Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 6
6 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR
Ný lausn í heimabanka Byrs
Það er einfaldara en þú heldur!
Einföld aðgerð í heimabanka Byrs þér að kostnaðarlausu
Stakar eða fastar mánaðarlegar greiðslur
Ekkert uppgreiðslugjald á íslenskum lánum undir 50 m.kr. hjá Byr
Sjáðu hvað þú sparar á byr.is
Nýttu þér persónulega þjónustu
og faglega ráðgjöf í sparisjóðnum
Milljóna sparnaður með 10.000 kr.
aukagreiðslu á mánuði
Tökum sem dæmi 11 milljón króna verð-
tryggt íbúðalán sem tekið var í septem-
ber 2007. Með því að greiða 10.000
krónur aukalega á mánuði, sparast
10.671.376 krónur á lánstímanum.
Miðað er við 6% vexti og 5% verðbólgu á
40 ára lánstíma. Aukagreiðslan bætist við
mánaðarlega afborgun og lækkar
höfuðstól lánsins. Höfuðstóllinn lækkar
hraðar en upphaflegar afborganir gera ráð
fyrir og við það sparast milljónir í
vaxtakostnaði og verðbótum.
Þú getur
sparað
milljooo.ooonir
með niðurgreiðslu
íslenskra lána!
-það er fjárhagsleg heilsa!
90
80
100
70
60
50
40
30
20
10
0
Fyrir
104
93,5
Eftir
Fj
ár
hæ
ði
r
í m
ill
jó
n
IS
K
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknir segir
að ýmis rök megi færa fyrir því
að frjálslyndari stefna um notkun
kannabisefna þurfi ekki að leiða
til versnandi ástands. Hann vísar
í rannsóknir sem bendi til að efnið
sé lítt ávanabindandi, miðað við
önnur vímuefni.
Landlæknir minnist á „þær
ógöngur“ sem fylgt hafi hinu
bandaríska „stríði gegn fíkniefn-
um“, þar sem fangelsin séu yfir-
full af fólki sem hafi hlotið dóma
vegna vímuefna. Einnig bendir
hann á jákvæða
reynslu Portú-
gala af frjáls-
lyndi.
„Nauðsynlegt
er að dæmi sem
þessi séu tekin til
fordómalausrar
umræðu,“ segir
Matthías Hall-
dórsson land-
læknir.
Þetta kemur fram í svarbréfi
hans við umkvörtunum Ólafs Skorr-
dal, sem er áhugamaður um lögleið-
ingu kannabisefna. Ólafur hafði
gert athugasemdir við ummæli á
heimasíðu SÁÁ og við ýmsar stað-
hæfingar formanns SÁÁ, Þórarins
Tyrfingssonar læknis. Þórarinn
hefur talað um tengsl kannabisefna
og harðari efna og um „kannabis-
bullurnar“, sem berjist fyrir lög-
leiðingu efnanna.
Landlæknir hvetur Þórarin til að
vera málefnalegan; hann sé í þeirri
óvenjulegu aðstöðu að vera yfir-
læknir og um leið formaður sam-
taka í fjárþörf. Stundum heyrist sú
gagnrýni að málflutningur hans sé
áróðurskenndur.
Landlæknir vísar í nokkrar rann-
sóknir sem segja kannabisefni lítið
ávanabindandi miðað við önnur
vímuefni, svo sem áfengi og tóbak.
Institute of Medicine í Bandaríkj-
unum segir til að mynda að 32 pró-
sent tóbaksneytenda verða háð tób-
aki og 23 prósent heróínneytenda
verði háð heróíni. Sautján prósent
neytenda kókaíns verði háð því
og fimmtán prósent alkóhólneyt-
enda verði háð áfengi. Níu prósent
kannabisneytenda verði hins vegar
háð kannabisefnum. Svipuð tala
sé nefnd í riti sænsku heilbrigðis-
stjórnarinnar. Efnið mælist lítt
ávanabindandi víðar.
Þrátt fyrir þetta sé víst að
kannabis neytendur leiðist stund-
um út í neyslu harðari efna, hvort
sem þar sé um orsakasamband að
ræða eða ekki, eins og rannsókn úr
Science-tímaritinu bendi til.
Landlæknir vísar í framhaldinu
í skýrslu SÁÁ, þar sem segir að
þegar neytandinn kaupi efnið „læri
[hann] lögmál vímuefnamarkaðar-
ins“ og kynnist sölumönnum sem
seinna selji honum önnur efni.
Landlæknir vekur að lokum
athygli á því að ástæða sé til að
fara með gát, enda bendi rannsókn-
ir til að lítið brot kannabisneytenda
sé líklegt til að þróa með sér geð-
sjúkdóma. klemens@frettabladid.is
Landlæknir varar
við fíkniefnastríði
Landlæknir segir að frjálslyndari stefna um kannabisefni þurfi ekki að leiða til
verra ástands. Hann varar við „fíkniefnastríði“ og vísar í kannanir sem sýni að
kannabisreykingar séu minna ávanabindandi en tóbaks- og áfengisneysla.
MATTHÍAS
HALLDÓRSSON
MENNING Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, segir að sér þyki mjög leitt að heyra
að samningaviðræður Pennans og Kaupangs um
húsaleigu Bókabúðar Máls og menningar hafi runnið
út í sandinn og að „þessi miðpunktur bókmenntalífs
Íslendinga í áratugi eigi í ágúst að heyra sögunni til“.
Eins og fram hefur komið í blaðinu skal bókabúðin
hverfa af Laugavegi 18 fyrir 1. ágúst. Heyrst hefur
að þar verði hótelrekstur, en það er óstaðfest.
Katrín segir að ekki sé á valdi hennar ráðuneytis
hvernig verslunarhúsnæði í miðborg Reykjavíkur er
fyrirkomið.
En þetta „vekur mann til umhugsunar um menn-
ingararfinn almennt og að hann leynist víðar en
margur hyggur,“ segir hún.
Bókabúð Máls og menningar sé eitt helsta menn-
ingarkennileitið við Laugaveginn. „Ég á eftir að
sakna Máls og menningar mjög ef af þessu verður
en ég vona enn að hægt sé að koma í veg fyrir þenn-
an flutning,“ segir Katrín. Hún á þó ekki við að ríkið,
eigandi búðarinnar, komi þar að málum.
Þess má geta að á Fésbók hefur verið stofnaður
hópurinn Hlekkjum okkur við Mál og menningu,
hópur sem segist vilja standa undir nafni þegar að
því komi að rýma húsið.
Fyrirtækið Kaupangur hyggst í vikunni tilkynna
áform sín um Laugaveg 18. Þar hefur verið bókabúð
frá árinu 1961. - kóþ
Menntamálaráðherra segir leitt að sjá á eftir bókabúð Máls og menningar:
Miðpunktur bókmenntalífs hverfur
ÞINGMENN Í MÁLI OG MENNINGU Á DEGI BÓKARINNAR Get-
gátur eru uppi um að í stað Máls og menningar komi hótel,
skemmtistaður, eða jafnvel önnur bókabúð. En þeir í Kaupangi
vilja ekkert segja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Orð landlæknis ríma við skoðanir Helga Gunnlaugssonar,
prófessors í afbrotafræði við Háskóla Íslands. Helgi sagði
hér í blaðinu hinn 4. apríl að stjórnvöld þyrftu að íhuga
stefnu sína í vímuefnamálum hverju sinni, og fordóma-
laust. Margt neikvætt fylgdi kannabisbanninu, sem
minnti um margt á áfengisbannið á sínum tíma. Helgi
telur heillavænlegra að reyna að draga úr áhættuhegðun
ungmenna en að lýsa yfir stríði á hendur þeim. Góð
reynsla sé af „afglæpun“ erlendra ríkja, en áframhaldandi
bann geti klofið samfélagið.
AFBROTAFRÆÐINGUR SAMMÁLA
HELGI
GUNNLAUGSSON
KANNABISLAUF Landlæknir hvetur til fordómalausrar
um ræðu um kannabisefni. Rannsóknir sýni að þau séu
minna ávanabindandi en tóbak og áfengi. NORDICPHOTOS/GETTY
ÞÓRARINN
TYRFINGSSON
ÓLAFUR
SKORRDAL
Sérðu eftir Gunnari Birgissyni
sem bæjarstjóra í Kópavogi?
Já 24,4
Nei 75,6
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er rétt af Árna Johnsen og
Bjarna Benediktssyni að skrá
ekki fjárhagslega hagsmuni
sína á vef Alþingis?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
NÁTTÚRA Bæjarráð Vestmanna-
eyja frestaði í gær ákvarðana-
töku um lundaveiði í sumar uns
fengist hefðu frekari upplýsing-
ar um varpstöðu lundans.
Lundavarpið er óvenju seint
á ferðinni í ár en í venjulegu
árferði er lundinn fullorpinn um
síðari hluta maímánaðar. Fyrir
um viku taldi Náttúrustofan að
einungis um tuttugu prósent
lundans hefðu orpið en einhver
aukning hefur verið síðan.
Það var að beiðni Náttúrustofu
Suðurlands og Bjargveiðimanna-
félags Vestmannaeyja sem
ákvarðanatökunni var frestað.
- jse
Bæjarráð í Vestmannaeyjum:
Enn óvissa um
lundaveiðina
BANKAHRUNIÐ Umræða vegna tafa
á afhendingu svokallaðra Kaup-
þingsgagna, frá ríkissaksóknara
til embættis sérstaks saksókn-
ara, er smámál sem slík, segir
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari vegna bankahrunsins.
Engir rannsóknarhagsmunir
hafi spillst. Gögnin sem um
ræðir fjalla um niðurfellingu á
persónulegum ábyrgðum lykil-
starfsmanna Kaupþings.
„Könnun á þessu starfsmanna-
máli var löngu hafin áður en þessi
kæra kom í maí. Hún breytti engu
um það,“ segir hann.
Valtýr Sigurðsson ríkis-
saksóknari sagði hér í blaðinu 13.
júní að sérstakur saksóknari hefði
sótt gögnin í vetur. „Eitt af fyrstu
verkum sérstaks saksóknara var
að sækja bankamálin til mín og
þar á meðal þetta mál,“ sagði
hann.
Ólafur Þór kannast ekki við
þetta. „Við áttum fund með ríkis-
saksóknara þann 10. febrúar og
tókum það sem okkur var afhent
en þetta var ekki í því,“ segir
hann. Spurður hverju þetta kunni
að sæta segist Ólafur ekki vita
það. „Ég held að það hafi hrein-
lega orðið mannleg mistök,“ segir
Ólafur Þór.
Annars sé þessi umræða
óheppileg „því hún gefur til kynna
að einhverjir brestir séu í réttar-
vörslukerfinu, einmitt þegar við
þurfum að sýna styrk“. - kóþ
Sérstakur saksóknari segir rannsókn málsins hafa verið löngu hafna í maí:
Kaupþingsgögnin skiptu litlu
KAUPÞING Kaupþingsgögnin bættu
ekki miklu við þau gögn sem voru til
skoðunar, segir sérstakur saksóknari.
KJÖRKASSINN