Fréttablaðið - 21.07.2009, Side 13

Fréttablaðið - 21.07.2009, Side 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Upphaflega skellti ég mér nú bara í tíma til að liðka mig eftir allar lyftingarnar sem ég hef verið að stunda en er nú orðinn algjörlega háður þessu,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður, sem hefur nú bæst í ört stækkandi hóp þeirra sem stunda svokallað hot yoga. Hot yoga er skylt bikram yoga þar sem markmiðið er að styrkja vöðvaflokkana í kringum hrygg- inn með standandi og sitjandi stöðum. Æfingarnar eru stundað- ar í vel upphituðu herbergi, eða 37 gráðu heitu, til að líkaminn hitni fyrr upp og verði sveigjanlegri í öllum stöðum og teygjum. „Í hit- anum svitnar maður meira svo detox-áhrif hljótast af og brennir að auki fleiri hita einingum,“ út skýrir Sveinn Andri, sem er þekktur fyrir að kalla ekki allt ömmu sína en viðurkennir fúslega að jóga æfingarnar taki vel á. „Þetta er alveg heilmikil vinna, enda verið að þjálfa vöðva sem verða gjarnan út undan í öðrum æfingum. Í mínu tilviki er ég að vinna í stirðum vöðvum þar sem samgróningar eru að trosna upp eftir 40 ár,“ útskýrir hann og segist hafa verið mjög stirður í byrjun. „Á skalanum einum upp í hundrað hef ég líklegast verið á svona þremur. Ætli ég sé ekki smám saman að skríða upp fyrir fimm, þannig að ég finn mjög mikinnn mun á mér,“ segir hann hlæjandi og þakkar góðan árang- ur meðal annars jógakennaranum Jóhönnu Karlsdóttur, sem heldur utan um námskeiðið hjá World Class. Hot yoga eru fyrstu kynni Sveins Andra af jóga, en hann hefur um nokkurt skeið stundað lyftingar með ágætum árangri. Með þessari viðbót telur hann sig hafa fundið fullkomna aðferð til að halda sér í formi. „Þetta er bara mjög gott fyrir líkamann, ásamt því að hafa róandi áhrif. Ég sofna oft í slök- uninni í lokin og kem alveg endur- nærður út úr tíma,“ segir hann en þvertekur fyrir að jógað sé upp- hafið að andlegri iðkun. „Nei, enda á þetta ekkert skylt við svoleiðis,“ bendir hann á. „Ég læt þetta duga í bili. Þú átt sko ekki eftir að rek- ast á mig í gulum kufli með svart- an depil á enninu.“ roald@frettabladid.is Heitt jóga til heilsubótar Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur stundað líkamsrækt um nokkurt skeið. Nýlega bætti hann svokölluðu hot yoga á stundaskrána þar sem óhefðbundum aðferðum er beitt til heilsueflingar. Sveinn Andri stundar hot yoga nokkrum sinnnum í viku ásamt því að lyfta og brenna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ALMENNAR RÁÐLEGGINGAR varðandi hreyf- ingu miða við að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur á degi hverjum. Börn eiga hins vegar að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.