Fréttablaðið - 21.07.2009, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 21. júlí 2009 17
Vodafonevöllur, áhorf.: 1.154
Valur Fylkir
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–12 (5-7)
Varin skot Haraldur 5 – Fjalar 5
Horn 8-3
Aukaspyrnur fengnar 13-7
Rangstöður 2-3
FYLKIR 4–3–3
*Fjalar Þorgeirs. 7
Andrés M. Jóhannes. 7
Kristján Valdimarsson 6
Ólafur Ingi Stígsson 6
Þórir Hannesson 5
(50., Theódór Óskars. -)
(63., Kjartan Baldv. 6)
Ásgeir B. Ásgeirsson 6
Valur Fannar Gíslason 5
Halldór A. Hilmisson 5
Ingimundur Óskars. 6
Jóhann Þórhallsson 5
(58., Pape Faye 6)
Kjartan Á. Breiðdal 6
*Maður leiksins
VALUR 4–4–2
Haraldur Björnsson 5
Steinþór Gíslason 5
(63., Pétur Markan 5)
Reynir Leósson 6
Atli Sveinn Þórarins. 5
Bjarni Ólafur Eiríks. 5
Ólafur Páll Snorras. 4
Baldur Bett 4
Sigurbjörn Hreiðars. 5
(78., Guðm. Hafst. -)
Viktor Unnar Illugas. 3
(66., Guðm. Mete 4)
Arnar Gunnlaugsson 4
Helgi Sigurðsson 6
0-1 Kjartan Andri Baldvinsson (76.)
0-1
Valgeir Valgeirsson (5)
sport@frettabladid.is
> Kári samdi við Plymouth
Miðjumaðurinn Kári Árnason er formlega orðinn
leikmaður Plymouth á Englandi. Liðið leikur í ensku B-
deildinni, en Kári fór til reynslu til félagsins eftir að verða
laus allra mála hjá AGF í Danmörku. Hann
heillaði þjálfara liðsins og skrifaði undir
eins árs samning við það í gær. Í viðtali
á heimasíðu félagsins segir Kári að
draumur sé að rætast en hans ósk hafi
alltaf verið að spila í enska boltanum.
Þess má til gamans geta að Plymouth er
stærsta borg Englands sem aldrei hefur
átt lið í efstu deild.
Pepsi-deild karla
Þróttur-Breiðablik 4-0
1-0 Dennis Danry (18.), 2-0 Haukur Páll Sig-
urðsson (34.), 3-0 Morten Smidt (55.), 4-0
Haukur Páll Sigurðsson (74.).
ÍBV-Fram 1-1
1-0 Ajay Smith (29.), 1-1 Ívar Björnsson (41.).
ÚRSLIT
„Ég er mjög sáttur við það sem þeir höfðu að bjóða mér,“ segir
Jónas Guðni Sævarsson, fyrirliði KR, sem náði í gær samkomulagi
við sænska félagið Halmstad. Liðið er sem stendur um miðja
sænsku úrvalsdeildina.
Jónas Guðni ferðast með KR-ingum til Grikklands þar sem þeir
leika síðari leik sinn við Larissa í Evrópudeild UEFA á fimmtu-
dag. Það verður líklega hans síðasti leikur í búningi KR, í bili að
minnsta kosti.
Vesturbæjarliðið er í góðri stöðu eftir fyrri leikinn sem vannst
glæsilega 2-0. Jónas mun ekki ferðast með KR-ingum heim til
Íslands eftir leik heldur mun hann fljúga beint frá Grikklandi
til Svíþjóðar.
Halmstad hefur fylgst grannt með Jónasi í sumar
og alveg ljóst að þeir ætluðu ekki að kaupa köttinn í
sekknum. „Þeir vönduðu sig mikið með það. Þeir mættu
hingað til Íslands og horfðu á mig í þremur leikjum
ásamt því að þeir sáu tvo aðra á upptöku. Svo fór ég
náttúrulega yfir til þeirra í tvo daga og spilaði einn
leik. Þeir vita því nákvæmlega hvað ég get og ekkert
sem ætti að koma þeim á óvart,“ sagði Jónas Guðni sem
kíkti út til Svíþjóðar í byrjun júní og lék einn leik með
varaliði félagsins.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig. Ég geri mér
alveg grein fyrir því að þetta er blóðtaka fyrir KR og
það er alltaf erfiðara að fara svona á miðju tímabili.
En á þessum erfiða tíma þá er gott fyrir félagið að fá
smá pening og létta undir rekstrinum.“
Varnarjaxlinn Grétar Sigfinnur Sigurðsson er vara-
fyrirliði KR og er líklegast að hann taki við bandinu af
Jónasi Guðna.
KR-ingar voru reyndar enn í viðræðum við Halm-
stad út af Jónasi Guðna þegar Fréttablaðið fór í
prentun í gærkvöld en Rúnar Kristinsson, yfirmaður
knattspyrnumála hjá KR, átti von á því að gengið yrði
frá málum fyrr en síðar.
„Það eru ákveðin smáatriði sem þarf að leysa. En
stundum er það þannig að sum smáatriði geta orðið
dálítið stór. Við erum samt að reyna að klára málið.“
JÓNAS GUÐNI SÆVARSSON: Á LEIÐ TIL GRIKKLANDS OG STEFNIR ÞAÐAN BEINT TIL SVÍÞJÓÐAR
Leikur líklega síðasta leikinn fyrir KR í Grikklandi
FÓTBOLTI „Það var kominn tími til
að við myndum lifna við hérna á
heimavelli. Loksins voru hlut-
irnir að falla með okkur. Blik-
arnir fengu dauðafæri sem
Sindri varði vel og áttu svo skalla
í slá í fyrri hálfleik en eftir það
voru þeir ekkert að skapa sér neitt
og við miklu líklegri,“ sagði
Gunnar Oddsson, þjálfari
Þróttar, sem gerði sér lítið
fyrir og kafsigldi Breiða-
blik 4-0 á heimavelli
sínum í gær. Þetta var
annar sigur Þróttar í
sumar. Með þessum
sigri komst liðið upp
úr botnsæti og er nú
í ellefta sætinu með
átta stig. Breiða-
blik er í áttunda
sæti deildar-
innar, sjö stig-
um ofar.
„Baráttan er
stór hluti af fótbolta og ef
allir eru að leggja sig fram
þá getum við staðið í flest-
um liðum í deildinni,“ sagði
Gunnar en Þróttarar tefldu fram
tveimur nýjum leikmönnum í
byrjunarliði sínu. Varnarmaður-
inn Dusan Ivkovic var mjög sterk-
ur og Sam Malson spræk-
ur. „Dusan þekkti varla
nöfnin á leikmönnum
enda bara búinn að
mæta á eina æfingu
fyrir leikinn en
stóð sig mjög
vel,
svo var Sam
frískur.“
Dennys Danry
kom Þróttur-
um á bragð-
ið og Haukur
Páll Sigurðsson
bætti síðan við
öðru marki eftir
skelfileg mistök
Sigmars Inga
Sigurðssonar í
marki Breiða-
bliks. Ingvar Kale
á enn við meiðsli að
stríða og var Sigmar
virkilega óöruggur í
leiknum og vörnin fyrir
framan hann lítið skárri.
Menn gerðu sig seka um
slæm mistök í sífellu.
Haukur og Morten Smidt bættu
síðan við mörkum fyrir heima-
menn í seinni hálfleik. Báðir áttu
þeir góðan leik en besti leikmað-
ur vallarins var hinsvegar miðju-
maðurinn Rafn Andri Haraldsson.
Rafn barðist eins og ljón og vann
gríðarlega vel fyrir liðið.
„Við vorum agalausir
varnarlega,“ sagði Ólaf-
ur Kristjánsson, þjálfari
Breiðabliks. „Dekkning-
in hjá okkur var mjög laus
og svo voru menn ekki einbeitt-
ir í þeim færum sem þeir fengu.
Við verðum að kafa aðeins ofan í
það hvað menn voru að hugsa og
hvernig undirbúningur manna var
fyrir leikinn. Það má segja að leik-
aðferð Þróttar hafi gengið fullkom-
lega upp, sérstaklega í fyrri hálf-
leik.Við vorum teknir í bólinu,“
sagði Ólafur.
Þrótturum hefur gengið virki-
lega illa á tímabilinu en í gær var
gríðarlegur kraftur í liðinu og bitið
í sóknarleik þeirra var mun meira
en hjá Blikum sem voru oft ansi
fyrirsjáanlegir í sínum aðgerðum.
Allt annað var að sjá til Þróttara-
liðsins heldur en í fyrri leikjum
og aldrei að vita nema þessi leik-
ur hafi verið byrjunin á einhverju
nýju hjá liðinu.
- egm
Botnlið Þróttar gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir Breiðablik:
Þróttarar hrukku í gírinn
BRAUT ÍSINN Daninn Dennis Danry
kom Þrótturum á bragðið á Val-
bjarnarvelli í gær með skallamarki.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Fylkir sigraði Val, 1-0, í
annað sinn á tímabilinu í miklum
baráttuleik á Vodafone-vellinum í
gærkvöld þar sem fátt gerðist þar
til 20 mínútur voru til leiksloka.
Fylkismenn sköpuðu sér tvö færi
í fyrri hálfleik en í bæði skipt-
in bjargaði Reynir Leósson því
að Fylkismenn skoruðu. Sóknir
Valsmanna voru máttlausar og
fengu framherjar liðsins úr litlu
að moða.
Valsmenn byrjuðu síðari hálf-
leikinn með góðri sókn en leikur-
inn datt í sama farið aftur þar til á
70. mínútu þegar Valsmenn sköp-
uðu sér þrjú færi á skömmum tíma
en fundu ekki leiðin fram hjá Fja-
lari Þorgeirssyni í markinu sem
stóð vaktina vel þrátt fyrir að hafa
haft lítið að gera í markinu fram
að því í leiknum.
„Þetta er hlutverk markmanns-
ins, maður veit aldrei hvenær
maður þarf að taka á honum stóra
sínum. Það er eitt af okkar hlut-
verkum. Maður þarf að vera á
tánum í 90 mínútur því maður veit
aldrei hvenær liðið þarf á manni
að halda,“ sagði Fjalar.
„Ég bjóst við að þetta yrði stál
í stál eins og þetta var. Valur var
meira með boltann en við fengum
færi í fyrri hálfleik til að kom-
ast yfir og nýttum það ekki. Við
klínd um þessu einhvern veginn
inn í síðari hálfleik. Frábær sigur
og komnir í þriðja sætið sem er
frábært,“ sagði Fjalar að lokum.
Fylkismenn skora skömmu
eftir að Valsmenn þyngja sókn-
ina og skapa sér áður nefnd færi
en Kjartan Andri var fljótastur
að bregðast við eftir að Harald-
ur Björnsson varði slakt víti Vals
Fannars Gíslasonar.
„Mér fannst við vera með þá
áður en þeir skora eftir ódýrt víti.
Þeir refsuðu okkur fyrir okkar
einu mistök en við refsuðum þeim
ekki,“ sagði Reynir Leósson, mið-
vörður Vals, sem var ákaflega
ósáttur við Valgeir Valgeirsson
dómara leiksins.
„Mér fannst dómgæslan í leikn-
um skelfileg. Hann stoppar hjá
okkur fjögur upphlaup þegar þeir
liggja meiddir og svo virðist vera
lítið að þeim. Það hefur mikil
áhrif á okkar leik. Ég ætla halda
því til haga hvaða kenningar ég
hef fyrir því að þetta hafi verið
svona,“ sagði Reynir en Valgeir er
frá Akranesi og er frændi Ólafs
Þórðarsonar, þjálfara Fylkis, en
bæði lið geta kvartað yfir nokkr-
um dómum í leiknum. - gmi
Fylkir lagði Val öðru sinni í sumar
Fjalar Þorgeirsson sá til þess að Fylkismenn tóku öll stigin á Vodafone-vellinum í gærkvöld. Varamaðurinn
Kjartan Andri Baldvinsson skoraði eina mark leiksins þegar um stundarfjórðungur lifði leiks.
LOK, LOK OG LÆS Markvörðurinn Fjalar
Þorgeirsson átti stóran þátt í glæsilegum
sigri Fylkis gegn Val að Hlíðarenda í
gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN