Fréttablaðið - 03.07.2009, Page 39
FÖSTUDAGUR 3. júlí 2009 27
Einn nánasti vinur popp-
stjörnunnar Michaels
Jackson er fundinn. Hann er
við hestaheilsu þrátt fyrir
háan aldur en mun að öllum
líkindum ekki mæta í jarðar-
förina.
Þetta er simpansinn Bubbles sem
Michael Jackson hafði með sér
hvert sem hann fór á tíunda ára-
tug síðustu aldar. Bubbles hvarf
síðan af sjónarsviðinu fyrir nokkr-
um árum og margir aðdáendur
Jacksons hafa velt vöngum yfir
því hvað hafi eiginlega orðið um
þennan fræga apa. Breska blaðið
Daily Mail upplýsti lesendur sína
um að Bubbles dveldi í góðu yfir-
læti í Centre for Great Apes í Wau-
chula í Flórida. Hann myndi þó ekki
mæta í jarðarför fyrrverandi eig-
anda síns. Starfsfólk dýragarðsins
hefur leyft sjónvarpsvélunum að
mynda Bubbles sem sönnun fyrir
því að hann sé á lífi. „Það besta sem
við getum gert til að heiðra minn-
ingu Michaels Jackson er að hugsa
enn betur um Bubbles því við vitum
að Michael þótt einstaklega vænt
um hann,“ sagði forstjórinn Patti
Ragan.
Jackson bjargaði Bubbles frá
krabbameinsrannsóknum undir lok
níunda áratugarins og þeir félagar
ferðuðust um allan heiminn saman.
Vinátta þeirra var svo djúp að
þeir deildu hótelsvítum saman og
Bubbles hafði sitt eigið rúm í svefn-
herbergi Michaels. Bubbles átti
einnig sitt sæti í upptöku verinu þar
sem Bad var tekin upp. Þá var hann
líka sá eini sem fékk að nota salerni
Michaels. Þegar Bubbles varð eldri
átti hann það til að verða árásar-
gjarn og var því sendur í dýragarð
enda óttaðist Michael að hann gæti
hugsanlega skaðað Prince Michael
II. Michael gætti þess þó vandlega
að vel væri hugsað um Bubbles
og hann skipulagði meðal annars
afmælisveislu fyrir apann þar sem
öðrum frægum dýrum var boðið,
þeirra á meðal hundunum Benji og
Lassie og simpansanum Cheeta sem
sló í gegn í Tarzan.
En nú hefur Bubbles sem sagt
verið í dýragarðinum í Flórída síð-
astliðin fjögur ár og kann víst vel
við sig í kringum hin dýrin, sem
tengjast reyndar öll skemmtana-
bransanum með einum eða öðrum
hætti. „Hann er mjög góður api,
hann leyfir hinum yngri að drekka
á undan sér og er bara mjög ljúfur
og góður,“ segir Patti.
Apinn Bubbles
fannst í dýragarði
GÓÐIR SAMAN Michael Jackson og Bubbles eru eitt eftirminnilegasta tvíeykið í sögu
skemmtanabransans. NORDIC PHOTOS/AFP
Leikarinn David Carradine framdi ekki sjálfs-
víg heldur lést af völdum súrefnisskorts. Þetta
kom fram eftir krufningu sem fjölskylda leikar-
ans lét framkvæma fyrir sig. Carradine fannst
nakinn inni í fataskápi með snúru um hálsinn
og kynfærin á hótelherbergi í Bangkok hinn 4.
júní. Talið er að hann hafi dáið í miðri kynlífs-
athöfn. „Hann lést ekki af náttúrulegum orsök-
um og ekki vegna sjálfsmorðs. Hann virðist því
hafa dáið af slysförum,“ sagði læknirinn sem
framkvæmdi krufninguna. Niðurstöðu úr krufn-
ingu sem lögreglan í Taílandi lét framkvæma á
Carradine er væntanleg á næstu dögum og þar
gætu nýjar upplýsingar komið í ljós.
Framdi ekki sjálfsvíg
DAVID CARRADINE
Leikarinn framdi ekki
sjálfsvíg heldur lést af
völdum súrefnisskorts.
Laugavegi 7 101 Reykjavík
Sími 561 6262 www.kisan.is
30 - 50%
afsláttur
Útsalan byrjar í dag!
auk 1000 punkta
GOLFBOLTAR
MEÐ REYNSLU
DVD FERÐASPILARI
í allt sumar
Ferðatilboð
SU
M
AR
TI
LB
OÐ
Þú færð hámarksnýtingu á Safnkortspunktunum þínum með
því að nýta þér Safnkortstilboð á þjónustustöðvum og í
verslunum N1. Sparaðu peninga og veldu sniðugar vörur næst
þegar þú átt leið hjá. Sjá nánar á www.n1.is.
Fullt verð 2.990 kr.
990 kr.
auk 1.000 punkta
Fullt verð 1.690 kr.
190 kr.
auk 500 punkta
Fullt verð 1.990 kr.
0 kr.
auk 1.000 punkta
Fullt verð 9.900 kr.
3.900 kr.
auk 1.000 punkta
RAFMAGNS-
HLAUPAHJÓL
12 DÓSIR
COCA-COLA 0,33cl EÐA
COCA-COLA LIGHT 0,33cl
2 DVD MYNDIR Í PAKKA
Fullt verð 27.900 kr.
17.900 kr.
auk 1.000 punkta
x10
x2
x6
x2
x3