Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 4
4 21. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNSÝSLA „Til þess að efla enn
frekar rannsóknir og saksókn
skatta- og efnahagsbrota tel ég
eðlilegt sem næsta skref að efna-
hagsbrotadeild verði færð til sér-
staks saksóknara,“ segir Harald-
ur Johannessen ríkislögreglustjóri
aðspurður um skoðun sína á hug-
mynd um sameiningu efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra
(RLS) og sérstaks saksóknara.
Dómsmálaráðherra reifaði þá
hugmynd í Fréttablaðinu á laug-
ardag að sameina embætti efna-
hagsbrotadeildar RLS og sér-
staks saksóknara. Við það myndi
efnahagsbrotadeild verða aðskil-
in embætti RLS. Málið yrði tekið
til skoðunar í haust, að sögn dóms-
málaráðherra. Ólafur Þór Hauks-
son, sérstakur saksóknari og Helgi
Magnús Gunnarsson, saksóknari
efnahagsbrota, hafa báðir lýst
ánægju með hugmyndina. Helgi
sagi að það myndi minnka tor-
tryggni samfélagsins gagnvart
rannsóknum efnahagsbrota.
Nú er svo komið, að sögn Harald-
ar, að bæði fyrrverandi og núver-
andi starfsmenn efnahagsbrota-
deildar RLS eru meginuppistaðan
í embætti sérstaks saksóknara. Þá
njóti sérstakur saksóknari annars
stuðnings frá ríkislögreglustjóra.
Því verði að huga að sameiningu
embættanna.
Einnig segist Haraldur hafa
bent á nauðsyn þess að efla rann-
sóknir og saksókn skatta- og efna-
hagsbrota. Bendir hann á þann
tvíverknað sem felst í því að rann-
sóknir alvarlegra skattalagabrota
séu til meðferðar bæði hjá skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins og
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra.
Þá reifaði Haraldur þá hugmynd
árið 2006 að kannaðir verði kost-
ir og gallar þess fyrirkomulags að
færa verkefni skattrannsóknar-
stjóra ríkisins og efnahagsbrota-
deildar til sérstaks embættis. Það
myndi fara með málefni skatta- og
efnahagsbrota á landsvísu. Segir
hann þó stjórnvöld þurfa að kanna
hvaða lausn sé heppilegust í þessu
sambandi.
„Ég hef einnig haft þá skoð-
un að lögreglustjórar eigi ekki að
fara með ákæruvald og bent á að
rétt sé að kanna hvort ekki eigi að
aðgreina að fullu lögreglustjórn og
ákæruvald. Það myndi tryggja enn
frekar réttaröryggi borgaranna og
trúverðugleika lögreglu- og ákæru-
valds,“ að mati Haraldar.
vidirp@frettabladid.is
Ríkislögreglustjóri
styður sameiningu
Ríkislögreglustjóri styður þá hugmynd að sameina efnahagsbrotadeild RLS og
sérstaks saksóknara. Einnig hefur hann haft þá skoðun að lögreglustjórar eigi
ekki að fara með ákæruvald. Það myndi tryggja trúverðugleika enn frekar.
EMBÆTTI RLS Ríkislögreglustjóri hefur haft þá skoðun að lögreglustjórar eigi ekki að
fara með ákæruvald. Aðgreining lögreglu- og ákæruvalds að fullu myndi tryggja enn
frekar réttaröryggi og trúverðugleika.
FRAKKLAND, AP Bökkum árinnar
Signu í París hefur verið breytt
í sandströnd, með tilheyrandi
pálmatrjám, sólbaðsstólum, hengi-
rúmum og útisturtum. Uppátækið
nefnist Strandir Parísar, og er
þetta nú gert í áttunda sinn.
Á hverju sumri er stór hluti
árbakkans hægra megin, sem
venjulega er úr grárri steypu,
gerður að stórri strönd. Þangað
geta Parísarbúar því farið ef þeir
komast ekki úr borginni. Meðal
annars er þar að finna sundlaug og
lítinn skemmtigarð fyrir börn, sem
og vinnusvæði með internetteng-
ingu og svæði fyrir tónleikahald á
kvöldin. - þeb
Sumarstemning í París:
Signubakkar
verða að strönd
SIGNA Ströndin á Signubökkum var
opnuð í gær. Fólk gat því notið sólarinn-
ar á grasbölum eða á gerviströndinni,
sem og í útisturtum og sundlaug.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Flogið verður beint á
milli Keflavíkur og Brussel frá og
með næsta sumri.
Icelandair ætlar að hefja áætl-
unarflug til Brussel í byrjun júní á
næsta ári. Gert er ráð fyrir því að
flogið verði tvisvar í viku, á mánu-
dögum og föstudögum.
Samkvæmt tilkynningu frá Ice-
landair hefur flugið verið í undir-
búningi í talsverðan tíma. Aukinn
samgangur á milli Íslands og
Brussel gefi tilefni og tækifæri
til að hefja flug. Gert er ráð fyrir
því að almennir ferðamenn verði í
meirihluta farþega, bæði þeir sem
ferðast til og frá Ísland, eða þeir á
leið vestur um haf. - þeb
Icelandair kynnir nýjung:
Áætlunarflug
til Brussel 2010
Ég hef
einnig
haft þá skoðun
að lögreglu-
stjórar eigi ekki
að fara með
ákæruvald og
bent á að rétt sé
að kanna hvort
ekki eigi að aðgreina að fullu
lögreglustjórn og ákæruvald.
HARALDUR JOHANNESSEN
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI
VEÐURSPÁ
Alicante
Bassel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
31°
24°
21°
23°
28°
31°
20°
20°
25°
18°
32°
24°
32°
16°
30°
19°
18°
Á MORGUN
3-8 m/s
en hvassara SA-lands.
FIMMTUDAGUR
Norðlægar áttir,
8-13 m/s.
18
16
15
13
11
12
9
10
13
12
9
4
10
8
9
5
5
6
11
4
9
7
15
12 8
7
13 12
9
6
8
13
KÓLNAR Í VEÐRI Í
dag og næstu daga
verður besta veðrið
suðvestanlands
en það verður
öllu þungbúnara
og smá væta
norðaustan og
austanlands. Frá og
með morgundegin-
um kólnar heldur á
landinu og verður
heldur svalt út
vikuna.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
VIÐSKIPTI Tryggingafélögin
greiddu engan arð út fyrir árið
2008 og aðeins eitt þeirra greiddi
út arð fyrir árið 2007. Árið 2006
greiddu félögin út frá 29 til 144
prósenta arð, sem hlutfall af
hagnaði. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Fjármálaeftirlit-
inu.
Nokkuð hefur verið rætt um
arðgreiðslur tryggingafélaganna,
ekki síst þá staðreynd að Trygg-
ingamiðstöðin hf. greiddi út 144
prósenta arð árið 2006. Heimilt
er að yfirfæra hagnað frá fyrri
árum uppfylli félögin kröfur um
tilskilið lágmarksgjaldþol og
það mun hafa verið gert í því til-
felli. Tryggingamiðstöðin greiddi
ein út arð árið 2007, 2,1 milljarð
króna, sem nam 48 prósentum af
hagnaði.
Sjóvá-Almennar greiddu út
stærstu einstöku upphæðina, 7,3
milljarða króna árið 2006, eða 61
prósent af hagnaði. Vátrygginga-
félag Íslands greiddi það ár út 29
prósenta arð, 1,5 milljarða.
Arðgreiðslur tryggingar-
félaganna árið 2006, þegar þau
greiddu öll út arð, námu að með-
altali 55 prósentum. - kóp
Tryggingafélögin greiddu 12 milljarða í arð árin 2006 og 2007:
Enginn arður fyrir árið 2008
ARÐGREIÐSLUR VÁTRYGGINGAFÉLAGA 2006-2008
2006 2007 2008
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 7.300 (61%*) 0 (0%) 0 (0%)
Tryggingamiðstöðin hf. 999 (144%) 2.100 (48%) 0 (0%)
Vátryggingafélag Íslands hf. 1.500 (29%) 0 (0%) 0(0%)
Tölur eru í milljónum króna
* Tölur innan sviga sýna arð sem hlutfall af hagnaði
NEYTENDUR Árskort í sund eru
dýrust í Sundlaug Akureyrar af
þeim sex sundlaugum sem Neyt-
endasamtökin könnuðu verð-
ið hjá nýverið. Árskortið kostar
29.500 krónur á Akureyri, 69
prósentum meira en þar sem það
var ódýrast, í Sundlaug Kópavogs
og Sundlauginni í Borgarnesi.
Verðið á Akureyri hafði hækk-
að um 2.200 krónur milli ára, en
hinar sundlaugarnar voru með
óbreytt verð. - bj
Mikill munur á sundkortum:
Dýrustu kortin
á Akureyri
SUNDFERÐIR Árskortin voru ódýrust í
Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í
Borgarnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VERÐ Á ÁRSKORTUM
Sundstaður Verð
Sundlaugin í Borgarnesi 17.500
Sundlaug Kópavogs 17.500
Sundlaug Garðabæjar 20.000
Sundlaugar Reykjavíkur 24.000
Sundlaugin á Egilsstöðum 25.300
Sundlaug Akureyrar 29.500
ÍÞRÓTTIR Íslenski skákmaðurinn
Guðmundur Kjartansson gerði
jafntefli við enska stórmeistarann
Mark Hebden í Edinborg á sunnu-
dag. Guðmundur og Hebden átt-
ust við í níundu og síðustu umferð
skoska meistaramótsins.
Með jafnteflinu náði Guðmundur
fyrsta áfanga að stórmeistaratitli.
Hann hækkar um 42 skákstig fyrir
frammistöðu sína og vantar þá 20
stig til að verða útnefndur alþjóð-
legur meistari. - þeb
Meistaramót í skák:
Náði áfanga að
stórmeistaratitliByggingarvísitala hækkarVísitala byggingarkostnaðar hækkar
um 1,78 prósent frá fyrra mánuði og
er nú 486,4 stig. Vinnuliðir hækkuð
um 3,1 prósent í kjölfar samninga SA
og ASÍ. Vísitalan gildir í ágúst 2009.
EFNAHAGSMÁL
Fujimore í fangelsi
Alberto Fujimore, fyrrum forseti Perú,
var í gær dæmdur í sjö og hálfs árs
fangelsi fyrir spillingu í starfi. Hann
afplánar nú þegar 25 ára dóm fyrir
brot á mannréttindum.
SPILLING
GENGIÐ 20.07.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
232,262
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,4 127,0
208,82 209,84
179,68 180,68
24,126 24,268
19,924 20,042
16,327 16,423
1,3358 1,3436
196,91 198,09
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR