Fréttablaðið - 21.07.2009, Síða 26
18 21. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Það er stundum sagt að hljómsveit-
ir hætti aldrei, þær taki sér bara
mislöng frí frá störfum. Þær tvær
plötur sem hér eru til umfjöllunar
styðja þá kenningu. Vonbrigði var
ein af lykilsveitum íslenska pönks-
ins og 1980 bylgjunnar, en Langi
Seli & Skuggarnir voru stofnaðir
á rústum hinnar goðsagnakenndu
sveitar Oxzmá og störfuðu á árun-
um 1988 - 1994. Báðar hafa nú
verið endurvaktar.
Tapír er önnur plata Vonbrigða
eftir að sveitin kom fram á nýjan
leik snemma á nýrri öld. Hin fyrri,
Eðli annarra, kom út 2004 og hafði
að geyma nýjar upptökur af göml-
um lögum, en á Tapír eru ný lög.
Ég verð að viðurkenna að Tapír
olli mér vonbrigðum. Lagasmíð-
arnar eru ekki nógu sterkar og
hljómsveitin hefur glatað ýmsu
af því sem gerði hana sérstaka án
þess að eitthvað annað spennandi
hafi komið í staðinn. Hún er enn
drulluþétt og það glittir í snilldina
í flutningnum, en það er of mikið
af ofnotuðum riffum og of lítið
af nýjum hugmyndum. Ekki vond
plata, en hún stendur ekki undir
væntingunum sem í mínu tilfelli
voru miklar.
Langi Seli skilgreindi einhvern
tímann tónlistina sína sem endur-
reisnarrokk. Það er réttnefni. Tón-
listin er uppfærð útgáfa af rokka-
billí tónlist sjötta áratugarins. Þetta
er sígild dægurtónlist sem á jafn
mikið erindi í dag og hún átti fyrir
tuttugu árum eða eftir tuttugu ár.
Sveitin starfar innan þröngs tón-
listarlegs og textalegs ramma.
Lögin tíu eru tilbrigði við kunnug-
leg stef (sum þeirra eru t.d. sömu
ættar og stærsti smellur sveitar-
innar, Breiðholtsbúgí, önnur fara
út í brimbretta-rokk) og textarnir
eru eins og svipmyndir úr hvers-
dagslífinu, - einn dagur tekur við
af öðrum. Nöfn laganna Ryk og sól,
Haustið, Á góðum degi, Drullukalt
og Rigning og rok segja allt.
Þetta er fín plata sem kemur
manni í gott skap. Lögin eru góð,
hljómurinn flottur og hljóðskreyt-
ingar Gísla Galdurs eru mátulega
lágt í mixinu til að setja svip án
þess að yfirtaka klassíkina.
Trausti Júlíusson
Hljómsveitir hætta aldrei
TÓNLIST
Drullukalt
Langi Seli & Skuggarnir
★★★★
Rokkabillí Sela og félaga er sígilt og
kemur manni í gott skap.
TÓNLIST
Tapír
Vonbrigði
★★★
Þrátt fyrir góð tilþrif þá stenst Tapír
ekki væntingar.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 21. júlí 2009
➜ Menningardagskrá
12.00 Sænskir dagar og Mærudagar
á Húsavík standa yfir til 26. júlí. Frekari
upplýsingar á heimasíðu sveitarfélags-
ins, nordurthing.is
➜ Tónlist
20.30 Claudia Kunz sópran og Ulrich
Eisenlohr, píanóleikari frá Þýskalandi,
spila á sumartónleikum í Listasafni Sig-
urjóns. Aðgangseyrir 1500 krónur.
21.00 Hljómsveitin Hjónabandið held-
ur tónleika á Classic Rock, Ármúla 5.
21.00 Guðrún Gunnarsdóttir flytur
lög sænska tónlistarmannsins Cornelis
Vreeswijk ásamt hljómsveit á Græna
Hattinum, Akureyri. Miðaverð 1500
krónur.
➜ Myndlist
10.00 Jón Baldvinsson sýnir málverk
sín í Perlunni.
10.00 Samsýning mæðgina á Cafe
Loka, Lokastíg 28. Ljósmyndir og mál-
verk.
10.00 Stella Sigurgeirsdóttir sýnir ljós-
myndasýninguna Dagstofu á Mokka.
11.00 Elsa Björg Magnúsdóttir og
Soffía Gísladóttir sýna Ljósmyndir í lit á
Thorvaldsen Bar.
12.00 Samsýning fimm grasrótarlista-
manna á Fljótsdalshéraði í Sláturhúsinu
á Egilsstöðum. Högglist, myndlist, ljós-
myndir, videólist og fleira.
➜ Handverk
11.00 Sýning á 24 bútasaumsverkum
úr samkeppninni Hafið, Sjóminjasafninu
Víkinni, Grandagarði 8.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Belgíski atvinnugrínistinn Liev-
en Scheire skemmtir á Batterí-
inu á fimmtudagskvöld. Auk hans
flytja Rökkvi Vésteinsson og
Sveinn Waage uppistand á ensku.
Scheire er með eigin sjón-
varpsþátt í Belgíu ásamt hljóm-
sveit sinni, Neveneffecten og
vann The Luneatics Award, belg-
ísk uppistandsverðlaun árið 2002.
Árið 2000 var Scheire í skipt-
inámi á Íslandi og kynntust þeir
Rökkvi þá. Þeir hafa áður staðið
fyrir uppistandi á Íslandi, árið
2006. Lieven verður einnig með
spunaleiklistarnámsskeið í Hinu
húsinu næsta laugardagskvöld.
Dagskráin hefst klukkan níu og
kostar þúsund krónur inn.
-kbs
Belgískt grín
Heimir Sverrisson kvik-
myndagerðarmaður vinnur
að nýrri heimildarmynd
sem fjallar um líf götu-
stráksins Suyash sem
stofnaði meðferðarheimili í
höfuðborg Nepal.
„Þetta er lítil kraftaverkasaga,“
segir Heimir Sverrisson kvik-
myndagerðarmaður um heimildar-
mynd sem hann vinnur að. Mynd-
in fjallar um Suyash, götustrák og
fyrrverandi heróínfíkil, sem opn-
aði meðferðastöð í Kathmandu,
höfuðborg Nepal, með hjálp frá
bandarískum áfengisráðgjafa og
íslenskum lækni.
„Þetta byrjaði þannig að Val-
gerður Rúnarsdóttir, læknir á
Vogi, fór til Nepal í gegnum sam-
tökin Recovery Without Boarders,
til að aðstoða Suyash við rekstur
meðferðarheimilisins. Ég frétti svo
af þessum unga manni og starfi
hans í Kathmandu frá vinkonu
minni sem hafði sótt fyrirlestur
hjá Valgerði um meðferðar heimilið
og þar með var áhugi minn vakinn.
Það eru um 80-100 þúsund sprautu-
fíklar í Kathmandu og um níutíu
prósent þeirra eru HIV-smitaðir,
þannig að þetta er stórt og mikið
verkefni sem Suyash hefur ráðist
í,“ segir Heimir.
Saga Suyash er að mörgu leyti
ótrúleg. Fjölskylda hans rak hann
á dyr þegar hann byrjaði í neyslu
og í sjö ár bjó hann á skítugum
götum í „Toilet“-hverfinu í Kath-
mandu. „Hverfið er það allra
fátækasta í borginni. Þar býr fjöldi
munaðarlausra barna sem mörg
hver frjósa til dauða í frosthörk-
unum á veturna. Mansal og vændi
eru stórt vandamál í landinu og
HIV er orðið það útbreitt að því
hefur verið lýst sem faraldri og
ástandið fer versnandi ár frá ári.
Vendipunkturinn í lífi Suyash varð
þegar kofinn hans brann stuttu
eftir að hann hafði lent í höndunum
á glæpamönnum sem höfðu ráðist
á hann með sveðju. Hann hætti í
neyslu en ákvað að til að ná full-
komnum bata yrði hann að hjálpa
öðrum. Hann stofnaði meðferð-
arheimili og stuttu seinna voru
tuttugu og þrír sjúklingar fluttir
þangað inn til meðferðar. Gallinn
var bara sá að Suyash vissi ekki
hvernig átti að fara að og leitaði
hjálpar hjá Jake Epperly, áfengis-
ráðgjafa í Chicago, sem leiðbeindi
honum í gegnum bréfaskriftir.“
Síðan þá hefur meðferðarheimil-
ið stækkað og með fjármagni og
aðstoð sjálfboðaliða hefur einnig
verið hægt að koma á laggirnar
meðferðarheimili fyrir konur.
Undirbúningur fyrir tökur á
heimildarmyndinni eru komnar
vel á veg og mun Heimir halda
aftur til Nepal í haust ásamt Árna
Ben, hljóðmanni, og ljúka tökum.
Þeim sem vilja kynna sér söguna
um Suyash betur er bent á síðuna
www.keepcomingbackfilm.com.
sara@frettabladid.is
Kraftaverkasaga heróínfíkils
KYNNTU ÞÉR SÝNINGARTÍMA Á SELFOSSI
OG Í KEFLAVÍK Á WWW.SAMBIO.IS
HARRY POTTER 6 kl. 5 - 8 - 11 7
TRANSFORMERS 2 kl. 5 12
BRUNO kl. 8 - 10 14
HARRY POTTER 6
kl. 1 - 2D - 4 - 5D - 7 - 8D - 10:10 - 11:10D 10
HARRY POTTER 6 kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 VIP
BRUNO
kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 8:30 - 10:10 - 10:30 - 12:10 14
THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 12
TRANSFORMERS 2 kl. 2 5- 10
HARRY POTTER 6 kl. 2D - 5D - 8D - 10D - 11:10D 10
BRUNO kl. 6D - 8D - 10:10 - 12 14
ÍSÖLD 3 m/ísl. tali kl. 2(3D) - 4(3D) L
THE HANGOVER kl. 2 - 4 - 6 - 8 12
tryggðu þér miða í tíma!
örfá sæti laus
T.V. KVIKMYNDIR.IS
„Dazzlingly well made...“
Variety - 90/100
„Hún var FRÁBÆR!“
New York Magazine – 90/100
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA!
STÆRSTA BÍÓOPNUN ÁRSINS, YFIR 20.000 GESTIR
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 500
GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 500
GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
12
16
L
L
L
L
10
10
BALLS OUT kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
THE HURT LOCKER kl. 8 - 10.45
ICE AGE 3 3D ENSKT TAL ÁN TEXTA kl. 8 - 10.10 D (850 kr.)
ÍSÖLD 3 3D ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45 D (850 kr.)
ICE AGE 3 ENSKT TAL M/ÍSL. TEXTA kl. 3.30 - 5.45
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45
TRANSFORMERS 2 kl. 8 -11
TRANSFORMERS 2 LÚXUS kl. 5 - 8 - 11
SÍMI 462 3500
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 6
ICE AGE 3 ENSKT TAL M/ÍSL. TEXTA kl. 6 - 8
MY SISTERS KEEPER kl. 8 - 10
TYSON kl. 10
L
L
12
16
12
L
7
7
14
B13 - ULTIMATUM kl. 5.50 - 8 - 10.10
MY SISTERS KEEPER kl. 5.40 - 8 - 10.20
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 5.50 - 8
YEAR ONE kl. 10.10
GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 5.45 - 8
ANGELS & DEMONS kl. 10.15
SÍMI 530 1919
12
16
L
L
7
7
BALLS OUT kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE HURT LOCKER kl. 8 - 10.35
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 5.50
ICE AGE 3 ENSKT TAL M/ÍSL. TEXTA kl. 5.50 - 8 - 10.10
GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 8 - 10.15
YEAR ONE kl. 5.45
SÍMI 551 9000
- Ó.H.T. , Rás 2
- S.V. , MBL MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTUTEIKNIMYNDÁRSINS! OG NÚNA LÍKA Í 3-D
Gildir ekki í lúxussal, Borgarbíó né á 3D myndir
- bara lúxus
Sími: 553 2075
- POWER kl. 4, 7 og 10 10
MY SISTER´S KEEPER kl. 8 og 10.15 12
ÍSÖLD 3 - 3D - Íslenskt tal kl. 4 L
ÍSÖLD 3 - Íslenskt tal kl. 4 L
TRANSFORMERS 2 kl. 7 og 10 10
ÞRIÐJUDAGUR
ER TILBOÐSDAGUR
500 KR
Á A L L A R
M Y N D I R
ATH! GILDIR EKKI Á MYNDIR Í 3D
STÆRSTA KVIKMYNDASERÍA
ALLRA TÍMA ER KOMIN Í BÍÓ!
POWERSÝNING
KL. 10.00 500 kr.
500 kr.500 kr.
500 kr.
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FLOTTASTA HASARMYND
SUMARSINS
- Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com
MÖGNUÐ
SAGA FÍKILS
Kvikmyndagerðarmaður-
inn Heimir Sverrisson,
til vinstri, vinnur nú að
mynd um nepalskan
götustrák sem segir skilið
við heróín neyslu og stofnar
meðferðarheimili í höfuð-
borg landsins. Fíkillinn, sem
heitir, Siuyash ákvað að
auðveldast væri fyrir hann
að halda sjálfum sér á beinu
brautinni ef hann hjálpaði
öðrum fíklum.
Heimir fer til Nepals í haust
til að ljúka tökum á myndinni.