Fréttablaðið - 18.06.2009, Side 10
10 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR
Roskilde University - Denmark
ruc.dk/global
Bachelor of Science
Interdisciplinary studies in an international environment
„Íslendingar fengju úthlutað 6 þingsætum af
751 á Evrópuþinginu og færu því með minna
en 1% atkvæða þar. “
Það er ljóst að Ísland hefði lítil áhrif innan Evrópuþingsins
en þar að auki hefði Ísland lítið að segja um stefnumörkun
og ákvarðanir í öðrum stofnunum Evrópusambandsins.
Með Ísland svo til valdalaust innan Evrópusambandsins
hefðu atkvæði íbúa Íslands mun minna vægi en þau hafa
nú, þar sem sigurvegarar kosninga á Íslandi hefðu lítið að
segja um hvaða lög og reglur gilda hér á landi.
Máni Atlason, laganemi við Háskólann í Reykjavík
Ég vil að íbúar Íslands
kjósi ráðamenn landsins
Ertu sammála? Skráðu þig á www.heimssyn.is
STJÓRNMÁL Starf fjármálaráðherra,
starfsskipulag og umfang er það
mikið og þess eðlis að nauðsyn-
legt er talið að hann hafi bílstjóra
og ráðherrabifreið til afnota í þágu
embættis síns, segir í svari fjár-
málaráðuneytisins við fyrirspurn
Fréttablaðsins um ráðherrabíla.
Þá er einnig litið til öryggismála
varðandi æðstu stjórn ríkisins. Í
svarinu er þess jafnframt getið að
samkvæmt skilyrðum lögreglu-
yfirvalda eru allar bifreiðar ráð-
herra búnar sérstöku öryggis- og
fjarskiptakerfi.
Þá segir í svari ráðuneytisins að
í ljósi núverandi efnahagsástands
verði ekki séð á þessu stigi að eðli
starfa ráðherra breytist, nema þá
helst að ráð megi gera fyrir auknu
álagi á næstu misserum.
Ráðherrabíll fjármálaráðherra
er af tegundinni BMW 530, árgerð
2005, svartur að lit. Kaupverð bif-
reiðarinnar var 5.453.000 krónur,
að því er segir í svari fjármála-
ráðuneytisins. - kh
Fjármálaráðuneytið um fyrirspurn um ráðherrabíla:
Bíllinn kostaði fimm
og hálfa milljón
BÍLL FJÁRMÁLARÁÐHERRA Allir ráð-
herrabílar eru með sérstakt öryggis- og
fjarskiptakerfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jónína skrifar: „Við hjónin keyrðum
norður til Akureyrar fyrir síðustu
helgi. Okkur fannst skrýtið að sjá
að bensínverðið á Akureyri var mun
lægra en hér í Reykjavík, munaði
um fimm krónum á lítra yfir línuna.
Ég var svo að ræða við konu nokkra
sem hafði farið í bíltúr til Hveragerð-
is sömu helgi og hún hafði líka verið
að furða sig á því hvers vegna bensín-
verðið í Hveragerði hefði verið um
fimm krónum ódýrara þar. Svo ég
myndi vilja fá að vita hvort þetta sé
málið – erum við í Reykjavík að niður-
greiða bensínið út á land?“
Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu
staðfestir að bensínverð á jaðarsvæð-
um í Reykjavík sé oft lægra og eins úti á
landi, til dæmis á Akureyri, í Borgar nesi
og á Selfossi. „Ástæðu þess tel ég vera að
þarna eru okkar nýjustu stöðvar, sem og
að á þessum stöðum er meiri lausatraffík
en annars staðar. Fólk er á ferðalagi og
í bústöðum og er því ekki eins trútt sínu
aðalviðskiptafyrirtæki. Það eru kannski
þrjár stöðvar á sama blettinum, eins og
til dæmis á Selfossi, og þar hafa reglu-
lega myndast spíraláhrif þannig að verð
lækkar. Kúnnarnir eiga auðvelt með að
bera saman verðið og því eðlileg krafa að
við reynum að bjóða sem allra best.“
Hugi segir að bensínverð sé síbreyti-
legt og
breytist
jafnvel oft á
dag. „Hér áður
fyrr voru níu til
tólf verðbreytingar á
ári, nú eru þær líklega um 70-80 bæði til
hækkunar sem og lækkunar.“
Gsmbensin.is er frábær síða þar sem
bera má saman bensínverðið í landinu.
Klukkan fjögur í gær var ódýrasta bens-
ínið hjá Orkunni í Grundarfirði, 168,20 kr.
lítrinn af 95 okt, en það dýrasta var hjá
Shell á Bíldudal, 180,80 kr. lítrinn.
Neytendur: Ódýrara bensín á landsbyggðinni?
Virk samkeppni á álagsblettum
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
ÓDÝRARA ÚTI Á
LANDI Bensín á
jaðarsvæðum í
Reykjavík er oft
ódýrara.
VARNARMÁL Lawrence Chalmer er
yfirmaður Menntunarstofnunar
NATO og er á Íslandi í þessari viku
til að eiga fund með þingmönnum
og yfirmönnum hjá Varnarmála-
stofnun Íslands. Þetta er í þriðja
sinn sem hann kemur til Íslands.
Fréttablaðið tók viðtal við hann
um stöðu Íslands innan Atlants-
hafsbandalagsins og um störf hans
í þágu bandalagsins.
Chalmer segir NATO hafa vaxið
mikið á undanförnum árum og ára-
tugum. Upphaflega hafi þjóðirn-
ar verið 12 árið 1949, en í dag eru
þær 28. Verkefni NATO hafa verið
að þróast og hefur NATO meðal
annars hjálpað til við ástandið í
Afganistan og gefið peninga til
þróunaraðstoðar eftir flóðbylgj-
una í Suðaustur-Asíu. Nýlega vann
NATO með Afríkuráðinu vegna
ástandsins í Súdan.
„Ýmis verkefni sem NATO hefur
verið að vinna að eru einhver sem
fólk hefði ekki getað ímyndað sér
fyrir nokkrum árum að NATO væri
að vinna að,“ segir Chalmer. Hann
segir að jafnvel eftir tuttugu ár
muni NATO vera að vinna að verk-
efnum sem við gætum ekki séð
fyrir í dag hver væru. Bandalagið
sé ört stækkandi og verkefnin fjöl-
breytt.
Mikilvægt er fyrir Ísland að vera
í NATO, að mati Chalmers. „Hver
þjóð kemur með eitthvað til starf-
semi NATO, hvort sem það er lækn-
isfræðilegt, varnarmálatengt eða
annað því um líkt,“ segir Chalm er.
Hver og ein þjóð innan bandalags-
ins er mikilvæg á sinn hátt að mati
Chalmers. Þjóðirnar vinni betur
saman en hver í sínu lagi.
„NATO er ekki yfirþjóðlegt
bandalag sem fer inn á valdsvið
aðildarríkjanna. Hver þjóð getur
valið um hvort hún er hluti af
bandalaginu,“ segir Chalmer.
Chalmer vinnur fyrir Mennt-
unarstofnun NATO í Washington.
Þar fer meðal annars fram undir-
búningur fyrir þá sem munu starfa
fyrir NATO.
„Við kynnum fólkið fyrir þeim
áskorunum sem þau geta staðið
frammi fyrir,“ segir Chalmer um
hlutverk menntunarstofnunarinnar.
Hann rifjar upp að fyrir nokkrum
árum hafi hann fengið íslenskan
fyrirlesara til að tala við nemend-
ur sína. Nemendunum hafi fundist
gott og mikilvægt að heyra sjónar-
mið Íslands. vidirp@frettabladid.is
Mikilvægt fyrir Ís-
land að vera í NATO
Yfirmaður Menntunarstofnunar NATO segir þjóðir vinna betur saman en hver
í sínu lagi. Mikilvægt sé fyrir Ísland að vera í NATO. Bandalagið sé ört stækk-
andi. Hann mun eiga fund með yfirmönnum hjá Varnarmálastofnun Íslands.
LAWRENCE CHALMER Er á Íslandi í þriðja sinn og segir mikilvægt fyrir Ísland að vera
hluti af NATO. Hver þjóð sé mikilvæg á sinn hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
INNILEG FAÐMLÖG New York-búi virðir
fyrir sér auglýsingu frá Calvin Klein.
Auglýsingin, sem skartar fáklæddum
fyrirsætum sem láta vel hver að ann-
arri, þykir ögrandi og hefur vakið umtal
í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP