Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 34
30 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson > Í SPILARANUM Dinosaur Jr. - Farm Ske - Love For You All Toddla T - Skanky Skanky Hermigervill - Hermigervill leikur vinsæl íslenzk lög HERMIGERVILL SKE Næsta sunnudag, 21. júní, verður „Stóri músíkdagurinn“ haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Fyrirmyndin er „La Fête de la musique“, tón- listarhátíð sem haldin hefur verið í Frakklandi 21. júní ár hvert síðan 1982, en undanfarin ár hafa sífellt fleiri þjóðir um allan heim farið að fordæmi Frakka og gert 21. júní að tónlistardegi. Þegar hátíðin var haldin í fyrsta skipti í Frakklandi 1982 voru tónlistarmenn af öllum stærðum og gerðum, áhugamenn jafnt og atvinnuspilarar eru hvattir til að fara út á götur og torg og spila á milli 20.30 og 21.00 um kvöldið. Þátttakan var mjög mikil og næstu ár óx hátíðin og festi sig í sessi. Þegar ég bjó í Frakklandi á árunum 1984-1988 var ævin- týri líkast að upplifa hátíðina. Það voru tón- listarmenn í hverju horni og allar götur fullar af fólki sem mætti til að hlusta og stemningin ótrúleg, minnti helst á þjóðhátíð eða sigurgleði, nema með endalausri lifandi tónlist úti um allt. Það eru Alliance Française í Reykjavík og franska sendiráðið sem sjá um að skipuleggja Stóra músíkdaginn hér á landi. Tónlistarmenn, lærðir og leikir eru hvattir til að mæta á Austur völl og Ingólfstorg og troða upp á milli klukkan 13 og 16 á sunnudaginn. Ef áhugi verð- ur mikill má reikna með því að stöðunum fjölgi og tíminn lengdur á næsta ári. Um kvöldið verða svo sérstakir tónleikar á Café Rósenberg undir yfirskriftinni „Gains- bourg á íslenska vísu“, en þar munu íslenskir tónlistarmenn flytja lög þessa franska snillings. Þar á meðal verða Retro Stefson, Hraun, Sprengjuhöllin og Ólöf Arnalds. Það er mikið gleðiefni að Stóri músíkdagurinn hafi náð hingað til lands og full ástæða til að hvetja tónlistarmenn og tónlistaráhugamenn til að fjölmenna í bæinn á sunnudaginn. Hátíðin er ætluð öllum tegund- um tónlistar, og byrjendur eru jafn velkomnir og hörðustu atvinnu- menn. Tónlistarhátíð að hætti Frakka SERGE GAINSBOURG Allir geta tekið þátt í Stóra músíkdeginum, en um kvöldið verður dagskrá helguð Gainsbourg á Café Rósenberg. Prog-rokkararnir í The Mars Volta gefa á mánudag út sína fimmtu plötu á aðeins fimm árum. Gripurinn nefnist Octahedron og er að sögn þeirra félaga Cedrics Bixler-Zavala og Omars Rodríguez-López órafmagnaða og melódíska platan þeirra. Í raun og veru er hún þó langt í frá óraf- mögnuð. „Við vitum að fólk hugs- ar hlutina oft á afmarkaðan hátt. Þegar það hlustar á plötuna á það eftir að segja: „Þetta er ekki óraf- mögnuð plata. Það er fullt af raf- magni í henni. En þetta er okkar útgáfa því þessi hljómsveit gerir alls kyns stökkbreytingum hátt undir höfði,“ sagði Cedric. The Mars Volta var stofnuð 2001 eftir að rokksveitin At the Drive- In liðaðist í sundur. Sveitin blandar saman rokki, djassbræðingi, fönki og salsatónlist með áhugaverðum hætti. Hún er þekkt sem öflug tónleikasveit en fyrr á árinu vann hún einmitt Grammy-verðlaunin í flokknum „Besta rokk-frammi- staðan“ fyrir lagið Wax Simulacra, sem er að finna á The Bedlam in Goliath sem kom út í fyrra. Á síð- asta ári var The Mars Volta kjör- in besta prog-rokkhljómsveitin af tímaritinu Rolling Stone. Enginn heimfrægur tónlistar- maður er í gestahlutverki á nýju plötunni en á meðal þeirra sem hafa komið við sögu á plötum The Mars Volta í gegnum árin eru John Frusciante og Flea úr Red Hot Chili Peppers. Fimmta platan á fimm árum THE MARS VOLTA Hljómsveitin The Mars Volta gefur á mánudag út sína fimmtu plötu. Þrátt fyrir að vera nýbúinn að gefa út plötuna Relapse er rapp- arinn Eminem aftur á leiðinni í hljóðver, núna með félögum sínum í D12. „Ég og strákarnir náum vel saman, við höfum sérstök tengsl. Við ætlum aftur í hljóðverið bráð- um,“ sagði Eminem. D12 var stofnuð í Detroit árið 1990 af nokkrum röpp- urum, þar á Eminem, Bizarre og Proof, sem var skotinn til bana fyrir þremur árum. Fimm ár eru liðin síðan síðasta plata sveitar- innar kom út. D12 með nýja plötu Rapparinn Doom hefur fengið prýðilega dóma fyrir plötu sína Born Like This sem kom út á dögunum. Thom Yorke úr Radiohead er meðal aðdáenda. Doom heitir réttu nafni Daniel Dumile og fæddist í Bretlandi en flutti fljótlega til New York þar sem hann ólst upp. Ungur að árum stofnaði hann rappsveitina KMD með yngri bróður sínum og öðrum vini. Sveitin skrifaði undir útgáfu- samning við Elektra Records og þeim félögum virtust allir vegir færir. Skömmu fyrir útgáfu seinni plötu KMD árið 1993 lést yngri bróðirinn í bílslysi og í kjölfarið var útgáfusamningnum rift. Eftir það hvarf Dumile eins og dögg fyrir sólu og sneri ekki aftur í rapp- ið fyrr en fjórum árum seinna, þá klæddur stálgrímu til heiðurs ill- menninu Doctor Doom úr teikni- myndasögum Marvels. Tók hann upp listamannsnafnið MF Doom og hefur allar götur síðan neitað að láta mynda sig án grímunnar. Eftir að Dumile sneri aftur hefur hann verið óstöðvandi í rappinu og gefið út fjölda platna undir hinum ýmsu nöfnum, ekki bara sem MF Doom heldur Metal Fingers, Viktor Vaughn, King Geedorah, Mad villain og nú síðast einfald- lega Doom. Fyrsta plata Madvillains, sam- starfsverkefnis Dumile og upp- tökustjórans Madlib, kom MF Doom einmitt á kortið árið 2004. Árið eftir kom út önnur plata sem vakti eftirtekt, The Mouse and the Mask með dúettinum Danger Doom. Þar var um að ræða sam- starfsverkefni MF Doom og upp- tökustjórans DJ Danger Mouse, annars meðlims Gnarls Barkley. Sama ár rappaði MF Doom í lag- inu November Has Come á annarri plötu Gorillaz, Demon Days. Undanfarin ár hefur hann einnig unnið töluvert með Gostface Killah, sem er einmitt gestur í laginu Ang- elz á Born Like This undir nafn- inu Tony Starks, sem aðdáendur myndarinnar Iron Man ættu að kannast við. Söngvari Radio head, Thom York, er sömuleiðis aðdá- andi MF Doom og endurhljóðbland- aði annað lag nýju plötunnar, Gaz- illion Ear. Innblásturinn að nafninu Born Like This er fenginn úr ljóði skálds- ins Charles Bukowski, Dinosauria, We. Upplestur hins sáluga Bukow- ski er einmitt hluti af laginu Cellz, þar sem dregin er upp dökk mynd af ástandinu í Bandaríkjunum og dómsdegi spáð. Í viðtali við tíma- ritið Rolling Stone telur Doom að dómsdagur hafi þegar náð í skottið á þjóðinni en hið dökka ástand feli í sér von um nýtt upphaf og bjartari framtíð. „Ef eitthvað lýkur göngu sinni hlýtur eitthvað annað að byrja í staðinn. Spurningin er: Hvoru megin vilt þú vera? Líður þér eins og heimurinn þinn sé að farast? Eða hugsarðu með þér: „Þessu virð- ist vera að ljúka og eitthvað nýtt og spennandi er að byrja“.“ Sam- kvæmt Doom snýst Born Like This einmitt um hvað gerist næst, á eftir dómsdegi. freyr@frettabladid.is Dómsdegi fylgir ný byrjun DOOM Rapparinn Doom hefur hitt rækilega í mark með sinni nýjustu plötu, Born Like This. NORDICPHOTOS/GETTY Tónlistarmaðurinn Yusuf Islam, betur þekktur sem Cat Stevens, hefur fyrirgef- ið hljómsveitinni Coldplay sem hann telur að hafi stolið lagi sínu og notað við smíði hins vinsæla Viva La Vida. Islam segir að sveitin hafi stolið lagi sínu Foreigner Suite sem kom út árið 1973 en ekki gert sér grein fyrir því. „Ég stend við það sem ég sagði. Þeir notuðu lagið mitt en ég held að þeir hafi ekki gert það viljandi. Ég hef meira að segja hermt eftir sjálfum mér án þess að ég áttaði mig á því,“ sagði hann. „Ég vil ekki að þeir haldi að ég sé reiður við þá. Mig langar endilega að setjast niður með þeim yfir tebolla og láta þá vita að allt sé í lagi.“ Gít a rlei k a r i n n Jo e Satriani ætlar aftur á móti ekkert að gefa eftir. Hann stendur við málshöfðun sína gegn Coldplay sem hann höfðaði vegna líkinda lags hans If I Could Fly og Viva La Vida. Coldplay hefur neitað harðlega öllum ásök- unum um lagastuld. Cat fyrirgefur Coldplay YUSUF ISLAM Tónlistarmaðurinn hefur fyrirgefið hljómsveitinni Coldplay. EMINEM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.