Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 4
4 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR STJÓRNMÁL Árni Johnsen, þing- maður Sjálfstæðisflokks, segist ekkert hafa að fela. Ástæða þess að hann hafi ekki skráð fjárhags- lega hagsmuni sína á vef Alþingis sé sú að hann hafi „bara enga hagsmuni að skrá og aldrei haft“. Margir þing- menn eru ein- mitt skráðir þannig að þeir hafi enga hagsmuni sem reglurnar nái til. Spurður hvort Árni ætli ekki að láta Alþingi vita að eins gildi um hann, segist hann ekki vita „hvernig þetta er nákvæmlega“. Árni og Bjarni Benediktsson eru einu þingmennirnir sem eru að störfum, sem ekki hafa skráð sína hagsmuni. Ekki náðist í Bjarna í gær. - kóþ Hagsmunaskráning þings: Árni hefur ekkert að fela ÁRNI JOHNSEN VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 28° 21° 18° 19° 23° 28° 19° 19° 22° 18° 35° 19° 33° 18° 22° 21° 14° Á MORGUN Víðast 3-8 m/s, en stífari á annesjum NA-lands. LAUGARDAGUR Stíf SA-átt SV-til, annars hægari. 12 10 8 8 7 6 9 11 15 14 6 8 7 8 7 7 9 7 8 5 9 9 12 10 6 8 14 12 11 16 15 11 NORÐANÁTT Upp úr hádegi léttir til sunnan- og vestanlands og verður líklega víða bjart með köfl um síðdegis í dag og áfram á morgun. Norðaustanlands verður svöl norðan- átt með rigningu í dag, en á morgun verða skúraleið- ingar með góðum sólarköfl um. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður DÝRALÍF Ársgömlum erni var bjargað í Nátthaga við Ber- serkjahraun á Snæfellsnesi síðastliðið föstudagskvöld en hann var ataður grút og greini- lega aðframkominn. „Hann sat þarna rétt hjá tjaldi ferðafólks sem síðan tilkynnti lögreglu um málið,“ segir Róbert Arnar Stef- ánsson, forstöðumaður Náttúru- stofu Vesturlands, en hann fór á vettvang, handsamaði örninn og kom honum í búr. Síðar var hann hreinsaður í Húsdýragarðinum í Reykjavík. Vænghafið er um tveir og hálf- ur metri og segir Róbert Arnar að hann geti svifið vængjum þöndum innan skamms þar sem hann sé óðum að jafna sig. Hann telur að örninn hefði ekki lifað af án aðstoðar eins og komið var fyrir honum. Örninn er afar taugastrekktur og er ekki til sýnis í Húsdýragarðinum. - jse Örn hætt kominn í Nátthaga: Grútarblautum erni bjargað ÖRNINN Í HÖNDUM RÓBERTS ARNAR Ekki er þess langt að bíða að þessi örn breiði úr vængjum sínum aftur. MYND/RANNVEIG MAGNÚSDÓTTIR Fæða uppi á landi Barnshafandi konum í Vestmanna- eyjum er ráðlagt að fara upp á land til að fæða. Skurðdeild Heilbrigðis- stofnunar Vestamannaeyja hefur verið lokað tímabundið í sparnaðar- skyni. Konur í Eyjum munu ósáttar við þessa tilhögun. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld. VESTMANNAEYJAR LOS ANGELES, AP Bandarískir vís- indamenn hafa klónað hund sem hjálpaði við björgunaraðgerðir eftir hryðjuverkaárásina á New York 11. september árið 2001. Eigandi hundsins, kanadískur fyrrverandi lögreglumaður, hafði unnið keppni á vegum kali- forníska fyrirtækisins BioArts um að klóna heimilishund að kostnaðarlausu. Hundurinn Trakr, sem var af þýsku fjárhundakyni, aðstoðaði á sínum tíma við leit í rústum World Trade Center og fann þar konu sem var enn á lífi. Trakr drapst í apríl síðastliðnum en nú eru fimm lifandi eftirmyndir komnar í hans stað. - mt Bjargaði konu úr Tvíburaturnum: Afrekshundur klónaður VIÐSKIPTI Dæmi eru um að á undan- förnum árum hafi eignir verið færðar inn á ársreikninga fyrir- tækja á hærra verði en innstæða hafi verið fyrir. Þannig hafi verið reynt að leyna upplýsingum í þágu sérhagsmuna og í þágu stjórnenda fyrirtækjanna. Þetta segir Aðalsteinn Hákonarson, forstöðu maður eftirlitssviðs Ríkis- skattstjóra og endurskoðandi. „Eignir voru oft tilgreindar mun hærra en fengist hefði fyrir þær í sölu,“ segir Aðalsteinn. Ótt- ast Aðalsteinn að hagsmunir við- skiptavina endurskoðenda hafi verið svo miklir að endurskoðend- ur hafið gefið eftir til að vera við- skiptavinum sínum þóknanlegir. Einnig segir hann að endur- skoðendur hafi líklega ekki staðið nógu fast á bremsunni. „Viðskiptavinurinn getur alltaf sagt þeim upp ef hann er óánægð- ur með niðurstöðu ársreikning- anna,“ segir Aðalsteinn. Þóknanir til endurskoðunar- fyrirtækja voru á undanförnum árum um fimmtán milljarðar króna á ári, að sögn Aðalsteins. Þriðjungur hafi verið þóknun fyrir eiginleg endurskoðenda- störf en tveir þriðju annars konar þjónusta eins og skattaráðgjöf og skipting fyrirtækja upp í önnur minni fyrirtæki. „Það er viss tvískinnungur í því að vera með eftirlitið og vera einn- ig að ráðleggja viðskipta vininum,“ segir Aðalsteinn. Endurskoðendur firrtu sig oft ábyrgð í viðtölum eftir banka- hrunið með því að vísa í alþjóðlega staðla, að mati Aðalsteins. Hann segir þessa staðla hins vegar vera túlkaða rúmt og kalla þar af leið- andi á skynsamlegt mat og rökvísi af hálfu þeirra sem beiti þeim. „Ég óttast að menn hafi gleymt ákveðnum boðorðum í þessum alþjóðlegu stöðlum við gerð árs- reikninganna,“ segir Aðalsteinn. Vegna þeirra miklu hagsmuna sem endurskoðendur hafa af því að halda í viðskiptavini sína hefur Aðalsteinn lagt til að sett verði í lög að endurskoðendur verði skip- aðir til fimm ára í senn og ekki sé hægt að víkja þeim úr starfi nema þeir hafi brotið af sér. Framkvæmdastjóri Félags lög- giltra endurskoðenda vildi ekki tjá sig um málið. vidirp@frettabladid.is Upplýsingum leynt í þágu sérhagsmuna Forstöðumaður hjá Ríkisskattstjóra segir dæmi um að eignir hafi verið færðar á hærri verði en innstæða hafi verið fyrir. Endurskoðendur gáfu eftir til að vera viðskiptavinum þóknanlegir og firrtu sig ábyrgð með vísun í alþjóðlega staðla. EIGNIR OFMETNAR Aðalsteinn Hákonarson óttast að hagsmunir viðskiptavina endurskoðenda hafi verið svo miklir að þeir hafi gefið eftir til að vera viðskiptavinum sínum þóknanlegir. MYND/HARI Viðskiptavinurinn getur alltaf sagt þeim upp ef hann er óánægður með niður- stöðu ársreikninganna. AÐALSTEINN HÁKONARSON FORSTÖÐUMAÐUR BANKAHRUNIÐ Það er stór spurn- ing hvort ákæruvaldið eigi ekki að taka meiri þátt í umræðu um refsimál, segir sérstakur sak- sóknari, Ólafur Þór Hauksson: „Það er allavega á hreinu að lög- mannastéttin dregur ekkert af sér þar,“ segir hann. „Það er eilítil slagsíða á þessu. Þegar verið er að tala við lögmenn sem hafa verjendastörf á hendi þá fara þeir aldrei úr hlutverki verj- andans. Það hlutverk er bara eitt og það er að draga allt það fram sem er skjólstæðingnum til hags- bóta,“ segir hann. Því þurfi að líta það gagnrýnum augum sem þeir segi. Rætt hefur verið um að ýmis ummæli Evu Joly hafi gert það að verkum að hún sé ekki trúverðug sem ráðgjafi í bankahruninu. „Eva er ráðgjafi en ekki þátt- takandi í einstökum rannsókn- um og er þar af leiðandi ekki eins bundin og aðrir af því sem hún segir, en auðvitað er þetta fín lína,“ segir hann. Svo lengi sem Eva tjái sig ekki um einstök mál, þannig að óhlut- drægni embættisins megi draga í efa, sé hún réttu megin við strik- ið. „Hún skilur skoðanir sínar alveg eftir þegar hún er að vinna með okkur og miðlar til okkar af reynslu sinni. Vissulega má segja að þetta sé óhefðbundin nálgun og verklag, en við erum kannski í svolítið óhefðbundnu ástandi,“ segir Ólafur. „Þó að hún sé hvöss og brött, þá er hún ekki úr fasa.“ Eva hafi tekið upp margt „markvert og stórfróðlegt“, sem megi ræða betur. - kóþ Sérstakur saksóknari segir Evu Joly hafa verið réttu megin við strikið hingað til: Ákæruvaldið taki þátt í umræðunni EVA JOLY ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Eva er ráðgjafi en ekki þátttakandi í einstökum rannsóknum og er þar af leiðandi ekki eins bundin og aðrir af því sem hún segir, en auðvitað er þetta fín lína. ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI GENGIÐ 16.06.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 215,8944 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,93 127,53 208,73 209,75 176,23 177,21 23,666 23,804 19,754 19,87 16,235 16,331 1,3111 1,3187 195,37 196,53 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR TB W A\ RE YK JA V ÍK \ S ÍA DAXARA 107 Sturtubúnaður Innanmál 106x85x32 cm Burðargeta 295 kg Léttgreiðslur 4.408 kr. í 12 mán. léttgr. í 12 mán. 52.900 kr. 4.408 kr. www.ellingsen.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.