Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er þriðjudagurinn 21. júlí 2009, 202. dagur ársins. 4.00 13.34 23.06 3.20 13.19 23.14 Stillanleg heilsurúm 25-30% afsláttur Tempur heilsurúm 25% afsláttur Tempur heilsukoddar 30% afsláttur A ‹E INS FRÁ TEMPUR ® JÖRÐIN GORMAR SVAMPUR VATN LATEXHEY Árið 1200 FK Árið 1000 Árið 1800 Árið 1900 Árið 1970 Árið 1980 Árið 1993 Í dag TEMPUR® Tempur – 15 ár á Íslandi Afmælistilboð í júlí Yfi r 20.000 íslendingar sofa á Tempur heilsudýnuYfi r 50.000 íslendingar sofa á Tempur heilsukodda Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74% Líkt og íbúarnir í Zújar, þar sem ég dvel nú á Suður-Spáni, hef ég tekið upp þann ljóta sið að leggja mig eftir miðdegisverðinn. Verður þó stundum minna úr síestunni en ætlað var þar sem hljóð nokkurt er kemur frá götunni heldur fyrir mér vöku. Hljóð þetta líkist helst braki í rúmi og er alltaf í ákveðn- um takti. Gefur það til kynna að ákveðin athöfn sé í gangi. Slíkt vekur sífellt spennu og nokkra skemmtan jafnvel meðal sið- menntuðustu manna. Sjaldan gefst tækifæri til að fylgjast með slíku vestur á fjörðum þar sem svefn- herbergi eru kyrfilega lokuð. ÞAR sem ég er nú með mannfræði- menntun fór ég ósjálfrátt að vinna úr þessum gögnum innra með mér sem bárust inn um gluggann. Niður stöður þessarar mannfræði- rannsóknar fóru svo að taka á sig ákveðna mynd. Hún var á þá leið að þorpsbúar kysu að njótast eftir miðdegisverð þegar hlýjast er í veðri. Þeir eru afskaplega taktfast- ir við bólfarirnar og einnig varir um sig því engar unaðs stunur ber- ast út um gluggann; einungis brak í rúmunum sem eru örugglega ekki af nýjustu gerð. Í síðustu viku ákvað ég svo að sleppa síestunni en fara frekar í göngutúr um þorpið. Þegar ég er að ganga í götunni minni sé ég konu nokkra léttklædda á verönd- inni hjá sér. Hún var lagleg mjög en nokkuð farin að reskjast. Hún býður mér góðan dag og tökum við svo létt spjall saman. Eins og gefur að skilja var mannfræðirannsókn mín þó ekki þar til umræðu. „Það er svo notalegt að sitja hérna í skugganum á veröndinni á þess- um tíma dags,“ segir hún. Hún er greinilega mikill fagurkeri því hún var umvafinn blómum og plöntum á veröndinni. SÍÐAN er það svo ágætt að viðra fuglana aðeins á þessum tíma,“ segir hún og bendir á nokkur fugla- búr sem hanga fyrir aftan hana. Í einu þeirra var stór og stæðileg- ur páfagaukur. Hljóðin sem upp úr honum komu voru afar furðu- leg; þetta var hvorki tíst né kvak heldur var eins og að það brakaði í honum. ÉG er ekkert að lýsa þessu hljóði nánar en mér varð dagsljóst þegar ég heyrði í þessu fuglakvikindi að mannfræðirannsóknin mín var alveg ónýt. Misheppnuð mannfræði- rannsókn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.