Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 8
8 21. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1. Hvaða vörur er íþróttafélag- ið Styrmir að selja til að eiga fyrir keppnisferð til Danmerk- ur? 2. Hvað eru mörg ár frá því að fyrsta ferðin var farin á tunglið? 3. Hvað heitir sigurvegarinn á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk á sunnudag? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 22 SAMGÖNGUMÁL Stjórn Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum, fagnar áformum um að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga. Þá hvetur stjórnin samgönguráðherra til að standa fast við áformin. Stjórn Eyþings segist einnig harma „þá ómálefnalegu umræðu sem átt hefur sér stað um Vaðla- heiðargöng og ákvörðun sam- gönguráðherra“. Stjórnin vill jafnframt að því sé haldið til haga að veggjöld muni standa undir helmingi kostnaðar við göngin, sem geri framkvæmdina enn fýsilegri en annars. - þeb Hvetja ráðherra áfram: Fagna Vaðla- heiðargöngum Pólland Spánn Frakkland Bretland Írland Portúgal Malta Danmörk Kýpur FinnlandSvíþjóð Holland Belgía Þýskaland Grikkland Ítalía Austurríki T´ékkland Slóvakía Slóvenía Ungverjaland Rúmenía Búlgaría Eistland Lettland Litháen Lúxemborg FYLLTU VASANN AF MENTOS TYGGJÓI! NÝ TT ! 20-50% AFSLÁTTUR AF VEIÐIVÖRUM Í ALLT SUMAR EVRÓPUSAMBANDIÐ OG EVRAN Evran er opinber gjaldmiðill sextán af 27 löndum Evrópusambands- ins. Evran er einnig notuð í fimm löndum annaðhvort með eða án sérstakrar heimildar Evrópusam- bandsins. Þau eru San Marínó, Andorra, Vatikanið, Svartfjallaland, Kósovó og Mónakó. Alls er evran notuð af um 327 milljónum Evrópubúa á degi hverjum auk þess sem 175 milljónir búa við skilyrði þar sem gjaldmiðill viðkomandi lands er fest við gengi evrunnar. Sex lönd hafa skuldbundið sig til að taka upp evruna á næstu árum að undangengnum ákveðnum skilyrðum. Þau lönd eru Búlgaría, Tékkland, Ungverjaland, Pólland, Rúmenía og Svíþjóð. Danmörk og Bretland hafa hins vegar valið að taka ekki upp evruna þrátt fyrir að vera í sambandinu. Fyrir utan evrusvæðið eru 23 lönd sem fest hafa gjaldmiðil sinn við gengi evrunnar. Þar af eru 14 lönd frá Afríku. Í þeim tilfellum er notast áfram við innlendan gjaldmiðil en gengi þess gjaldmiðils ræðst af því hvernig gengi evrunnar þróast. - bþa Upptaka evru innan Evrópusambandsins 1999 2001 2007 2008 2009 Framtíðarplön* Pólland 01.01 2012 Eistland 01.01 2011 Rúmenía 01.01 2015 ESB-þjóðir án evru * Búlgaría, Tékkland, Ungverjaland, Lettland og Litháen hyggjast taka upp evruna. Löndin hafa hins vegar ekki uppfyllt skilyrði fyrir upptöku og því eru ekki búið að festa neinar dagsetningar. BRUNI Engan sakaði þegar eldur varð laus í gömlu timburhúsi á Akureyri um miðjan dag í gær. Nágrannar urðu eldsins varir og hringdu á Neyðar línuna. Kona með ungt barn var í húsinu þegar eldurinn kom upp, en hún kom sér út eftir að nágrannar létu hana vita. Eldurinn kviknaði í eldhúsi í einni af fjórum íbúðum í þessu ríflega 100 ára gamla timburhúsi, segir Ingimar Eydal, aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar. Þegar slökkviliðið kom á vettvang um klukkan 15 var farið að rjúka úr húsinu, og þegar slökkvi- liðsmenn reyndu að finna eld sprungu rúður í eld- húsinu út á móti þeim og mikill reykur gaus upp, segir Ingimar. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins, en tals- verðan tíma tók að slökkva allar glóðir, enda húsið einangrað með torfi. Önnur hús voru ekki talin í hættu. Íbúðin sem eldurinn kviknaði í er talin ónýt, og talsverðar reykskemmdir urðu í öðrum íbúðum í húsinu. Eldsupptök eru ókunn, en grunur beinist að raf- magni, segir Ingimar. Ekkert bendir til þess að um íkveikju hafi verið að ræða. - bj Yfir 100 ára gamalt íbúðarhús á Akureyri sagt mikið skemmt eftir eldsvoða: Kona og ungt barn komust út REYKUR Talsverður reykur gaus upp þegar rúður í eldhúsinu, þar sem eldurinn kom upp, sprungu. MYND/AUÐUNN NÍELSSON „Það er búið að fastsetja val- kostina og óvissunni er eytt með þessu samkomulagi,“ segir Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis. „Með samningnum hefur skilanefnd Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa, öðlast rétt til að eign- ast Íslandsbanka að öllu leyti án þess að leggja til frekari fjármuni og ríkið hefur enn fremur skuld- bundið sig til að veita bankanum 25 milljarða lausafjárstuðning. Með þessu teljum við að bankinn sé að fullu fjármagnaður og að lausafé hans sé tryggt um fyrirsjá- anlega framtíð,“ segir Árni. Óvíst er hvort kröfuhafar muni eignast Íslandsbanka að fullu strax, en kröfuhafar hafa kauprétt að allt að 90 prósentum af hlutafé bank- ans á næstu fimm árum. „Ég tel það mjög gott að það sé búið að fjármagna bankana,“ segir Steinar Þór Guðgeirsson, formað- ur skilanefndar Kaupþings. Hann segir að kröfuhafar bankans hafi verið þátttakendur í þessu ferli frá nóvember og þeir séu áhuga- samir um að eignast banka sem sé í góðum rekstri. Eggert Þór Ólason, yfirlögfræð- ingur Landsbankans, segir að verð- mat eigna bankans hafi gengið vel. Verðmatið sé ákaflega mikilvægt í tilfelli Landsbankans þar sem upp- gjör milli gamla og nýja bankans sé með öðru móti en í tilfelli Kaup- þings og Glitnis. -bþa Fulltrúar skilanefnda eru ánægðir með að óvissu um fjármögnun bankanna sé eytt: Óvissa um aðkomu kröfuhafa FULLTRÚAR SKILANEFNDA Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, og Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.