Samvinnan - 01.03.1944, Qupperneq 10
SAMVINNAN
3. HEFTI
mjög smár. Traust vikursteypa tekur vel viö múrhúð-
un og heldur henni fastri, en nauðsynlegt er að blanda
rakavarnarefni í alla múrhúðun utan húss, svo að al-
R-steinahús hafa gefizt vel, þar sem vinnubrögð hafa
verið góð, og þau hafa reynzt hlý. Aukin einangrun
mundi þó verða til bóta, þar sem einangrunarhol
gjörlega sé tryggt, að vatn komist ekki inn í veggina,
Mikillar varúðar þarf einnig að gæta um allan frá-
gang glugga, vegna áleitni vatns og veðra.
Enn mun það yfirleitt siður, að útveggir, gerðir úr
venjulegum 24 cm. vikurholsteinum, séu múrhúðaðir
utan og innan, og sú einangrun látin duga, sem
veggir þessir veita. Sé um beztu tegund vikurholsteina
að ræða, og veggir eða steinar eru gegnþurrir (sem
sjaldnast er), getur einangrun þessi nægt þar, sem
upphitun er í bezta lagi. Þrátt fyrir það ætti aldrei að
láta þessa einangrun duga. í loftslagi því og tíðarfari,
sem við eigum við að búa, er það hin mesta fásinna
að tefla á tæpasta vað um einangrun, þar sem ekki
eru gerðar miklar kröfur til upphitunar og raka-
hætta í húsum er mjög mikil, ef einangrun er ekki
góð.
Vikurveggi ætti aldrei að múrhúða innan. í stað
þess á að klæða þá með veggjaplötum úr trétexi, mas-
oniti, cellotexi, asbesti eða öðru þess háttar efni, sem
neglt er á þunna lista. Með plötum þessum, sem síðan
má mála eða veggfóðra, fæst dýrmæt aukin einangr-
un, en veggirnir að baki þeirra eru ólokaðir og fá
tækifæri til að þorna og batna að einangrunarhæfni
á þeim langa tíma, sem til þess þarf. Hver fermetri í
veggplötum þessum er nálægt því helmingi ódýrari en
venjuleg múrhúðun á jafnstórum fleti, og geta menn
því með þessu sparað sér fé, auk þess að þeir fá betri
hús.
R-steinarnir, sem bera nafn af lögun sinni, hafa
aðallega verið framleiddir á Akureyri og mikið not-
aðir þar og í nærsveitum, en vikursteinarnir í Reykja-
vík og í sveitum og þorpum á Suðurlandsundirlendi.
Úr R-steinum eru hlaðnir tvöfaldir veggir, en tróðhol
fyllt mómylsnu og múrhúðað síðan á báða vegu.
Ensk steypumót.
Fullsteyptur steinn á
botnfjöl.
þeirra er í minnsta lagi og verður ekki aukið, að stein-
unum óbreyttum. Vegna lögunar sinnar henta R-
steinar betur verksmiðjuiðnaði en handavinnu, en
þeir eru fremur þunnir og af óreglulegri lögun, og því
er vandfarnara með þá en steina af einfaldari gerð-
um.
Þá vík ég síðast máli að einföldum múrsteinum af
þeirri gerð, er Klemenz á Sámsstöðum notar, og
framleiddir hafa verið í heimahúsum víðsvegar um
landið, en hvergi í stórum stíl. Steinar þessir eru tví-
mælalaust af þeirri gerð, sem bezt hentar heimilis-
iðnaði. Þeir eru einfaldir og sterkir. Úr þeim má
hlaða einfalda eða tvöfalda veggi með litlu eða stóru
einangrunarholi eftir því, sem við á. Þegar þeir eru
fullharðir má geyma þá úti, hvernig sem viðrar, án
þess að þeir bíði af því nokkurt tjón.
Jóhann Kristjánsson, húsameistari, hefur manna
mest hvatt menn til að steypa og nota þessa steina
78