Fréttablaðið - 18.06.2009, Síða 14
14 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Njóttu góðrar máltíðar
með vinum og vanda-
mönnum með SS grill-
kjöti.
Ljúffengur krydd-
lögurinn dregur fram
það besta í kjötinu og
vel grillað kjöt laðar
fram brosið á fólkinu
þínu.
Grillkjötið frá SS –
fyrir sérstakar
stundir.
Endurfundir
við grillið
www.ss.is
Drepur fótsveppinn
- þarf aðeins að bera á einu sinni
Kvennahlaup ÍSÍ verður
haldið í tuttugasta sinn á
laugardag. Margrét Jóns-
dóttir lætur sig ekki vanta
frekar en endranær, en hún
hefur hlaupið á hverju ári
frá upphafi og lætur engan
bilbug á sér finna þótt hún
sé komin á sjötugsaldur.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er útbreidd-
asti og fjölmennasti íþróttaviðburð-
ur sem haldinn er á Íslandi ár hvert.
Um 15-20 þúsund taka þátt á um 84
stöðum hérlendis og á sextán stöð-
um erlendis. Fjölmennasta hlaupið
er í Garðabæ, en þar ætlar Margrét
einmitt að hlaupa. Hún man hins
vegar vel eftir fyrsta Kvennahlaup-
inu fyrir réttum tuttugu árum, en
þá var þátttaka öllu minni en síðar
varð. „Ég hef lengi haft áhuga á úti-
vist og íþróttum, hef stundað hlaup
lengi. Það var mjög nýstárlegt að
fara út að skokka þegar ég var að
byrja, maður þótti hálfskrítinn
svona í fyrstu,“ segir hún og hlær.
Skokkinu óx fiskur um hrygg á
níunda áratugnum, ekki síst fyrir
tilstuðlan fólks eins og Margrétar,
sem stofnaði skokkklúbb á
Seltjarnar nesi, þar sem hún bjó
þá. Þegar Margrét frétti af fyrsta
Kvennahlaupinu 1990 var hún fljót
að skrá sig til leiks. „Við vorum ekki
mjög margar sem hlupum fyrsta
árið, en á hverju ári fjölgaði þátt-
takendum í hlaupinu og nú eru þetta
á bilinu fimmtán til tuttugu þúsund
konur sem hlaupa á hverju ári.“
Margrét kveðst yfirleitt reyna að
hlaupa níu kílómetra, nema þegar
hún hefur tekið barnabörnin með
sér, þá láti hún sér nægja skemmti-
göngu. Hún hefur aldrei lagt kapp
á að ná ákveðnum tíma. „Ég gæti
mín á því að fara ekki hraðar en
ég ræð við. Ég hef verið lánsöm
upp á það að gera að ég hef alltaf
verið heilsuhraust og aldrei orðið
fyrir alvarlegum meiðslum. Þeir
sem vilja geta auðvitað sett sér
ákveðin markmið en þetta á fyrst
og fremst að vera skemmtilegt.“
Það á ekki síst við um þær sem ætla
að hlaupa í Kvennahlaupinu í fyrsta
sinn í ár. „Þeim ráðlegg ég að reyna
ekki meira á sig en þær ráða við og
hlaupa ánægjunnar vegna; lykillinn
að góðri hreyfingu og útivist er að
láta sér líða vel.“
Íþrótta- og ólympíusamband
Íslands leitar eftir fleiri konum eins
og Margréti, sem hafa tekið þátt í
kvennahlaupinu í tuttugu ár. Vin-
samlegast sendið ábendingar á Jónu
Hildi Bjarnadóttur, framkvæmda-
stjóra Kvennahlaupsins, á netfangið
jona@isi.is. Nánari upplýsingar um
Kvennahlaupið má finna á heima-
síðunni kvennahlaup.is.
bergsteinn@frettabladid.is
Þetta á fyrst og fremst
að vera skemmtilegt
Eflaust muna margir eftir Sigurveigu Jónsdóttur
en hún var fréttamaður hjá Sjónvarpinu
en gekk síðar til liðs við Stöð tvö þegar
stöðin hóf göngu sína árið 1986 og var
fréttastjóri þar um skeið. En hvað er að
frétta af Sigurveigu nú?
„Ég hef það nú bara nokkuð gott og
nýt þess að vera í sumarfríi þessa stund-
ina,“ segir hún. „Ég hef verið síðustu sex
eða sjö árin að skrifa sögur fyrirtækja í
samstarfi við Helgu Guðrúnu Johnson.
Við höfum líka gefið út bæklinga,
skrifað texta á vefsíður og
svona eitt og annað.“ Þeir sem
komnir eru vel á þrítugsald-
urinn muna eflaust einnig
eftir Helgu Guðrúnu sem var
kollegi Sigurveigar á Stöð
2. „Við höfum skrifað sögu
fyrirtækja eins og Flugleiða, Símans og Lýsis svo
dæmi séu tekin en eins höfum við skrifað
um byggingu álversins á Reyðarfirði og
áhrif hennar á samfélagið á Austurlandi.“
Auðvitað verður ekki hjá því komist
að spyrja hvort hún sakni ekki erilsins
á fréttastofu Stöðvar 2. „Þetta voru
vissulega mjög skemmtilegir tímar en
venjulega þykir mér það skemmtilegast
sem ég er að gera þá stundina, það er til
dæmis mjög gefandi og skemmtilegt
að sjá sögu þjóðarinnar í gegn-
um auga eins fyrirtækisins. En
ég fer heldur ekkert á mis við
gamla fjörið því við höldum
ennþá hópinn og hittumst
reglulega, svona einu sinni
í mánuði, gömlu kollegarnir
og makar.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR FJÖLMIÐLAKONA
Gamla Stöðvar 2 gengið hittist reglulega
HLAUPIÐ Í TUTTUGU SKIPTI Margrét hefur ekki misst úr Kvennahlaup frá byrjun. Hún hleypur yfirleitt níu kílómetra, fyrir utan
þegar barnabörnin koma með, þá lætur hún góða skemmtigöngu nægja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Búnaðarsamband Vestfjarða mun senda forsætisráðu-
neytinu á næstu dögum áskorun um að stuðla að því
að búskapur verði hafinn á nýjan leik á Hrafnseyri
við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.
Stjórn Búnaðarfélags Auðkúluhrepps á frumkvæði
að málinu en í því sitja bæði Hallgrímur Sveinsson,
sem síðast var þar með búskap eða til ársins 2005, og
hjónin Hreinn Þórðarson og Hildigunnur Guðmunds-
dóttir frá Auðkúlu sem er næsti bær við Hrafnseyri.
„Það er áríðandi fyrir okkur að fá tengingu við
þetta svæði hérna, þá kemst sveitin okkar aftur í
byggð,“ segir Hildigunnur sem vonast til þess að ef
ungt og drífandi fólk hæfi þar búskap myndi krafan
um samgöngubætur við svæðið fá byr undir báða
vængi.
Árni Brynjólfsson, formaður Búnaðarsambands
Vestfjarða, segir hugmyndina að fá stjórnvöld til að
athuga hvort áhugi sé til staðar hjá ungu fólki til að
hefja þar búskap og ef svo sé að greiða götu nýrra
ábúenda svo líf komist aftur í mannvirkin á staðnum.
Aðeins einn starfsmaður hefur verið á Hrafnseyri
yfir sumartímann frá því að búskap var hætt. Hildi-
gunnur segir að flokkur sveitunga þynnist óðum en
þau sjálf hafa hætt búskap og búa yfir háveturinn á
Þingeyri. „Við erum svo alveg eins og kálfar á vori
þegar við komum hingað í apríl,“ segir hún og hlær
við. - jse
Búnaðarsamband Vestfjarða skorar á forsætisráðuneytið:
Vilja aftur búskap á Hrafnseyri
HJÓNIN Á AUÐKÚLU Hreinn og Hildigunnur vonast til þess að
meira líf færist í nágrannabæinn á Hrafnseyri.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Kviknaktir
í Peningagjá
„Þeir voru reknir upp úr en
létu sér ekki segjast. Þegar
landvörðurinn fór stungu þeir
sér strax út í aftur.“
JÓNA GUNNARSDÓTTIR LAND-
VÖRÐUR Á ÞINGVÖLLUM UM
DANSKA VÍKINGA SEM KÖSTUÐU
AF SÉR ÖLLUM HERKLÆÐUM
OG STUNGU SÉR KVIKNAKTIR TIL
SUNDS.
Vísir.is 17. júní 2009
Mjög undrandi
„Ég er mjög undrandi á þessu
og finnst þetta mjög skrítin
lánveiting.“
GYLFI MAGNÚSSON VIÐSKIPTARÁÐ-
HERRA UM SJÖTÍU MILLJÓNA KÚLU-
LÁN TIL SIGURJÓNS Þ. ÁRNASONAR
Í GEGNUM NÝJA LANDSBANKANN.
Fréttablaðið 17. júní 2009
AUSTRINN:
KOMMÚNÍSKUR VESTRI
■ Á tímum kalda stríðsins var
framleiddur handan járntjaldsins
fjöldi kvikmynda í anda amerísku
vestranna. Svokallaðir„Rauð rófu -
súpu vestrar“ gerðust í Ameríku, svo
sem rúmenska
myndin Olían,
barnið og Trans-
sylvaníu búarnir,
sem lýsti hlut-
skipti austur-
evrópskra
landnema.
„Austri“ var teg-
undarheiti mynda sem gerðar voru
undir áhrifum af vestrum en gerðust
á gresjum Asíu og fjölluðu um hrær-
ingar kringum rússnesku byltinguna
og borgarastyrjöldina sem fylgdi.