Fréttablaðið - 18.06.2009, Qupperneq 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Hann er nú kannski ekkert sér-
staklega sumarlegur en kemur
engu að síður að góðum notum á
íslenskum sumarkvöldum, sem
eru nú ekkert sérstaklega hlý,“
segir Inga María, sem hefur oft-
sinnis gert góð kaup hjá Hjálpræðis-
hernum. Pelsinn er líklega frá því
um 1970, snjáður en mjög klæði-
legur.
„Ég held annars mikið upp á
notuð föt sem hafa verið í eigu
íslenskra kvenna og finnst mun
skemmtilegra að kaupa þau á mörk-
uðum og bösurum en að kaupa þau
í þar til gerðum tískubúðum sem
kaupa inn notuð föt og selja svo,
með fullri virðingu fyrir þeim.“
Um hálsinn er Inga María með
gullkross sem nafna hennar og
amma, Inga Þorgeirsdóttir, gaf
henni í skírnargjöf, en þrátt fyrir
að krossinn sé aðeins um senti-
metri að lengd er nafn Ingu Maríu
grafið í hann.
„Annars er ég mjög dugleg að halda
utan um allt sem er í fataskápnum
mínum og margar flíkur verða í
uppáhaldi í einhvern tíma og geta
svo komið sterkar inn seinna. Ef
ég þarf að laga föt eða breyta þeim
sem ég kaupi notuð nota ég gjarn-
an saumavélina mína sem ég fékk
í stúdentsgjöf frá afa mínum heitn-
um, Ingólfi Guðbrandssyni,“ segir
Inga María og bætir því við að
saumavélin sé eitt af hennar eftir-
lætisheimilistækjum.
juliam@frettabladid.is
Tveir eftirlætishlutirnir
mínir í augnablikinu
Inga María Leifsdóttir, kynningarstjóri Íslensku óperunnar, heldur mikið upp á Hjálpræðisherinn og
keypti þar gervipels fyrir fáeinum árum. Hann er í uppáhaldi ásamt gullkrossi sem hún fékk í skírnargjöf.
Inga María Leifsdóttir í gervipelsinum sem hún keypti hjá Hjálpræðishernum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÚTSALA
Opið mán. - fös. frá kl. 11:00 - 18:00
Laugardaga frá kl. 11:00 – 16:00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Kjóll
Áður 8.950 kr.
Nú 5.500 kr.
Skór
Áður 7.700 kr.
Nú 4.900 kr.
GÖMUL TÚPUSJÓNVÖRP munu vafalaust brátt verða eftirsóttur
antíkvarningur enda hætt að fást víðast hvar. Hendið því ekki sjónvarpinu
þegar þið hyggist endurnýja viðtækið. Það er eflaust hægt að selja það, til
að mynda á sölusíðum á netinu.