Fréttablaðið - 21.07.2009, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Í dag er þriðjudagurinn 21. júlí
2009, 202. dagur ársins.
4.00 13.34 23.06
3.20 13.19 23.14
Stillanleg heilsurúm
25-30% afsláttur
Tempur heilsurúm
25% afsláttur
Tempur heilsukoddar
30% afsláttur
A
‹E
INS
FRÁ TEMPUR
®
JÖRÐIN GORMAR SVAMPUR VATN LATEXHEY
Árið 1200 FK Árið 1000 Árið 1800 Árið 1900 Árið 1970 Árið 1980 Árið 1993 Í dag
TEMPUR®
Tempur – 15 ár á Íslandi
Afmælistilboð í júlí Yfi r 20.000 íslendingar sofa á Tempur heilsudýnuYfi r 50.000 íslendingar sofa á Tempur heilsukodda
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Líkt og íbúarnir í Zújar, þar sem ég dvel nú á Suður-Spáni, hef
ég tekið upp þann ljóta sið að leggja
mig eftir miðdegisverðinn. Verður
þó stundum minna úr síestunni en
ætlað var þar sem hljóð nokkurt
er kemur frá götunni heldur fyrir
mér vöku. Hljóð þetta líkist helst
braki í rúmi og er alltaf í ákveðn-
um takti. Gefur það til kynna að
ákveðin athöfn sé í gangi. Slíkt
vekur sífellt spennu og nokkra
skemmtan jafnvel meðal sið-
menntuðustu manna. Sjaldan gefst
tækifæri til að fylgjast með slíku
vestur á fjörðum þar sem svefn-
herbergi eru kyrfilega lokuð.
ÞAR sem ég er nú með mannfræði-
menntun fór ég ósjálfrátt að vinna
úr þessum gögnum innra með
mér sem bárust inn um gluggann.
Niður stöður þessarar mannfræði-
rannsóknar fóru svo að taka á sig
ákveðna mynd. Hún var á þá leið
að þorpsbúar kysu að njótast eftir
miðdegisverð þegar hlýjast er í
veðri. Þeir eru afskaplega taktfast-
ir við bólfarirnar og einnig varir
um sig því engar unaðs stunur ber-
ast út um gluggann; einungis brak
í rúmunum sem eru örugglega ekki
af nýjustu gerð.
Í síðustu viku ákvað ég svo að
sleppa síestunni en fara frekar í
göngutúr um þorpið. Þegar ég er
að ganga í götunni minni sé ég
konu nokkra léttklædda á verönd-
inni hjá sér. Hún var lagleg mjög
en nokkuð farin að reskjast. Hún
býður mér góðan dag og tökum við
svo létt spjall saman. Eins og gefur
að skilja var mannfræðirannsókn
mín þó ekki þar til umræðu. „Það
er svo notalegt að sitja hérna í
skugganum á veröndinni á þess-
um tíma dags,“ segir hún. Hún er
greinilega mikill fagurkeri því hún
var umvafinn blómum og plöntum
á veröndinni.
SÍÐAN er það svo ágætt að viðra
fuglana aðeins á þessum tíma,“
segir hún og bendir á nokkur fugla-
búr sem hanga fyrir aftan hana. Í
einu þeirra var stór og stæðileg-
ur páfagaukur. Hljóðin sem upp
úr honum komu voru afar furðu-
leg; þetta var hvorki tíst né kvak
heldur var eins og að það brakaði
í honum.
ÉG er ekkert að lýsa þessu hljóði
nánar en mér varð dagsljóst þegar
ég heyrði í þessu fuglakvikindi að
mannfræðirannsóknin mín var
alveg ónýt.
Misheppnuð
mannfræði-
rannsókn