Fréttablaðið - 21.07.2009, Síða 18

Fréttablaðið - 21.07.2009, Síða 18
 21. JÚLÍ 2009 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● heilsa og útivist Bogfimi hefur verið stunduð hérlendis síðan árið 1974. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bogfimi hefur ekki verið stund- uð lengi á Íslandi. Það var fyrst árið 1974, með stofnun Íþrótta- félags fatlaðra í Reykjavík, og svo Íþróttafélags fatlaðra á Akureyri, sem skipulagðar æfingar hófust í greininni. Bogfimi stunda þó ekki aðeins fatlaðir. Í gegnum tíðina hefur blandaður hópur fatlaðra og ófatl- aðra einstaklinga æft saman. Á Íslandsmóti fatlaðra, sem haldið er á vegum ÍF (Íþróttasambands fatlaðra) er keppt í að minnsta kosti þremur flokkum í bogfimi. Tveimur flokkum fatlaðra og síðan í opnum flokki þar sem allir geta tekið þátt. Fyrir um það bil sex árum var stofnuð sérstök bog- fiminefnd á vegum ÍSÍ og er það hlutverk hennar að vinna að fram- gangi þessarar íþróttagreinar á landsvísu. Myndir, upplýsingar og úrslit móta er hægt að nálgast á vefsíð- unni bogfimi.net. - sg Ung íþróttagrein Keppt verður í strandhandbolta í Nauthólsvík næsta laugardag. Strandhandbolti er ung íþrótta- grein á Íslandi. Mót í þeirri grein hafa verið haldin árlega frá 2003 og annar af frumkvöðlunum er Davíð Sigurðarson. Hann er enn aðalmaðurinn á bak við þennan bolta. Davíð segir hátt í 200 manns taka þátt í mótinu á laugardag, bæði stelpur og stráka og færri komast að en vilja. „Það verða sex- tán lið og tíu í hverju og svo slatti af varamönnum,“ fullyrðir hann og segir reglurnar líkjast þeim sem notaðar séu í öðrum mótum. „En við veitum verðlaun fyrir tilþrifa- mörk og tökum upp á ýmsu fleiru skemmtilegu,“ lofar hann. Jafnan hafa einhverjir lands- liðsmenn heiðrað mótin með þátt- töku sinni og Davíð vonast til að svo verði einnig nú. Hann reiknar líka með blíðskaparveðri eins og undanfarin ár. Áhorfendur sitja svo bara á sínum teppum í sandin- um og horfa á. Mótið hefst klukk- an tíu. - gun Handbolti á ströndinni Björgvin Páll Gústafsson landsliðsmarkmaður í góðu stuði í strandboltanum. Golfmótið Bleiki toppbikarinn heldur áfram för sinni um landið. Um næstu helgi verða haldnar tvær keppnir í Bleika toppbikarn- um, hjá Golfklúbbnum Kili í Mos- fellsbæ og Golfklúbbi Reykjavík- ur. Mótið er haldið til styrktar bar- áttu gegn brjóstakrabbameini enda fer allur ágóðu þess til leitarstarfs á vegum Krabbameinsfélagsins. Mótið er haldið nú í fimmta skipti en er opið báðum kynjum í fyrsta sinn í ár enda ná áhrif sjúkdóms- ins víða. Krabbameinsfélag Íslands og Vífilfell standa fyrir mótaröðinni í samvinnu við Golfsamband Ís- lands og Ragnhildur Sigurðars- dóttir golfkona hefur skipulagt hana. Markmiðið er að gefa fólki kost á að taka þátt í skemmtilegu móti sem miðar að því að styrkja baráttuna gegn brjóstakrabba- meini og hvetja konur til árvekni um eigin heilsu. -gun Golf í þágu góðs málefnis Ragnhildur Sigurðardóttir hefur skipu- lagt Bleika toppbikarinn sem verður um næstu helgi hjá Kili í Mosó og GR. Reykjavíkur Apótek er nýtt apótek sem leitast við að bjóða hagstæð verð og framúrskarandi þjónustu. í gamla Héðinshúsinu, Seljavegi 2 Sel javegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is Höfum opnað nýtt apótek

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.