Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 30

Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 30
SAMVXNNAN 3. HEFTI Vísitala framfcerslukostnaðar í Reykjavík í byrjun febrúarmánaðar 1944. Eftirfarandi tafla sýnir, hvernig útgjöld fjölskyldu í Reykjavík, með tæplega 5 manns í heimili og rúmlega 3.850,00 kr. útgjöld, miðað við verðlag í ársbyrjun 1939. hafa breyzt, vegna verðbreytinga síðan, bæði í heild sinni og einstökum út- gjaldaliðum. Útgjaldaupphæðin nær til 94,7% af meðalútgjöldum 40 fjöldskyldna í Reykjavík, án skatts, samkvæmt rann- sókn 1939—40, sbr. Hagtíðindi 1940, nr. Útgjaldaupphœð Vísitölur kr. Jan.- —marz 1939= : 100 Jan.—marz Febr. Jan. Febr. Febr. Jan. Febr. Matvörur: 1939 1943 1944 1944 1943 1944 1944 Kjöt 313.35 1.238.46 1.223.93 1.223.66 395 391 391 Fiskur 157.38 426.42 480.10 488.04 271 305 391 Mjólk og feitmeti .. 610.01 2.523.85 2.156.62 2.177.13 414 354 357 Kornvörur 266.76 720.88 813.54 817.03 270 305 306 Garðávextir og aldin 151.38 454.87 352.27 340.93 300 233 252 Nýlenduvörur 168.26 459.63 464.09 464.14 273 276 276 Samtals 1.667.14 5.824.11 5.490.55 5.510.93 349 329 331 Eldsneyti og ijósmeti . 215.89 509.49 538.39 538.39 236 249 249 Fatnaður 642.04 1.571.87 1.660.58 1.659.69 245 259 259 Húsnæði 786.02 982.52 1.092.57 1.092.57 125 139 139 Ýmisleg útgjöld 541.92 1.192.00 1.340.66 1.339.10 220 247 247 Alls 3.853.01 10.079.99 10.122.75 10.140.68 262 263 263 10—12. Taflan sýnir útgjaldaupphæðina miðað við verðlag á 1. ársfjórðungi 1939 og í byrjun hvers af mánuðunum febrúar 1943 og janúar og febrúar 1944, en með vísitölum er sýnt, hve mikið útgjaldaupp- hæðin í heild og hver liður sérstaklega hefur hækkað síðan í ársbyrjun 1939. Aðalvísitalan í ár var 263, þ. e. 163% hærri heldur en á 1. ársfjórðungi 1939 eða nokkru fyrir stríðsbyrjun. Er hún óbreytt frá næsta mánuði á undan, og aðeins 1 stig (eða 0.4%) hærri heldur en í febrúarbyrjun í fyrra. Matvöruvísitalan var 331 í byrjun febrúarmánaðar. Er það 2 stigum hærra heldur en næsta mánuð á undan. Mat- vöruvísitalan er nú 5% lægri heldur í arbyrjun í fyrra. Eldneytis- og ljósmetisvísitalan er ó- breytt frá næsta mánuði á undan. Var hún 249 í febrúarbyrjun, og er það 6% hærra heldur en í febrúarbyrjun í fyrra. Fatnaðarvísitalan er óbreytt frá næsta mánuði á undan. Var hún 259 í febrú- arbyrjun eða 6% hærri heldur en í febrú- arbyrjuní fyrra. Húsnæðisvísitalan er óbreytt. Hún er nú 11% hærri en um sama leyti í fyrra. Vísitalan fyrir liðinn „ýmisleg útgjöld" er óbreytt frá næsta mánuði á undan. Var hún 247 í febrúarbyrjun þ. á. eða 12% hærri heldur en um sama leyti í fyrra. Myndin af Nordahl Grieg á bls. 88 hér að framan er gerð eftir ljós- mynd, sem skáldið afhenti þing- vallabænum með áletraðri kveðju sinni sumarið 1940, er hann dvald- ist þar um tíma í boði Þingvalla- nefndar. samvinivaÍv 3. hefti marz 1944. Útgef andi: Samband ísl. samvinnufélaga Ritstjórn: Jónas Jónsson. Guðlaugur Rósin- kranz. Jón Eyþórsson. Sími 5099 Afgreiðslustjóri: Konráð Jónsson Sambandshúsið, Reykjavík. Sími: 1080 Verð árgangsins, 10. hefti kr. 15,00 Forvfgismenn. W Einar Arnason Einar Árnason, bóndi á Eyrar- landi í Eyjafirði, er fæddur 27. nóv. 1875 á Hömrum í Eyjafirði, sonur Árna Guðmundssonar bónda þar og síðar á Eyrarlandi. E. Á. út- skrifaðist úr Möðruvallaskóla 1893. Vann síöan í foreldrahúsum en stundaði farkennslu á vetrum 1893 —1900. Bóndi á Eyrarlandi síðan 1901. Hann hefur gegnt fjölmörg- um trúnaðarstörfum heima í hér- aði og fyrir alla þjóðina. Hann hefur verið í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga síðan 1905 og formaður þess síðan 1917. Þingmaður Ey- firðinga frá 1916—1941. Fjármála- ráðherra í ráðuneyti Tryggva Þór- hallssonar frá 1929—’31. f stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga hef- ur hann verið síðan 1926, og for- maður þess var hann kosinn 1936 og endurkosinn jafnan síðan. E. Á. er kvæntur Margréti Ei- ríksdóttur bónda á Hallanda á Svalbarðsströnd í Eyjafirði. 98

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.