjur hjóna í þessu tilliti. Breytingarnar sem kveðið verður á um í frum- varpinu gilda aðeins til loka þessa árs. Þá verða gerðar breytingar á fjármagnstekjuskatti. Hann verður hækkaður úr tíu prósentum í fimmtán prósent af árlegum fjár- magnstekjum, sem eru vaxtatekjur, arður af hlutabréfum, söluhagn- aður og leigutekjur. Frítekjumark fjármagnstekna verður hins vegar hækkað í 250 þúsund krónur, úr engu. Fjármagnstekjum hjóna er dreift jafnt á þau. Einnig stendur til að hækka tryggingagjald, sem atvinnuveit- endur greiða í atvinnutrygginga- sjóð, í því skyni að styrkja sjóðinn vegna aukins atvinnuleysis. Þá á að leggja sérstakan skatt á sætindi og gosdrykki. Með skattahækkununum hyggj- ast stjórnvöld reyna að brúa 20 til 25 milljarða fjárlagagat þessa árs. Áætlað er að hátekjuskattur- inn skili um 2,5 milljörðum á þessu ári og um fjórum milljörðum á árs- grundvelli. Þá á breytingin á fjár- magnstekjuskattinum að skila um sex milljörðum í ríkiskassann og hækkun tryggingagjaldsins um tólf milljörðum á ársgrundvelli. stigur@frettabladid.is Hátekjuskatturinn miðast við árstekjur Hátekjuskattur verður innheimtur mánaðarlega af tekjum umfram 700 þúsund krónur en síðan reiknaður af meðaltekjum í lok árs og endurgreiddur ef þarf. Skattur verður ekki innheimtur af fjármagnstekjum upp að 250 þúsundum. Dæmi 1 ■ Maður er með fastar tekjur sem nema milljón á mánuði. ■ Hann þarf nú að greiða um 330 þúsund á mánuði í skatt. (37,2% tekjuskattur af milljón krónum er 372 þúsund, og frá dregst um 42 þúsund króna persónuafsláttur.) ■ Eftir breytinguna greiðir hann áfram 372 þúsund krónur af millj- ón, auk átta prósenta af því sem er umfram 700 þúsund - í þessu tilviki 300 þúsundum. ■ Hátekjuskatturinn er því 24 þúsund, og leggst við hinn skattinn. ■ Eftir breytingu greiðir maðurinn samtals 354 þúsund í skatt (372+24- 42=354). Dæmi 2 ■ Kona er með mis- jafnar tekjur milli mánaða, stundum yfir 700 þúsund króna markinu og stundum undir því. ■ Þá mánuði sem hún fær yfir 700 þúsund greiðir hún hátekjuskatt af umframupphæðinni. ■ Þegar hún er undir 700 þúsunda markinu greiðir hún eðli málsins samkvæmt engan hátekjuskatt. ■ Í lok árs eru heildartekjur hennar yfir sex mánaða tímabilið teknar saman og hátekjuskattur reiknaður af þeirri upphæð sem er umfram 4,2 milljóna heildar- tekjur. Hún fær síðan endur- greiddan oftekinn hátekjuskatt. Dæmi 3 ■ Ríkur maður er með sex milljónir á ári í fjármagns- tekjur. ■ Nú greiðir hann tíu pró- senta skatt af upphæðinni, eða 600 þúsund á ári. ■ Eftir breytingu greiðir hann ekkert af fyrstu 250 þúsund krónunum, en fimmtán prósent af afganginum. ■ Hann þarf því að greiða 862.500 krón- ur í fjármagnstekju- skatt (15 prósent af 5.750.000). NOKKUR DÆMI UM ÁHRIFIN BRASILÍA, AP Talið er að farþega- flugvél Air France sem fórst í byrjun mánaðarins á leið frá Rio de Janeiro til Parísar hafi splundrast á flugi. Sú ályktun er dregin af niðurstöðum krufn- ingar á um fimmtíu líkum, sem flest voru í heilu lagi en með brotna útlimi. Enn er leitað á um tuttugu þúsund ferkílómetra svæði og reynt að finna tvo svarta kassa flugvélarinnar, sem innihalda upplýsingar um hvað gerðist við slysið. Næstu tvær vikur eða svo munu kassarnir gefa frá sér merki, en eftir það munu merkin dofna. Aðstæður til leitar eru sagðar betri en fyrstu dagana eftir slysið. - mt Leitin að flugvél Air France: Splundraðist líklega á flugi STJÓRNMÁL Íslensk stjórnvöld og eftirlitsstofnanir sýndu of mikið andvaraleysi í góðærinu og aðdraganda bankahrunsins. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra í þjóðhátíðarávarpi sínu í gær. „Íslenskir útrásarvíkingar höfðu farið víða um í miklum græðgi- og óhófsham og skilið eftir sig rústir, ekki einungis hér á landi heldur einnig í öðrum löndum,“ sagði Jóhanna. „Stjórn- völd og eftirlitsstofnanir okkar sýndu við þessar aðstæður of mikið andvaraleysi.“ Jóhanna fjallaði um Icesave- samkomulagið við Breta og Hol- lendinga sem mikill styr hefur staðið um. Sagði hún ákvörðunina um að ganga til samninga hafa verið erfiða en óhjákvæmilega. Það væri samdóma álit allra ríkja að íslenska ríkið bæri ábyrgð á skuldbindingunum. Lögfræðilegar álitsgerðir segðu að ef Íslendingar höfn- uðu samkomulaginu yrði „raun- veruleg hætta [...] á því að Ísland einangraðist á alþjóðavettvangi, markaðir myndu lokast og lána- möguleikar yrðu að engu.“ Þá fjallaði Jóhanna um sam- vinnu Íslendinga við aðrar þjóðir og sagði sjálfstæði Íslands ekki síst byggjast á því hvernig við treystum og þróuðum samstarf okkar við önnur ríki heimsins. - sh Forsætisráðherra talaði um græðgi og óhóf í þjóðhátíðarávarpi sínu: Stjórnvöld voru andvaralaus LEITAÐ AÐ BRAKI Brasilískir sjóliðar draga upp brak úr flugvél Air France sem fórst í byrjun mánaðarins. JÓHANNA SIGURÐAR- DÓTTIR Forsætis- ráðherra. DÝRALÍF Um tólf hundruð manns fara daglega inn á vefinn Reykhólar.is til að fylgjast með gangi mála þar sem örn liggur á eggi sínu á eyju einni á Breiða- firði. Vefmyndavél hefur verið komið fyrir svo hægt er að fylgjast með hreiðrinu í beinni útsendingu. „Þetta er svolítið eins og að horfa á málningu þorna en það er gríðarlegur áhugi fyrir þessu,“ segir Signý Magnfríður Jóns- dóttir, bóndi á Gróustöðum í Gilsfirði, en hún og maður hennar Bergsveinn G. Reynisson standa að verkefninu í samvinnu við Náttúrufræðistofu. En þó að þetta sé langdregið sjónvarpsefni segir Signý Magnfríður að vonandi fari að draga til tíðinda. - jse Vinsælt myndefni: Örninn sem verpir í beinni ARNARHREIÐRIÐ Í GÆR Það kann að vera langdregið að horfa á örn á eggi en um tólf hundruð manns líta á það daglega á vefnum reykholar.is. MYND/REYKHOLAR.IS GUANGZHOU, AP Frá og með 1. júlí næstkomandi verður íbúum Guangzhou í Kína gert að tak- marka hundaeign við eitt dýr á hvert heimili. Þeir sem þegar eiga fleiri hunda verða að velja á milli gæludýra sinna. Víða í land- inu, þar á meðal í Peking, eru slíkar reglur þegar í gildi. Gæludýraeign hefur stórauk- ist í Kína síðustu ár en lausa- ganga fyrrverandi heimilishunda hefur valdið vandræðum. Árið 2006 voru 29 þúsund hundar fangaðir í Peking á einum mán- uði í herferð gegn hundaæði og öðrum sjúkdómum. Asíuleikarn- ir verða haldnir í Guangzhou á næsta ári og vilja yfirvöld grípa til aðgerða svo hundaplága setji ekki mark sitt á leikana. - mt Takmarkað hundahald í Kína: Aðeins einn hund á heimili LÖGREGLUMÁL Fimmtugur maður sem nýverið missti hús sitt á Álftanesi vegna fjárhagsörðug- leika var handtekinn í gær eftir að hafa gjöreyðilagt húsið með gröfu. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku í gær. Hann gæti átt yfir höfði sér ákæru vegna eignaspjalla. Húsið er nýlegt einingahús úr timbri, reist árið 2003, og er í eigu Frjálsa fjárfestingarbank- ans eftir að maðurinn missti það til hans. Það er 180 fermetrar og brunabótamatið er fimmtíu millj- ónir. Húsið er talið gjörónýtt. Ekk- ert stendur eftir af því nema bíl- skúrinn. Maðurinn tók gröfuna á leigu og kom henni fyrir við húsið í fyrrakvöld. Í gær rústaði hann síðan húsinu með gröfunni, ýtti bíl sínum hálfum ofan í nýtekna gryfju og mokaði yfir. Lögregla handtók hann síðan þar sem ók burt frá húsinu. Myndatökumaður var á staðnum og tók athæfið upp á myndband að beiðni mannsins. Ekki er vitað hvað hann hyggst fyrir með myndbandið. - sh Fimmtugur maður handtekinn á Álftanesi eftir mikil eignaspjöll: Missti húsið sitt og rústaði því MENNING Víkingaheimar voru formlega vígðir fyrir fullu húsi í gær í Reykjanesbæ en þar er víkingaskipið Víkingur til sýnis auk fjölda muna frá Smithsonian-safninu. Það var einmitt 17. júní fyrir níu árum sem Gunnar [Marel Eggerts- son] hélt úr höfn á víkingi til vestur heims en það er fyrst nú sem hann er kominn fyrir fullt í heimahöfn,“ segir Einar Bárðar- son, einn af aðstandendum sýn- ingarinnar. Meðal muna segir Einar vera um þúsund ára gamla muni, eins og sverð, spjót leggsteina og axir sem allt hefur verið grafið upp í Skandinavíu. Munirnir verða til sýnis í Víkingaheimum næstu tvö árin. - jse Víkingaheimar vígðir: Íslendingur lok í heimahöfn ÍSLENDINGAR Í ÍSLENDINGI Einar Bárðar- son segir Íslending loks nú kominn til heimahafnar eftir níu ár. HREINSAÐ TIL Hafist var handa við að hreinsa brakið þegar í gærkvöldi svo það skap- aði ekki hættu, til dæmis fyrir þessa áhugasömu pilta. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Þórður, er þetta hluti af að- gerðapakka stjórnvalda? „Já, þessar aðgerðir eru það, það liggur alveg í augum uppi og sér- staklega sett fram til að skapa nýja sýn á málin.“ Fréttablaðið sagði frá því í gær að útlend- ingar flykktust til landsins til að gangast undir laser-aðgerðir á augum. Þórður Sverrisson er augnlæknir hjá Lasersjón. Slasaðist í Reykjadal Kona slasaðist á göngu í Reykjadal ofan við Hveragerði síðdegis í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hana og var hún flutt á slysadeild Landspít- ala - háskólasjúkrahúss til skoðunar og aðhlynningar. Konan, sem var á göngu með fleira fólki, datt og fékk höfuðhögg, Vegna þess hve löng ganga var að bíl hennar þótti ráðlegt að sækja hana með þyrlu og flytja á sjúkrahús. LÖGREGLUFRÉTTIR MOSKVA, AP Rússar og Kínverjar lýstu í gær yfir miklum áhyggj- um af vaxandi spennu á Kóreu- skaga og hvöttu Norður-Kóreu- menn til að setjast aftur að samningaborðinu vegna kjarn- orkutilrauna sinna. Yfirlýsingin vekur athygli, enda hafa þjóðirn- ar tvær einna helst staðið í vegi fyrir tillögum í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna um hertar refsi- aðgerðir gegn Norður-Kóreu. Yfirlýsingin kom í kjölfar yfir- lýsingar Norður-Kóreu manna þess efnis að þeir myndu hefna þúsundfalt með miskunnarlausum hernaðaraðgerðum yrði þeim ögrað á nokkurn hátt. - sh Rússar og Kínverjar uggandi: N-Kórea hótar grimmri hefnd SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.