Fréttablaðið - 03.07.2009, Page 48

Fréttablaðið - 03.07.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur Gjaldmiðillinn í Mósambík heitir metikall. Ég bjó þar einn vetur fyrir nokkrum árum og fór aldrei út úr húsi með minna en milljón í vasanum, þótt ég ætl- aði bara að fá mér kaffibolla eða skreppa í sund. Það voru til fimm- hundruð þúsund metikalla seðlar og hundrað þúsund meti kalla seðlar, svo milljónirnar voru ekk- ert sérstaklega þungar í vasa. En það voru líka til fimm metikalla myntir og nokkrar svoleiðis tóku aðeins meira vasapláss. Fyrir fimm meti kalla gat ég ekki keypt neitt en öðru máli gegndi um betlarana á götum úti, einfættu mennina sem höfðu stigið á jarð- sprengjur og pössuðu bílinn fyrir mann og konurnar með vatns- brúsana á höfðinu. Það var vegna þess að í Mósambík voru tvö hag- kerfi. Eitt fyrir þá sem keyptu sér kaffibolla á hótelum, annað til að höndla með maísmjöl og kjúkl- inga. Um leið og bleiknefjinn ég kom inn á markað hækkaði allt um mörg hundruð prósent. HÉR á landi hafa líka verið tvö hagkerfi lengi vel. Það er annars vegar það sem ég er í, sem skulda tólf milljónir í íbúðinni minni og næ kannski árstekjum upp á þrjár, hins vegar hag kerfið þar sem venjulegir launamenn þurfa að fá níu hundruð milljónir að láni til að sjá fyrir sér og heim- ili sínu. Því til hvers þurfa menn annars að taka lán? Ef ég sæti með níu hundruð milljónir í höndunum myndi ég ekkert vita hvað ég ætti að gera við þær. En kannski þurfa einhverjir á Íslandi að búa við það að hilluverðið hækki upp úr öllu valdi í Hagkaupum um leið og þeir láta sjá sig. ÞEGAR ég var í Mósambík voru milljón metikallar tvöþúsund kall. Það var áður en Mósambíkanar skáru þrjú núll af metikallinum fyrir nokkrum árum. Nú eru fjörutíu íslenskar krónur í einum metikalli og milljón metikallar því jafnvirði fjörutíu milljóna íslenskra krónkalla. MILLJÓN er afstæð. Milljarður líka. Flestir Afríkubúar myndu telja sig hafa himin höndum tekið að vera við fátæktarmörkin hér. Björgólfur Thor er ekki eins asna- lega ríkur í Dubai. FYRIR níu hundruð milljónir má fá hundrað þúsund handbolta, tvöhundruð þúsund naglbíta og örugglega trilljón trítil óðar tindabikkjur frá Trékyllisvík. Og byggja að minnsta kosti eitt munaðarleysingja heimili. TIL dæmis í Mósambík. Milljón í vasa Í dag er föstudagurinn 3. júlí 2009, 184. dagur ársins. 3.10 13.32 23.52 2.07 13.17 0.23 Stillanleg heilsurúm 25-30% afsláttur Tempur heilsurúm 25% afsláttur Tempur heilsukoddar 30% afsláttur A‹ EIN S FRÁ TEMPUR ® JÖRÐIN GORMAR SVAMPUR VATN LATEXHEY Árið 1200 FK Árið 1000 Árið 1800 Árið 1900 Árið 1970 Árið 1980 Árið 1993 Í dag TEMPUR® Tempur – 15 ár á Íslandi Afmælistilboð í júlí Yfi r 20.000 íslendingar sofa á Tempur heilsudýnuYfi r 50.000 íslendingar sofa á Tempur heilsukodda Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.