Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 19

Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 19
3. HEFTI SAMVINNAN en í höndum þeirra tók gríska listin margháttuð- um breytingum, í samræn i við þjóðhætti Rómverja, hagsýni þeirra og takmarkaða listagáfu. Rómverjar gerðust stórveldi og þurftu að reisa ótölulegar stór- byggingar. Þeir fundu, að það var ódýrara og hag- felldara að hlaða saman boga yfir dyr, breið hlið 17. Grískt útileikhús, eftir minjum og lýsingum. eða milli tveggja súlna, heldur en að halda fast við beinu línurnar að sið Grikkja. í höndum Róm- verja varð boginn höfuðnýjung í byggingarlistinni. Hann kom í góðar þarfir við stórbyggingu og þá ekki síður við að leiða vatn yfir dældir. Voru þá oft bogabyggingar í mörgum hæðum undir vatns- leiðslum, sem lágu yfir óslétt land. Frá boga, sem tengir saman tvær súlur, var stutt leið yfir í hvelf- ingu milli veggja. Þegar kristin trú breiddist út um Rómaveldi, þurftu söfnuðirnir mikil húsakynni við 18. Rómverskt útileiksvið með steinsætum. guðsþjónustu. En tæknin að byggja voldugar hvelfingar var þá komin á hátt stig um allt Róma- veldi. En í höndum kirkjuleiðtoganna varð boginn listrænni og fegurri en fyrr. Hálfboginn í hinum svo nefnda rómanska kirkjustíl, og oddboginn í gotn- eskri list, voru hækkandi stig í fegurðarþróuninni. Grikkir lögðu snemma mikla stund á leiklist. Þurr- viðri eru mikil í Grikklandi og auðvelt að koma við útileikjum. Hentugt þótti að gera áhorfendasæti í hring- eða skeifumyndaðri brekku. í fyrstu höfðu leikendur tjald til sinna þarfa, bak við leiksviðið, en síðar var reist bygging í stað tjaldsins og lukti hún að nokkru leyti um leiksvið, nema gagnvart áhorfendum. Leikmenntin varð almenn í Grikk- landi, enda aðstaðan auðveld og lítill tilkostnaður við sýningar undir beru lofti. Hins vegar komst leikrita- skáldskapur í Grikklandi á svo hátt stig, að hann er enn í fremstu röð þess, sem til er í heimsbók- menntunum í því efni. 19. Grískur leikvangur með steinsœtum. Á mynd 17 er sýndur grískur leikvangur fyrir keppni í íþróttum. Þar eru hækkandi steinsæti upp eftir brekkunni, eins og í leikhúsi. Mynd 18 er frá rústum Pompejiborgar. Hefir jarðvegur og gróður verið tekinn af leiksviðinu og að nokkru leyti af steinsætunum. Rómverjar létu sér ekki nægja leik- og íþróttasýningar, heldur þótti þeim ein hin bezta skemmtun að sjá menn berast á banaspjótum eða berjast við villt dýr. Há og öflug girðing liggur um leiksviðið, til þess að áhorfendum stæði ekki hætta af mönnum og dýrum, sem biðu dauðans á leik- sviðinu. Miklar dyr liggja inn á leiksviðið. Gegnum þær koma dýr og menn, sem eiga að deyja til augna- Jónas Jónsson. Lœknirinn: „Spurðu slasaða manninn að nafni, svo að hægt sé að gera ættingjum hans aðvart.“ Hjúkrunarkcnan (eftir stundarkorn): „Hann segir, að ættingjarnir viti hvað hann heiti.“ 87

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.