Fréttablaðið - 18.06.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er fimmtudagurinn 18.
júní, 169. dagur ársins.
2.56 13.29 0.02
1.33 13.13 0.57
Félagi minn, sem telur sig allra manna fróðastan um bíla,
bauðst fyrir nokkru til að aka
fjölskyldubílnum á bílasölu til
þess að kanna hvort fyrir hann
mætti fá góðan jeppa. Nokkrum
mínútum eftir að hann kom á stað-
inn hringdi bílaáhugamaðurinn og
spurði hvort fjölskylda mín gæti
hugsað sér að skipta á Volvónum
góða og svörtum Range Rover
með „milljón á milli“ eins og hann
orðaði það.
ÞEGAR ég heyrði erindið greip
mig tilfinning sem líkast til hefur
svipað til þeirrar sem greip prins-
essuna sem sá Hans klaufa forðum
daga koma ríðandi á geit, sveiflandi
dauðum hrafni en þess albúinn að
hreppa konunglegt kvonfang og
hálft kóngsríkið. Í huganum sá
ég mig fyrir mér reyna að leggja
Range Rover í stæði í Vesturbænum
undir vökulu augnaráði velviljaðra
vegfaranda sem myndu hugsa með
sér hvernig vesalings konan hefði
lent í þessu.
„HVERSLAGS fordómar eru
þetta“ hugsaði ég því næst og
reyndi að hrista úr mér hrollinn.
„Þig langar í jeppa, hví getur hann
ekki heitið Range Rover?“ Því næst
spurði ég holdgerving Hans klaufa.
„Hvernig er það? Eru þessir bílar
sparneytnir og ódýrir í viðhaldi.“
Við þeirri spurningu fékk ég nei-
kvætt svar. „En fyrst við fáum
milljón á milli kemur það kannski
út á eitt“ sagði ég en til þess eins
að komast að því að það væri ég
sem ætti að greiða milljónina á
milli.
ÉG GREIP fyrir hjartað og hugs-
aði fallega til alls þess góða fólks
sem í gegnum tíðina hefur látið
pranga inn á sig undarlegum
fararskjótum. Því næst prófaði ég
að gúggla orðið Range Rover og sá
að næst vinsælasti valmöguleikinn
í tengslum við það orð er „for sale“.
Þá skoðaði ég innlenda frétt frá 5.
janúar í fyrra sem sagði að þrátt
fyrir vaxandi efnahagsþrengingar
í heiminum væri eftirspurn eftir
þessum bílum hér á landi.
ÞÓ ÉG vilji vel trúa á hvers konar
yfirskilvitleg fyrirbæri þá botna
ég ekki í því hvers konar sjáendur
við eigum hér á landi. Eftir á að
hyggja dundu á okkur hvers kyns
illir fyrirboðar komandi hörm-
unga. Hér varð mikill skjálfti, hér
gengu alls konar óargadýr á land
og höfnin hér fylltist af bílum eins
og híbýli faraós Egyptalands af
engisprettum forðum. Hvernig
gátu allir þessir illu fyrirboðar
farið fram hjá fólki sem á víst að
sjá lengra en nef sitt nær.
Dauðum hrafni
veifað