Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 18
SAMVINNAN 3. HEFTI VERKIN TALA Dórisk súla. Jónisk súla. Kórintísk súla. Þrjár súlur. — Dálítil prentvilla varð i síðasta hefti að því er snertir kórintísku súluna, og eru súlurnar því allar prentaðar hér að nýju. Lesendur geta með samanburði fundið glögglega mismun á þessum þrem súlnategundum, hvort heldur litið er á undir- stöðuna, meginsúluna eða súlnahöfuðin, sem eru mjög ólík, en frumleg og fögur, hvert með sínum hœtti. Eins og fyrr er sýnt, byggðu Egyptar hin miklu hof sín þannig, að þakið hvíldi á súlum, sem voru ram- gerðar en ekki listrænar. í höndum Grikkja náði súlan festu í stíl og fágaðri fegurð, svo að ekki hefur verið um bætt, það sem Grikkir gerðu bezt á þeim vegum. Á þverskurðarmynd af grísku hofi (mynd 11) sést, að meginþungi þaksins hvílir á súlnaröðum, því að veggirnir utan um goðastúkuna hafa lítið burðarmagn. Þó að Egyptar og Grikkir þekkktu kosti bogans, þá lögðu þeir megináherzlu á hina beinu línu. Fjarlægðin milli súlna í stórbyggingum þeirra mátti þess vegna ekki vera meiri en svo, að lóðréttur steinn næði milli tveggja súlna. Fegurð grískra bygg- inga er þess vegna bundin við einkenni hinnar beinu línu, við fullkomið samræmi í hlutföllum og mikla hófstillingu um stærð bygginganna. Rómverjar fengu undirstöðuatriði sinnar menningar frá Grikklandi, 16. Súlur og bogar. 86

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.