Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Síða 14

Samvinnan - 01.03.1944, Síða 14
SAMVINNAM 3. HEFTI því af öllu afli á marmaragólf hallarinnar. Glerið brotnaði ekki. Þá tók hann hamar og lamdi á það. En samt brotnaði það ekki. Keisarinn varð sem steini lostinn af undrun. Því næst spurði hann glergerðarmanninn, hvort hann væri eini maðurinn, sem þekkti aðferðina til að gera þetta kynjagler. Hinn játaði því allhreykinn. „Ágætt“, sagði Tíberíus, 'og skipaði hann svo fyrir, að glergerðar- maðurinn skyldi umsvifalaust tekinn af lífi. — „Því að hvers virði mundi allt gull Rómaveldis, ef slíkt efni væri á boðstólum." — Óbrjótanlegt gler mátti alls ekki verða verzlunarvara. Þetta gerðist árið 34 e. Kr. Nú hafa amerískir vís- indamenn gert sams konar gler. Glerplötur eru stælt- ar með því að hita þær þangað til að þær eru komnar að bráðnun. Þá eru þær skyndilega kældar, svo að ytra borðið herpist ákaft saman og þrýstir geysilega á miðbik plötunnar. Gler, sem þannig er meðhöndlað, fær mikið þanþol, og má beygja það og mishita furðu mikið, án þess að það springi. Það má leggja slíka glerplötu á ís og hella bráðnu blýi ofan á hana, án þess að hún láti á sjá. Venjulegt gler mundi splundrast. Átta millimetra þykk glerplata þolir, að járnkúla, sem vegur 1 kg, detti á hana úr 2 metra hæð. Rúða, sem er 1 ferh,- metri að stærð og 18 mm á þykkt og hvílir á stöplum til beggja enda, þolir þriggja smálesta þunga, án þess að brotna. Þess konar gler er notað í hurðir á bökunarofnum, svo að hægt sé að sjá hvað bökuninni líður, án þess að opna hurðina. Það er líka notað í búðarhurðir og leikhúshurðir. Gler er líka notað í stað almíns í útvarpstæki og hefur þar marga kosti fram yfir málminn. Glerhill- ur hafa komið í stað hillna úr stáli eða tré í eldhús- um, kæliskápum o. þh. Það er notað í dansgólf, þak- hellur, og glugga á geðveikrahælum í stað járnrimla. Gormfjaðrir úr gleri hafa sama styrkleika og málm- fjaðrir, en ryðga ekki. Það hefur verið komizt svo að orði, að ævintýri Aladdíns komist varla í hálfkvisti við hin nýju furðu- verk, sem vísindi og tækni hafa framleitt á síðustu ár- um. Og þar eru samt engan veginn öll kurl komin til grafar. Eftirlitsmaður hjá vátryggingafélagi hafði verið að rannsaka orsakir húsbruna. Húsbóndi hans spyr, af hverju bruninn hafi orsakast. „Af núningi," segir hinn önugur. „Hvað segirðu! Hvað nuddaðist saman?“ „Eldurinn kviknaði af því að nudda 30 þúsund króna brunatryggingu utan í 20 þúsund króna timburhjall." Sandfok og gróður Kjarnar úr nýjustu bók Guðmundar Hagalíns. Fyrirsagnirnar eru hinar sömu og á viðkomandi köflum bókarinnar. Aðstaða og áhrif kommúnista hér á landi. Kommúnistar hafa tekið upp á því fyrir allmörg- um árum að fara krókaleiðir að markinu, og einn veigamesti þátturinn í starfi þeirra víðs vegar um lönd hefur verið að stofna félög, sem þeir hafa sagt að væru gersamlega laus við að vera stjórnmála- legs eðlis.------ Af félögum með slíku markmiði má nefna Sóvétt- vinafélagið og Alþjóðasamhjálp verkamanna eða A. S. V.-------En nú eru líka þessi félög orðin alger óþarfi fyrir málstað kommúnista hér á landi. Þeir hafa eignazt áróðurs og blekkingatæki, sem er þeim á allan hátt hagkvæmara, þar sem er bókaútgáfu- félagið Mál og menning. Skipulag fyrirtækisins er þannig, að nokkrir menn í Reykjavík koma saman, kjósa stjórn og ráða rit- stjóra, en allur hinn mikli fjöldi áskrifanda hefur engan atkvæðisrétt um málefni fyrirtækisins.---- Fyrirtækið hefur þegar gefið út margar bækur, og hafa þær ekki aðeins verið ódýrar, heldur líka yfir- leitt snyrtilegar að frágangi.-----Sumar mega teljast hinn bezti fengur, svo sem úrvalið úr ljóðum Stephans G. Stephanssonar, Rit Jóh. Sigurjónssonar og Vopnin kvödd, eftir Ernest Hemmingway, sem er ágæt skáldsaga og að sumu leyti meistaralega þýdd, en aftur á móti hneykslunarhella og vanmetakind fyrir það, að þar gætir sérvizkukenndrar óvöndunar í meðferð málsins — og í annan stað er stafsetning furðu fáránleg og setning lestrarmerkja stórvillandi, svo að segja má, að sums staðar sé bókin litlu betri aflestrar en skringiklausur í vikublöðum, þar sem það er gert til gamans að rugla orðunum þannig, að ekk- ert vit fáist úr þeim, ef þau eru ekki flutt í eðlilega röð.--------í fyrra og í ár hafa Rauðir pennar ekki komið út, en í þeirra stað hið svokallaða Tímarit Máls og menningar. í þesú rit hafa fyrst og fremst skrifað sannfærðir og rétttrúaðir kommúnistar, og þau hafa flutt greinar um stjórnmál og menningar- mál í kommúnistiskum anda. Svo hafa einnig birzt þar greinar eftir menn, sem kommúnistar kalla „borgaralega rithöfunda“, meinlausar hinum komm- únistiska málstað.-------Enn fremur er flaggað með nöfnum „borgaralegra“ herra í stjórn útgáfu- fyrirtækisins. Eins og gefur að skilja fyrir alla þá, sem þekkja 82

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.