Fréttablaðið - 18.06.2009, Page 25
3
Hönnunarráðgjafinn og menning-
arfrömuðurinn prófessor Tadanori
Nagasawa frá Musashino-lista-
háskólanum heldur fyrirlest-
ur um japanska nútímahönnun í
Norræna húsinu, laugardaginn 20.
júní næstkomandi. Fyrirlesturinn
er liður í fjölbreyttri dagskrá 101
Tokyo, sem er viðamikil kynning
á Japan samtímans og Norræna
húsið stendur fyrir.
„Fókusinn verður líklega á jap-
anska hönnun sem víðtæka hug-
mynd og þá verður bæði rætt um
hönnun og lífsstíl. Það kæmi mér
ekki á óvart að Nagasawa myndi
tengja þetta Japanesque Mod-
ern sem er þriggja ára verkefni
sem allur japanski listageirinn,
stjórnvöld og japanski iðnaðurinn
tóku þátt í og gekk út á að finna
kjarnann í japanskri hönnun og
skilgreina hvað væri sérstakt við
hana,“ segir dr. Kristín Ingvars-
dóttir verkefnisstjóri og nefnir að
í raun hafi Nagasawa verið gefinn
laus taumur um efnisval. „Þetta
er hans sérsvið og hann kennir
í Bretlandi, Japan og víðar. Því
treystum við honum og fær hann
frjálsar hendur. Þó verður fyrir-
lesturinn innan ramma nútíma-
hönnunar sem er að vísu frekar
breiður.“
Nagasawa er aðstoðarrektor
við Musashino-listaháskólann í
Tókýó sem er einn
af bestu skólum
sinnar tegundar
í Japan. „Hann
hefur mikið sinnt
alþjóðatengslum
innan skólans en
hefur einnig tengst
stórum japönsk-
um hönnunarverk-
efnum eins og Japa-
nesque Modern,“ útskýrir
Kristín. Fyrirlesturinn
höfðar að hennar sögn til
tveggja hópa sem skarast
töluvert. „Þá á ég annars
vegar við alla sem hafa
áhuga á hönnun í víðum
skilningi og hins vegar þá
sem hafa áhuga á Japan
samtímans.“
Japan var fyrsta iðn-
vædda ríkið í Asíu og
er enn mikið stórveldi
í útflutningi. „Þeir eru
gríðar lega flinkir í allri
vöru hönnun, hvort sem er
Sony, Toyota eða eitthvað
annað. Upp á síðkastið
hefur samkeppnin við
lönd eins og Taívan,
Kína og Indland aukist
gríðarlega þannig að Japan-
ar hafa unnið að því síðustu
ár að skilgreina enn betur
hvað einkennir japanska hönn-
un, bæði nýja og gamla,“ segir
Kristín og bætir við að Ísland
og Japan eigi ýmis-
legt sameiginlegt.
„Uppruna lega
hug myndin að
þessu verkefni
tengist Norræna hús-
inu, það er bygging-
unni sjálfri. Alvar
Aalto, sem hannaði
húsið, var undir sterk-
um áhrifum frá jap-
anskri byggingar list
og hönnun en auk
þess höfðu hann
og aðrir norrænir
hönnuðir miki l
áhrif á þróun ina í
Japan. Þessi gagnkvæmi
áhugi er kveikjan að Jap-
anshátíð Norræna hússins.
Við viljum
því vekja
at hygl i á
því sem er
l í k t me ð
japanskri
og íslenskri menningu. Það er
sameigin legur tónn í fegurðar-
skyni Norðurlandabúa og Japana
og gengur dagskráin svolítið út á að
leiða saman íslenskt og japanskt.“
Auk sýninga, tónleika og fyrir-
lestra er boðið upp á listasmiðjur
þar sem læra má japanska tesiði,
blekmálun, japanska skrautskrift
og sushi-gerð endurgjaldslaust.
Hægt er að fræðast nánar um dag-
skrána og skrá sig í listasmiðjur á
www.101tokyo.is.
hrefna@frettabladid.is
Japan og Ísland mætast
Norræna húsið stendur um þessar mundir fyrir viðamikilli kynningu á Japan samtímans. Dagskráin er
fjölbreytt og verður prófessor Nagasawa meðal annars með fyrirlestur um japanska nútímahönnun.
Kristín segir dagskrá 101 Tokyo tengja saman Japan og Norður-
löndin og þá einkum Ísland og Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Japanskur fótabúnaður þar sem fortíð
og nútíð mætast.
MYND/JAPANESE MODERN COMMITTEE
GAMLIR POSTULÍNSBOLLAR, mismunandi að gerð, geta
myndað fallegt heildarsafn kaffibolla. Þá er hægt að bæta bollum
smám saman í safnið. Hjá Þorsteini Bergmann fást fallegir bollar á
góðu verði. Einnig má finna bolla í Kolaportinu og í Góða hirðinum.
Vélmennið
ASIMO getur
skroppið í
göngutúr með
manneskjum.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&