Fréttablaðið - 03.07.2009, Side 25
3. júlí föstudagur 5
Bragasonar en ekki minnst einu
orði á framlag allra hinna – auð-
vitað af því að fínast allra var að
vera „leikstjórinn“. Það var það
sem skipti öllu máli. Fólk er oft svo
fast í ákveðnum hugsunarhætti.
Sigurjón: Ef Katrín Jakobsdóttir,
og þessi endurskoðunarnefnd,
breytir því þannig að RÚV verði
leiðandi og aðrir elta, þá er það
gott.
Jón: Já, mér líst vel á Katrínu,
hef fulla trú á henni. Hallgrímur
Helgason skrifaði einhvern tím-
ann að það að reyna að koma nýrri
hugmynd á framfæri við RÚV væri
eins og að gefa sig á tal við ókunn-
uga úti á götu. Viðmótið væri vand-
ræðalegt, farið væri undan í flæm-
ingi og óvissa hvernig taka ætti í
hugmyndirnar. Árið 1995, fyrir fjór-
tán árum, þegar við vorum með
innslög í Dagsljósinu, stóðum við
í þeirri trú að við tæki nýtt grín á
RÚV. Við værum nýju fyndnu gæj-
arnir og við fengjum að taka við af
Spaugstofunni síðar meir. En nei,
nei. Fjórtán árum síðar – Spaug-
stofan er enn.
Sigurjón: Það verður samt að
segja Þórhalli dagskrárstjóra til
hróss að maður er allavega farinn
að tala við RÚV, og það er nýtt.
Áður en hann kom var þetta bara
hryllingur. Sjónvarpið má samt
ekki detta í það að verða Skjár
einn – þremur árum síðar.
Jón: Það er eitt sem fer í taug-
arnar á mér, alveg skelfilega í
taugarnar á mér.
Sigurjón: Ég hef heyrt þetta
áður …
Jón: Nei, ekki þetta – en það er
þegar skapandi hugsun er brotin
niður af einhverri stofnun. Sjáið
bara pabba Villa Vill og Ellýjar.
Hann var staðráðinn í því að
skíra börnin sín eftir eyjum, og
Ellý var skírð Eldey. En svo þegar
Vilhjálmur fæddist og það átti
að skíra hann Þrídrang þá mætti
mannanafnanefnd á svæðið og
bannaði það. Hugsið ykkur hvað
það væri svalt og sérstakt ef Villi
Vill væri kynntur í útvarpinu sem
Þrí drangur í dag. Mér finnst RÚV
eigin lega vera voðalega mikið í
hlutverki mannanafna nefndar-
innar. Það er samt rétt að taka
fram að við erum samt ekki að
gagnrýna Spaugstofumennina per-
sónulega heldur RÚV. Þeir eru allir
frábærir og þetta snýst ekki um þá
persónulega.
Sigurjón: Þótt þeir haldi það allt-
af. Við viljum bara sjá þá meira í
Þjóðleikhúsinu.
Sigrún Eðvaldsdóttir á nokkra áhrifa-
valda í sínu lífi. Einn þeirra er Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari. „Guðný,
samstarfskona mín, var kennarinn
minn hér áður fyrr. Hún aðstoðaði mig
og leiðbeindi eftir fremstu getu, hvatti
mig áfram og var mér mikill stuðningur.
Hún Guðný er bara svo hvetjandi og
jákvæð í alla staði og áttaði sig á því
hvernig ætti að draga fram það besta í
mér. Algjör vítamínsprauta.“
Þá segir Sigrún föður sinn, Eðvald Eð-
valdsson, mikinn áhrifavald. „Hann
pabbi minn var rosalegur klettur í mínu
lífi. Hann leiddi mann alltaf áfram,
þegar á þurfti að halda. Ég verð alltaf
mjög þakklát fyrir það,“ útskýrir hún
og segir ekki sjálfgefið að eiga svona
góða að. „Alls ekki. Ég fann það sér-
staklega eftir að pabbi féll frá. Þá fyrst
áttaði ég mig á því hvað ég hafði
verið heppin að eiga svona
góðan föður og vin.“
Ekki segist Sigrún hafa
reynt að feta sérstaklega
í fótspor þessara áhrifa-
valda en kveður þá
hins vegar hafa gefið
sér ómetanlegt vega-
nesti út í lífið.
GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari
ÁHRIFA-
valdurinn