Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 18. júní 2009 11
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
66
32
0
6/
09
SAMAN FINNUM VIÐ
RÉTTU LEIÐINA
Úrræði vegna greiðsluerfiðleika
Kaupþing býður viðskiptavinum sínum ráðgjöf og ýmis
úrræði sem létt geta fjárhagsstöðu heimila í greiðsluvanda.
Meðal úrræða sem bankinn býður til að stuðla að lausn
á greiðsluvanda eru:
• Ráðgjöf • Greiðslujöfnun
• Breyting á lánaskilmálum • Tímabundin frestun afborgana
• Lenging lánstíma
Fáðu ítarlegri upplýsingar um úrræði vegna greiðsluerfiðleika
á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444 7000 eða komdu
við í næsta útibúi Kaupþings.
SAMGÖNGUR Borgarfulltrúar
Vinstri grænna vilja ekki að
gjaldskrá Strætós verði hækkuð
næsta árið og að haldið verði sér-
stakt íbúaþing
um málefni
fyrirtækisins,
áður en yfir-
standandi
stefnumótun
um framtíð
þess verði
kláruð.
Þetta er
meðal átta
markmiða VG,
sem bókuð voru á borgarstjórnar-
fundi á þriðjudag.
VG vill einnig að minnihlutinn
í Reykjavík fái aðkomu að stjórn
Strætós, og að Innri endurskoð-
un Reykjavíkur fari með innri
endurskoðun Strætós.
Þá eigi sveitarfélögum að vera
frjálst, hverju fyrir sig, að nýta
það fé sem kunni að koma frá rík-
inu til almenningssamgangna.
- kóþ
VG um þjónustu Strætós:
Gjöldin hækki
ekki næsta árið
ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON
HÖNNUN Arkitektastofan arkitektur.is varð
hlutskörpust í hugmyndasamkeppni um
kirkju og menningarhús í miðbæ Mosfells-
bæjar.
„Kirkjuskipið er sérlega áhugavert, þar
sem samspil forms og birtu geta skapað
töfrandi andrúmsloft, og tenging þess við
safnaðarheimili og skrifstofur safnaðarins
um ofanlýsta umgjörð undirstrikar hina sér-
stæðu lögun þess. Byggingin er nánast öll á
einni hæð og samanstendur af þremur ein-
ingum; kirkju og tónlistarsal, bókasafni og
myndlistarsal, sem tengdar eru saman um
innri götu,“ segir í umsögn dómnefndar um
verðlaunatillöguna.
Höfundar tillögunnar frá arkitektur.is
eru Carlton Hlynur Keyser, Gunnlaugur
Magnússon, Haraldur Örn Jónsson, Hjörtur
Hannesson, Kristján Garðarsson, Magnea
Harðardóttir og Michael Blikdal Erichsen.
Í samkeppninni, sem Mosfellsbær og sóknar-
nefnd Lágafellssóknar stóðu fyrir, hlutu ASK
arkitektar önnur verðlaun en Arkþing og PK
arkitektar deildu þriðja og fjórða sæti.
Alls bárust 32 tillögur í keppnina, þar sem
óskað var eftir tillögu að einni byggingu
fyrir menningarhús á vegum Mosfellsbæjar
og kirkju og safnaðarheimili á vegum
safnaðar ins. „Hér er því um einstakt og
nútímalegt samstarf kirkju og sveitarfélags
að ræða,“ segir í tilkynningu frá Mosfellsbæ.
- gar
Úrslit ráðin í hugmyndasamkeppni um kirkju og menningarhús í Mosfellsbæ:
Andrúmsloftið gæti orðið töfrandi
VERÐLAUNATILLAGAN „Athyglisvert að sjá hvernig til
tókst í mörgum tillögum að virða sérstöðu Urðanna
og láta bygginguna falla vel að umhverfi sínu,“ segir
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
M
YN
D
/A
R
K
ITEK
TU
R
.IS
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
(ESB) hyggst styrkja tengslin við
Pakistan og leggja aukna áherslu
á öryggismál í samskiptum við
landið. Þetta kom fram á fundi
Asif Ali Zard-
ari, forseta
Pakistans, og
fulltrúa ESB í
Brussel.
Á fundinum,
sem báðir aðil-
ar lýstu sem
sögulegum,
buðu erindrek-
ar ESB forset-
anum hernaðar-
aðstoð við að
sigrast á skæruliðum talibana
og öðrum vopnuðum íslömskum
stjórnarandstæðingum. Þá
lýsti Jose Manuel Barroso, for-
seti framkvæmdastjórnar ESB,
ánægju sinni með viðleitni Zard-
aris til að festa lýðræði í sessi í
Pakistan. - mt
Forseti Pakistans og ESB:
Öryggismálin
sett á oddinn
JOSE MANUEL
BARROSO
GASA, AP Háttsettur fulltrúi
Hamas segir samtökin ekki geta
fallist á kröfur alþjóðasamfélags-
ins um að viðurkenna Ísraels-
ríki. Þetta kom fram eftir fund
ráðamanna Hamas með Jimmy
Carter, fyrrverandi Bandaríkja-
forseta.
„Þeir kostir sem Hamas eru
settir eru óviðunandi,“ sagði
Ahmed Youssef, aðstoðar utan-
ríkis ráðherra samtakanna.
Fundur inn með Carter var í
sjálfu sér óvenjulegur, þar sem
Bandaríkin, Evrópusambandið
og Ísrael skilgreina Hamas sem
hryðjuverkasamtök og neita að
eiga við þau bein samskipti. - mt
Carter sækir Hamas heim:
Neita að viður-
kenna Ísrael
Varar vegfarendur við
Lögreglan á Húsavík varar vegfar-
endur við sem fara um Hólssand.
Vegurinn frá Grímsstöðum á Fjöllum
að Dettifossi er í það slæmu ástandi
að ökumönnum með tjaldvagna
eða fellihýsi í eftirdragi er ráðið frá
því að aka veginn. Nýverið valt bíll á
veginum og eru tildrög slyssins rakin
til ástands vegarins.
HÚSAVÍK
Með stolið greiðslukort
Lögreglan handtók fjóra karla á þrí-
tugsaldri aðfaranótt miðvikudags en
þeir eru grunaðir um að hafa svikið út
vörur í nokkrum búðum með stolnu
greiðslukorti. Mennirnir voru hand-
samaðir í 10/11 í Hafnarfirði.
LÖGREGLUFRÉTTIR