Fréttablaðið - 21.07.2009, Qupperneq 24
16 21. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Heyrðu!
Hvað er
þetta
að gera
þarna?
Hey!
Latté-ið mitt
er ónýtt!
HVAÐ
SAGÐIRÐU!?
Ég sagði að þú hefðir
verið getinn á meðan
við pabbi þinn hlust-
uðum á „S tairway to
Heaven“.
Það er eitt af
uppáhaldslög-
unum okkar.
Að
sjálfsögðu. Þú ...
hann ...
Spilaðu það
aftur.
Kannski
seinna ...
ég ætla
að þvo
gítar-
strengina
mína.
Á jólunum er erfitt
fyrir Jóla að koma
gjöfum undir öll
jólatré í heimin-
um ...
Svo ég sé um að fylla
alla jólasokkana.
Þetta
hljómar
eins og
erfið
vinna.
Hó! Hó! Ég
get lagt mig
í tæpt ár á
eftir.
Hannes! Kurteis börn
tyggja með munninn
lokaðan.
Það er
rétt.
Ég vorkenni
þeim, ertu ekki
sammála?
Þegar maður deilir heimili með öðrum, hvort sem það er með fjölskyldu eða vinum, þá verða menn að sýna hver
öðrum tillitssemi og stundum svolitla eftir-
látssemi til að sambúðin gangi vel. Kost-
irnir við að halda heimili með öðrum eru
margir, vinnuálag minnkar á hvern og einn,
sömuleiðis fjárhagsleg útgjöld, menn hafa
félagsskap hver af öðrum og mörgum þykir
þeir öruggari svona saman heldur en að búa
einir.
Nú vill svo til að Íslendingar deila heims-
álfu með öðrum Evrópuþjóðum. Þessar
þjóðir reka í sameiningu heimili
sem hugsa þarf um. Nýlega var
ákveðið að íslenska ríkistjórnin
skyldi hefja viðræður um aðild
að Evrópusambandinu, sambandi
sem við höfum hingað til vilj-
að standa fyrir utan. Mér þykir
sjálfsagt að kanna landið áður
en menn lýsa sig með eða á móti sambands-
aðild. Það er þó næstum víst að Íslendingar
verða bæði að vera staðfastir, eftirlátir og
kurteisir ef samningar sem allir geta sæst á
eiga að nást. Ekki ólíkt því þegar semja þarf
um uppvask og gólfþvott.
Margir hafa einnig haft áhyggjur af því
að við munum missa þjóðareinkenni okkar
ef við göngum inn í Evrópusambandið. Ég
tel litlar líkur á því, hver fjölskyldumeð-
limur hefur sinn persónuleika þrátt fyrir
að vera hluti af stærri heild. Ég hef verið
búsett í Austurríki, Danmörku, Írlandi og
Bretlandi síðustu ár og get ekki sagt að
ég hafi orðið vör við að þær þjóðir misstu
þjóðareinkenni sín við það eitt að vera hluti
af stærri heild. Mér finnst Danir ekkert
minna danskir núna en þeir voru árið 1993.
Ég vona að samningarnir verði skoðað-
ir af skynsemi áður en við ákveðum að sitja
þrjósk við okkar keip.
Að deila heimsálfu með öðrum
NOKKUR ORÐ
Sara
McMahon
Það er
án þess að borga krónu aukalega!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
5
9
7
Skrá
ðu þi
g á
simin
n.is