Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 8
8 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR
OPNUNARTÍMARAKUREYRIMÁNUDAGA-FÖSTUDAGA 10 - 18.30LAUGARDAGA 10 - 17SUNNUDAGA 13 - 17
899
SPARIÐ 900
749
SPARIÐ 750
1.199
SPARIÐ 1.200
185 x 160 x
90 sm
300 x 210
x 105 sm
130 x 100 x
75 sm
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l o
g
m
eð
2
4.
06
.2
00
9.
Í
ve
rð
un
um
e
r i
nn
ifa
lin
n
vi
rð
is
au
ka
sk
at
tu
r.
Þ
að
e
r t
ek
in
n
fy
ri
rv
ar
i á
p
re
nt
vi
llu
m
o
g
u
p
p
se
ld
um
v
ö
ru
m
.
Kópavogur Smáratorg 3 sími 550 0800 Grafarvogur Blikastaðarvegur 2-8 sími 585 0600 Akureyri Glerártorg sími 461 4500
460718
FÓTBOLTI
„TORNADO“
460828
FÓTBOLTI
„HURRICANE“
460722
FÓTBOLTI ”CYCLONE”
6.999
NÝTT
SPARIÐ 3.000
460780
SPORTS GOAL
460781
MARK
460782
MARK
4.999
SPARIÐ 3.000
9.999
SPARIÐ 5.000
OPNUNART
ÍMAR
GRAFARVO
GUR
KÓPAVOGU
R
MÁNUDA
GA-FÖST
UDAGA
11 - 19
LAUGARD
AGA 10 -
18
SUNNUD
AGA
12 - 18
HEIMUR
LEIKJA
1 Hver hlaut heiðursverðlaun
Grímunnar í fyrrakvöld?
2 Hver er leikmaður 7. umferð-
ar Pepsi-deildarinnar að mati
Fréttablaðsins?
3 Hvað heitir nýstofnað gallerí
nema við Listaháskóla Íslands?
SVÖR Á SÍÐU 42
DÓMSMÁL Karlmaður sem grunað-
ur er um að hafa nauðgað konu og
lemstrað illa hefur verið úrskurð-
aður í áframhaldandi gæsluvarð-
hald til 10. júlí.
Konan sem um ræðir var að
skemmta sér ásamt vinnufélögum
sínum í miðborginni í síðasta mán-
uði. Á skemmtistað hitti hún mann
sem var dökkur á hörund og klædd-
ur í Adidas-galla. Hann reyndi við
hana en hún hafði ekki áhuga.
Um fjögurleytið vildi konan fara
heim og reyndi að hringja í mann
sinn og dóttur, sem ekki svöruðu.
Hún hitti þá manninn aftur fyrir
utan skemmtistaðinn og hann bauð
henni far, sem hún þáði.
Þegar konan fór út úr bílnum
skipti engum togum að maðurinn
réðst á hana, veitti henni ýmsa
áverka á höfði og líkama og nauðg-
aði henni, að því er fram kemur í
gögnum málsins.
Konan var mjög ölvuð þegar
árásin átti sér stað. Hún sat grát-
andi í sundi milli húsa, með mörg
sár á báðum fótum og nærbuxna-
laus, þegar lögreglan kom á vett-
vang.
Maðurinn hefur neitað allri sök,
en sagt samræðið hafa verið með
fullum vilja konunnar. Sæði fannst
bæði á klæðnaði hans og konunnar
sem nothæft er til DNA-rannsókn-
ar. - jss
MIÐBÆRINN Árásin átti sér stað í
miðbæ Reykjavíkur.
Gæsluvarðhald yfir meintum árásarmanni framlengt:
Kona lemstruð eftir nauðgun
ALÞINGI Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknar-
flokksins, segir að samkomulag-
ið um Icesave-skuldirnar tryggi
stöðuga óvissu um efnahag og
lánshæfismat ríkisins næstu
fimmtán ár. Ástæðan sé sú að mat
manna á eignum Landsbankans
kunni að sveiflast um hundruð
milljarða frá degi til dags.
Sigmundur gerði þetta að
umtals efni á þingfundi í fyrradag
þegar hann spurði Álfheiði Inga-
dóttur VG út í fyrri yfirlýsingar
hennar um að alþjóðleg mats-
fyrirtæki hefðu tekið tillit til
Icesave-skuldbindinganna áður
en samið var um þær. - bþs
Formaður Framsóknarflokksins:
Icesave tryggir
stöðuga óvissu
MADRÍD, AP Spænsku skemmti-
ferðaskipi hefur verið snúið burt
frá tveimur Karíbahafsríkj-
um vegna svínaflensu um borð.
Samkvæmt siglingafyrirtækinu
Pullmantur hafa þrír úr áhöfn
skipsins Ocean Dream greinst
með svínaflensu og aðrir ellefu
eru með einkenni veikinnar.
Enginn er þó talinn alvarlega
veikur.
Eftir að yfirvöld á Barbados
og Grenada beindu skipinu á
brott hefur Pullmantur unnið
að því að finna leiðir til að koma
farþegum aftur til síns heima.
Ferðin sem hófst fyrir níu
dögum á Aruba, skammt undan
strönd Venesúela, er því á enda.
- mt
Skemmtisigling á enda:
Skipi snúið við
vegna farþega
með svínaflensu TEHERAN, AP Stjórnvöld í Íran sökuðu Bandaríkjamenn í gær um ólíðandi
afskiptasemi af innanríkis málum
þeirra. Þau gáfu í skyn að deilan
um lögmæti nýafstaðinna kosninga
þar í landi hefði verið mögnuð upp
af Bandaríkjamönnum. Í yfirlýs-
ingu frá Hvíta húsinu er ásökun-
inni hafnað.
Eftir að Mahmoud Ahmadinejad
var endurkjörinn forseti Írans í
síðustu viku blossuðu upp mikil
mótmæli, þau mestu þar í áratugi,
og sögur kviknuðu um kosninga-
svindl. Barack Obama Bandaríkja-
forseti tjáði sig í kjölfarið. Hann
sagðist deila þungum áhyggjum
heimsbyggðarinnar af ástandinu
og styddi rétt allra til friðsamlegra
mótmæla. Hins vegar væri ekki
vænlegt til árangurs, í ljósi fyrri
samskipta þjóðanna, að skipta sér
of mikið af. Þessa afstöðu ítrekaði
talsmaður Hvíta hússins í gær.
Þýsk stjórnvöld sögðu í gær
ýmislegt benda til þess að um kosn-
ingasvindl hefði verið að ræða. Því
kæmi ekki á óvart að Ali Kham-
enei, æðsti klerkur Írans, hefði
fyrirskipað opinbera rannsókn á
kosningunum.
Bæði Ahmadinejad og mót-
frambjóðandi hans Mir-Hossein
Mousavi lýstu yfir sigri að lokn-
um kosningunum. Opinberar tölur
sýna hins vegar sigur Ahmadin-
ejads.
Fylgismenn Mousavis fjöl-
menntu á götur höfuðborgarinnar
Teheran í gær, fimmta daginn í
röð, og létu óánægju sína í ljós.
Yfirvöld hafa látið handtaka
hundruð mótmælenda og tilkynnt
að íranskir vefsíðuhöldar skuli
fjarlægja allt efni sem geti „valdið
spennu“, eða eiga ella á hættu mál-
sókn.
Þá léku sjö leikmenn íranska
landsliðsins í knattspyrnu með
grænan borða á handleggnum
gegn heimamönnum í Álfukeppn-
inni í knattspyrnu í Suður-Kóreu
í gær. Grænn er einkennislitur
Mousavis. - sh
Mótmælt var á götum Teheran fimmta daginn í röð og enn slær í brýnu á milli Írana og Bandaríkjamanna:
Íranar átelja afskipti Bandaríkjamanna
HVAR ER ATKVÆÐIÐ MITT? Gríðarmikill fjöldi mótmælti á götum Teheran í gær og
gagnrýnti meint kosningasvindl. NORDICPHOTOS/AFP
VEISTU SVARIÐ?