Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 42
38 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR
Ísland er land þitt
Njóttu þess í góðum gönguskóm
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
59
7
06
/0
9
Vakuum Men GTX
Toppskór fyrir þá sem gera kröfur.
Skór sem henta í lengri og krefjandi göngur.
Vatnsvarið Nubuk leður.
MFS sér til þess að skórnir passa.
GTX vatnsvörn. Vibram sóli. Þyngd: 800 g.
Verð: 49.990 kr.
Fáanlegir í dömuútfærslu.
Colorado Lady GTX
Vinsælir, vandaðir og liprir skór.
Meindl Multigriff sóli. GTX vatnsvörn.
Nubuk vatnsvarið leður.
Þyngd: 590 g.
Verð: 39.990 kr.
Einnig fáanlegir í herraútfærslu.
TNF Mens
Adversary Mid GTX
Léttir, liprir og snaggaralegir göngu- og ferðaskór.
Vatnsvarðir með GTX. Vibram sóli.
Þyngd: 470 g.
Verð: 25.990 kr.
Fáanlegir í dömuútfærslu (Minx Mid GTX)
FÓTBOLTI Síðustu leikirnir í 32 liða
úrslitum VISA-bikars karla fara
fram í kvöld og þar verða nokkrir
áhugaverðir leikir.
Einn Pepsi-deildarslagur er
í kvöld þegar Fylkir tekur á
móti Stjörnunni. Fylkismenn
eiga harma að hefna eftir að tíu
Stjörnumenn lögðu þá í Garða-
bænum um daginn.
Á Seltjarnarnesi fer fram
fyrsti KSÍ-leikur nágrannalið-
anna Gróttu og KR. Með Gróttu
leika margir fyrrverandi leik-
menn KR og verður eflaust
margt um manninn á Nesinu.
Utandeildarliðið Carl, sem er
skipað gömlum kempum, mætir
Íslandsmeisturum FH á Leiknis-
velli og í Grindavík er einnig
spennandi leikur þar sem heima-
menn taka á móti ÍA. - hbg
VISA-bikar karla:
Vesturbæjar-
slagur á Nesinu
GRÓTTUMAÐUR Kristján Finnbogason
fær væntanlega nóg að gera gegn sínum
gömlu félögum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VISA-BIKAR KARLA
32-liða úrslit, leikir kvöldsins
18.00 KA - Afturelding
19.15 Fjölnir - HK
19.15 Hvöt - Breiðablik
19.15 Valur - Álftanes
19.15 Carl - FH
19.15 Grótta - KR
19.15 Víðir - Þróttur R.
19.15 ÍBV - Víkingur R.
19.15 Grindavík - ÍA
19.15 Fylkir - Stjarnan
20.00 Keflavík - Einherji
GOLF Keppni á Opna bandaríska
meistaramótinu í golfi hefst á
Bethpage-vellinum í dag. Banda-
ríkjamaðururinn Tiger Woods
verður vitanlega í sviðsljósinu en
hann stefnir á að verja titil sinn
frá því í fyrra og vinna jafnframt
sinn fimmtánda sigur á stórmóti á
ferlinum.
Woods lét meiðsli á hné ekki
aftra sér því að vinna á Opna
bandaríska meistaramótinu í fyrra
og er nú allur að koma til eftir að
hafa verið frá keppni í átta mán-
uði. Woods vann sem kunnugt er
sigur á Memorial-mótinu á dögun-
um og þykir ekki eiga langt í land
með að ná fyrri styrk.
„Þetta er allt að koma hjá mér og
ég er allt annar og betri í fætinum.
Ég þurfti nauðsynlega á aðgerðinni
að halda, það er ekki spurning, og
þetta á eftir að skila sér þegar til
lengri tíma er litið,“ segir Woods.
Woods kveðst alltaf vera bjart-
sýnn á möguleika sína á stórmótum
og að Opna bandaríska meistara-
mótið sé þar engin undantekning,
þó svo að það sé vissulega erfið-
asta mótið af þeim öllum.
„Ég er alltaf bjartsýnn á mögu-
leika mína á að vinna þegar ég tek
þátt í stórmótunum. Opna banda-
ríska meistaramótið er samt erf-
iðasta stórmótið af öllum því
Bethpage-völlurinn er bæði með
þröngar brautir og hraðar flatir,“
segir Woods.
Nicklaus er sá besti
Hinn 33 ára gamli Woods hefur
unnið fjórtán stórmót á ferlinum
og vantar því enn fjóra titla til þess
að jafna met Jack Nicklaus. Spurð-
ur út í met bandarísku goðsagnar-
innar lá ekki á svari frá Woods.
„Jack er enn sá besti. Hann
hefur unnið átján stórtitla en ég
fjórtán. Svarið er einfalt,“ segir
Woods á blaðamannafundi í gær.
Annar golfari sem verður í
sviðsljósinu á Bethpage-vellinum
í dag er Bandaríkjamaðurinn Phil
Mickelson.
Lengi var óvíst með þátttöku
hans í mótinu vegna þess að eigin-
kona hans greindist nýlega með
brjóstakrabbamein og Mickelson
hætti um tíma í golfi til þess að
geta stutt almennilega við bakið
á henni. Þau ákváðu hins vegar í
sameiningu að hann ætti að taka
þátt í Opna bandaríska meistara-
mótinu og því verður hann meðal
keppenda í dag.
Mickelson hefur aldrei unnið
á Opna bandaríska meistaramót-
inu en hefur fjórum sinnum mátt
sætta sig við annað sætið í mótinu.
omar@frettabladid.is
Tiger á höttunum eftir
fimmtánda risatitlinum
Tiger Woods stefnir á að vinna sinn fimmtánda sigur á stórmóti þegar keppni á
Opna bandaríska meistaramótinu hefst á Bethpage-vellinum fræga í dag en þar
vann Tiger árið 2002. Hann segir þetta mót vera það erfiðasta.
SÁ BESTI? Tiger Woods vill meina að landi sinn Jack Nicklaus sé besti kylfingur allra
tíma. Tölfræðin sýni einfaldlega fram á það. Nicklaus hefur unnið átján stórmót á
ferlinum en Woods fjórtán. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið tilkynnti í gær umferða-
röðun í ensku úrvalsdeildinni á
næstu leiktíð.
Englandsmeistarar Manchest-
er United mæta nýliðum Birm-
ingham á Old Trafford í fyrstu
umferð. Þá byrjar Liverpool á úti-
velli gegn Tottenham og Arsenal
byrjar á útivelli gegn Everton en
Chelsea fær Hull í heimsókn á
Brúna.
Grétar Rafn Steinsson og
félagar í Bolton fá Sunderland í
heimsókn á Reebok-leikvanginn
en Jóhannes Karl Guðjónsson
og félagar í Burnley heimsækja
Stoke.
Fyrstu umferð má sjá hér að
neðan en leikirnir fara fram 15.
ágúst. - óþ
Umferðaröðun í enska klár:
Man. Utd mætir
Birmingham
MEISTARAR Manchester United hefur
titilvörn sína gegn Birmingham á Old
Trafford. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Fyrsta umferð - 15. ágúst
Aston Villa - Wigan
Blackburn - Man. City
Bolton - Sunderland
Chelsea - Hull
Everton - Arsenal
Man. Utd - Birmingham
Portsmouth - Fulham
Stoke - Burnley
Tottenham - Liverpool
Wolves - West Ham