Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 21. júlí 2009 15 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab- ladid.is eða hringja í síma 512 5000. Líflegt var í hellinum hjá skessunni í Reykjanesbæ síðasta laugardag. Þar hélt Herdís Egilsdóttir upp á 75 ára afmælið sitt í glöð- um hópi og bauð gestum og gangandi upp á lummur af fjölbreyttri gerð. Fjölmarg- ir nýttu sér boðið og gátu meðal annars valið kókos-, kanil-, kakó-, hangkikjöts- og silungslummur beint af pönnunum. Í bakgrunni hljómuðu lög af tröllaplöt- unni Gegnum holt og hæðir sem Ragnhildur Gísladóttir og fleiri listamenn gerðu á níunda áratugnum með text- um úr bókum Herdísar. Hellirinn er við smábáta- bryggjuna. Hann sýndi og sannaði að hann er fyrir- taks samkomustaður og skessan var í fínu formi, ekki síður en Herdís. Þær tvær hafa átt samleið ansi lengi því Herdís hefur skrifað sextán bækur um skessuna, tvær þær fyrstu á sjötta áratugnum. Það eru því orðnar þrjár kynslóðir sem hafa unað sér í félags- skap þeirra vinkvennanna og unað sér vel. Lummurnar gerðu lukku Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, Jón Hallgrímur Björnsson landslagsarkitekt, kenndur við Alaska, Ásgarði 125, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi miðviku- daginn 15. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 24. júlí klukkan 13.00. Elín Þorsteinsdóttir Sigríður Lóa Jónsdóttir Sigurður Ingi Ásgeirsson Gunnlaugur Björn Jónsson Kristrún Jónsdóttir Ingibjörg Svala Jónsdóttir Ólafur Ingólfsson Sigrún Jónsdóttir Björn Þór Jónsson Elísa Ólöf Guðmundsdóttir Vignir Kristjánsson Þorsteinn Ágúst Ólafsson Sandra Shobha Kumari Árni Björnsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, María Daníelsdóttir til heimils að Furugerði 1, Reykjavík, áður til heimilis á Eskifirði, lést að kvöldi föstudagsins 17. júlí 2009 á hjúkrunar- heimilinu að Vífilsstöðum. Útförin verður auglýst síðar. Daníel Jónasson Ásdís Ólöf Jakobsdóttir Árni Jónasson Anna Britta Vilhjálmsdóttir Warén Örn Jónasson Helga Jóhannesdóttir barnabörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Steinunn Snjólfsdóttir Framnesvegi 20, Keflavík, lést á Landspítalanum Fossvogi, sunnudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, fimmtudaginn 23. júlí kl. 13.00. Jórunn Elsa Ingimundardóttir Pétur Hartmannsson Egill Steinar Ingimundarson Valur Snjólfur Ingimundarson Guðný Svava Friðriksdóttir Oddný Ingimundardóttir Hermann Guðmundsson Sigurður Þorbjörn Ingimundarson Halldís Jónsdóttir Kristinn Ingimundarson Jónína Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Vilborg Torfadóttir Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis að Njálsgötu 20, lést sunnudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 24. júlí kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hrafnistu í Hafnarfirði. Matthildur Kristjana Jónsdóttir Kelley Kristinn Pétur Pétursson Ragnheiður Bragadóttir Jón Pétursson Sigfríð Þormar Hafdís Lilja Pétursdóttir Ágúst Guðmundsson Sveinn Kristján Pétursson Sigurborg Kristjánsdóttir Ingibjörg Mjöll Pétursdóttir Elaine McCrorie Bjarni Leifur Pétursson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Málfríður Rannveig Oktavía Einarsdóttir frá Lækjarbakka, Tálknafirði, lést á Hrafnistu að morgni 18. júlí, 2009. Jarðarförin verður tilkynnt síðar. Herbert Guðbrandsson Olga Herbertsdóttir Ásgeir Kristinsson Jón Herbertsson Sævar Herbertsson Dagný Bjarkadóttir Einar Herbertsson Freyja Benediktsdóttir Ómar Herbertsson Margrét Hermannsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elsku sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir, uppeldisfaðir, afi og langafi, Svavar Ottesen prentari og fyrrverandi bókaútgefandi, Gránufélagsgötu 16, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 18. júlí sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 24. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Jakobssjóð hjá KA. Sóley Halldórsdóttir Sölvi H. Matthíasson Ásta Ottesen Páll H. Jónsson Gunnlaug Ottesen Friðrik Diego Þórhallur Ottesen Margrét Jóhannsdóttir Kristín Ottesen Sigmundur Ásgeirsson Vilhelm Ottesen Jón Vilberg Harðarson Angkhana Sribang Rannveig Harðardóttir Guðbjörn Guðjónsson Ottó Hörður Guðmundsson Birna Jónsdóttir Sóley Magnúsdóttir Sævar Örn Þorsteinsson Halldór Magnússon Ása Huldrún Magnúsdóttir Gunnar Arason barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu, Gíslínu Hlífar Gísladóttur. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Dalbæ fyrir allt þeirra starf og umhyggju gagnvart Gíslínu og fjölskyldu hennar allri. Jóhann Daníelsson Yngvi Örn Stefánsson Ragnheiður Elín Ragnarsdóttir Anna Guðlaug Jóhannsdóttir Gísli Már Jóhannsson Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir Rúnar Dýrmundur Bjarnason barnabörn og barnabarnabarn Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigurbjargar Gísladóttur Birkihvammi 12, Kópavogi. Þorkell Jónsson Kristín Þorkelsdóttir Helgi Óskar Óskarsson Jón Gísli Þorkelsson María Höskuldsdóttir Guðjón Þorkelsson Kristín Sigurðardóttir Árni Þorkelsson Jakobína Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, Börkur Ákason frá Súðavík, Sefgörðum 16, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Minningarsjóð um sjómenn frá Súðavík. Sjóðnum er ætlað að standa straum af kostnaði við að reisa minnis- varða um sjómenn sem hafa farist með bátum frá Súðavík. Reikningsnúmer sjóðsins er 0130-05-060500 kennitala 660509-0640. Kristín M. Jónsdóttir Rósa Björk Barkardóttir Haraldur Leifsson Birna Barkardóttir Sigurður M. Sigurðsson Dóra Jóna Barkardóttir Heimir Barkarson Patricia Barkarson Ásta Ákadóttir Sigurður B. Þórðarson barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólafía Magnúsdóttir er látin. Jarðaförin verður auglýst síðar. Magnús Garðarsson Ingibjörg P. Guðmundsdóttir Sigríður Garðarsdóttir Þormóður Jónsson Ólafur Halldór Garðarsson Garðar Garðarsson Guðrún Hulda Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Guðbjörg Guðlaugsdóttir Frá Vík, síðast til heimilis að Grænumörk 5, Selfossi, lést á heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 25. júlí klukkan 14.00. Ólafur Friðrik Ögmundsson Ögmundur Ólafsson Helga Halldórsdóttir Alda Guðlaug Ólafsdóttir Lilja Guðrún Ólafsdóttir Björn Friðriksson Erna Ólafsdóttir Eyjólfur Sigurjónsson Guðlaugur Jón Ólafsson Angela Rós Sveinbjörnsdóttir Baldur Ólafsson Kristín Erna Leifsdóttir Halla Ólafsdóttir Guðni Einarsson Jón Geir Ólafsson Ólöf Ragna Ólafsdóttir og fjölskyldur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó SA Í ESSINU SÍNU Herdís var auðvitað kát á afmælinu sínu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.